8. fundur
fjárlaganefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 14. desember 2016 kl. 09:00


Mættir:

Haraldur Benediktsson (HarB) formaður, kl. 09:00
Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 09:00
Theodóra S. Þorsteinsdóttir (ThÞ) 2. varaformaður, kl. 09:18
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:00
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 10:24
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:00
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:00
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:00

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2017 Kl. 09:00
Til fundarins komu Sveinn Arason, Jón Loftur Björnsson og Ingi K. Magnússon frá Ríkisendurskoðun. Þeir lögðu fram og kynntu umsögn stofnunarinnar um fjárlagafrumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 8. mál - lokafjárlög 2015 Kl. 10:36
Til fundarins komu Lúðvik Guðjónsson og Viðar Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir lögðu fram tvö minnisblöð um frumvarp til lokafjárlaga fyrir árið 2015, kynntu frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þess.

3) Önnur mál Kl. 11:22
Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 11:23
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 11:24