64. fundur
velferðarnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 25. maí 2023 kl. 13:00


Mætt:

Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) formaður, kl. 13:00
Oddný G. Harðardóttir (OH) 1. varaformaður, kl. 13:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 13:00
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 13:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 13:00
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf), kl. 13:00
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 13:15
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 13:00
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 13:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 13:00

Líneik Anna Sævarsdóttir og Oddný G. Harðardóttir tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.

Nefndarritari: Brynjar Páll Jóhannesson

Ásmundur Friðriksson stýrði fundi.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:00
Dagskrárlið frestað.

2) 938. mál - lyfjalög og lækningatæki Kl. 13:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Kristínu Láru Helgadóttur, Þórð Arnar Þórðarson og Sigtrygg Hilmarsson frá Veritas Capital, Andrés Magnússon og Júlíu Rós Atladóttur frá Samtökum verslunar og þjónustu og Örnu Gunnarsdóttur, Guðbjörgu Guttormsdóttur og Margréti Lilju Hreiðarsdóttur frá Lyfjastofnun.

3) 104. mál - gjaldfrjálsar tannréttingar fyrir börn Kl. 14:50
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur og Kristínu Heimisdóttur frá Tannlæknafélagi Íslands og Hafdísi Unu Guðnýjardóttur og Sigurveigu Þórhallsdóttur frá Umboðsmanni barna.

4) 987. mál - heilbrigðisstarfsmenn Kl. 15:15
Nefndin ræddi málið.

5) Önnur mál Kl. 15:30
Nefndin ræddi starfið fram undan.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:45