58. fundur
velferðarnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, miðvikudaginn 8. maí 2024 kl. 09:03


Mætt:

Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) formaður, kl. 09:03
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ) 1. varaformaður, kl. 09:03
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:03
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:23
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:03
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:03
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:03
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:03
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:03

Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritari: Brynjar Páll Jóhannesson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 1075. mál - húsnæðisbætur Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hildi Dungal og Rún Knútsdóttur frá innviðaráðuneyti.

3) 904. mál - sjúkraskrár og landlæknir og lýðheilsa Kl. 09:35
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Kristján Þorvaldsson og Elsu Gísladóttur frá Sjúkratryggingum Íslands.

4) 906. mál - sjúkraskrár Kl. 09:45
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Kristján Þorvaldsson og Elsu Gísladóttur frá Sjúkratryggingum Íslands.

Nefndin samþykkti með vísan til 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti þar sem fram komi afstaða ráðuneytisins til þeirra umsagna sem nefndinni hafa borist um málið.

5) 910. mál - fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi Kl. 10:02
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Heiðrúnu Björk Gísladóttur frá Samtökum atvinnulífsins, sem tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.

6) 754. mál - húsaleigulög Kl. 10:19
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Egil Lúðvíksson og Erlend Kristjánsson frá Heimstaden.

7) Önnur mál Kl. 10:55
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, framsögumaður nefndarinnar í 102. máli - Ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing vörslu neysluskammta) og 222. máli - Neyðargeðheilbrigðisteymi og fræðsla viðbragðsaðila, ítrekaði beiðni sína um að málin yrðu tekin á dagskrá.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00