63. fundur
velferðarnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, þriðjudaginn 21. maí 2024
kl. 13:00
Mætt:
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) formaður, kl. 13:00Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ) 1. varaformaður, kl. 13:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 13:00
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 13:00
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 13:00
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 13:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 13:00
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 13:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 13:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 13:00
Líneik Anna Sævarsdóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.
Nefndarritari: Brynjar Páll Jóhannesson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 13:00
Dagskrárlið frestað.
2) 909. mál - breyting á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði Kl. 13:03
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Kristján Þorvaldsson og Elsu Gísladóttur frá Sjúkratryggingum Íslands.
Þá komu á fund nefndarinnar Hanna S. Gunnsteinsdóttir og Heimir Guðmundsson frá Vinnueftirlitinu.
3) 907. mál - landlæknir og lýðheilsa og sjúkraskrár Kl. 14:06
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Elínborgu Jónsdóttur, Rögnvald Gunnarsson og Elísabet Benedikz frá Landspítala.
4) 905. mál - vísindarannsóknir á heilbrigðissviði Kl. 14:20
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Rögnvald Gunnarsson og Þorvarð Jón Löve frá Landspítala.
Þá komu á fund nefndarinnar Kári Stefánsson, Ingileif Jónsdóttir og Erla Þuríður Pétursdóttir frá Íslenskri erfðagreiningu.
5) 864. mál - breyting á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga Kl. 15:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þóreyju S. Þórðardóttur frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
6) 906. mál - sjúkraskrár Kl. 13:15
Nefndin ræddi málið.
7) Önnur mál Kl. 15:56
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, framsögumaður nefndarinnar í 102. máli - Ávana- og fíkniefni (afglæpavæðing vörslu neysluskammta), 116. máli - Umboðsmaður sjúklinga, Almannatryggingar (raunleiðrétting) og 222. máli - Neyðargeðheilbrigðisteymi og fræðsla viðbragðsaðila, ítrekaði beiðni sína um að málin yrðu tekin á dagskrá.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 15:56