33. fundur
fjárlaganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, miðvikudaginn 11. desember 2013 kl. 22:00


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 22:00
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 22:00
Bjarkey Gunnarsdóttir (BjG), kl. 22:00
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 22:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 22:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) fyrir KG, kl. 22:00
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 22:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) fyrir ÁsmD, kl. 22:00

Guðlaugur Þór Þórðarson og Helgi Hrafn Gunnarsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2014 Kl. 22:00
Vegna athugasemda sem fram komu við afgreiðslu málsins fyrr um daginn var ákveðið að afgreiða frumvarpið að nýju úr fjárlaganefnd.

Lagt fram nefndarálit meiri hluta. Álitið er í vinnslu þar sem það er í yfirlestri skjaladeildar Alþingis.

Meiri hluti fjárlaganefndar afgreiðir frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2014 til 2. umræðu með atkvæðum Vigdísar Hauksdóttur, Haraldar Benediktssonar, Líneikar Sævarsdóttur, Valgerðar Gunnarsdóttur og Willums Þórssonar.

Minni hluti nefndarinnar leggst gegn afgreiðslu málsins. Hann skipa Oddný G. Harðardóttir, Brynhildur Pétursdóttir og Bjarkey Gunnarsdóttir. Þær munu hver um sig skila áliti minni hluta.

Guðlaugur Þór Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

2) Önnur mál Kl. 22:09
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerðir fjárlaganefndar á 143. þingi Kl. 22:10
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 22:10