45. fundur
fjárlaganefndar á 157. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, mánudaginn 20. apríl 2026 kl. 09:30


Mætt:

Sigurjón Þórðarson (SigurjÞ) formaður, kl. 09:30
Dagur B. Eggertsson (DBE) 1. varaformaður, kl. 09:30
Stefán Vagn Stefánsson (SVS) 2. varaformaður, kl. 09:35
Arna Lára Jónsdóttir (ArnaJ), kl. 09:30
Brynjar Níelsson (BN) fyrir Guðlaug Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 09:30
Ingvar Þóroddsson (IngÞ), kl. 09:30
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:35
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:30
Pétur Björgvin Sveinsson (PBS), kl. 09:30

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargrerð 44. fundar var samþykkt.

2) 146. mál - staðfesting ríkisreiknings 2024 Kl. 09:31
Formaður lagði til að málið yrði afgreitt.
Að nefndaráliti og afgreiðslu málsins standa Sigurjón Þórðarson, Dagur Bergþóruson Eggertsson, Arna Lára Jónsdóttir, Ingvar Þóroddsson og Pétur Björgvin Sveinsson.
Njáll Trausti Friðbertsson og Brynjar Níelsson sátu hjá.
Stefán Vagn Stefánsson og Karl Gauti Hjaltason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

3) 577. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031 Kl. 09:36
Til fundarins komu Jón Viðar Pálmason, Gunnar Gunnarsson, Gunnar Sigurðsson, Marta Guðrún Skúladóttir, Elfar Hrafn Árnason, Hlynur Hreinsson, Hilda Hrund Cortez, Vífill Harðarson, Ásta Bjarnadóttir og Marta Guðrún Skúladóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau fóru yfir fjármál sveitarfélaga, samstæðuuppgjör ríkissjóðs og fjármál opinberra aðila í heild, tekjur ríkissjóðs, útgjöld ríkissjóðs og umbætur í starfsemi hins opinbera. Jafnframt svöruðu þau spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 10:59
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00