64. fundur
fjárlaganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 2. júní 2014 kl. 13:30


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 13:35
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 14:49
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 13:35
Bjarkey Gunnarsdóttir (BjG), kl. 13:38
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 13:35

Haraldur Benediktsson var veikur. Ásmundur Einar Daðason, Karl Garðarsson, Valgerður Gunnarsdóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson áheyrnarfulltrúi voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 508. mál - opinber fjármál Kl. 13:37
KPMG ehf.: Margret Flóvenz, Jóhann I.C. Solomon og Unnar Friðrik Pálsson.
Félag löggiltra endurskoðenda: Sturla Jónsson.
Gestirnir fóru yfir umsagnir sínar um frumvarp til laga um opinber fjármál.

2) Önnur mál Kl. 15:25
Fleira var ekki rætt.

3) Fundargerðir fjárlaganefndar á 143. þingi Kl. 15:25
Fundargerðina samþykktu Vigdís Hauksdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Oddný G. Harðardóttir, Bjarkey Gunnarsdóttir og Brynhildur Pétursdóttir.

Fundi slitið kl. 15:35