5. fundur
velferðarnefndar á 156. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, miðvikudaginn 5. mars 2025 kl. 09:00


Mætt:

Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK) formaður, kl. 09:00
Kristján Þórður Snæbjarnarson (KÞS) 1. varaformaður, kl. 09:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ingibjörg Isaksen (IIsak), kl. 09:00
Jón Gnarr (JGnarr), kl. 09:00
Jónína Björk Óskarsdóttir (JBÓ), kl. 09:24
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:00
Ragna Sigurðardóttir (RagnaS), kl. 09:00
Rósa Guðbjartsdóttir (RGuðb), kl. 09:00

Nefndarritari: Brynjar Páll Jóhannesson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 4. fundar var samþykkt.

2) 2. mál - landlæknir og lýðheilsa o.fl. Kl. 09:05
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Erlu Þ. Pétursdóttur og Ingileif Jónsdóttur frá Íslenskri erfðagreiningu.

3) 4. mál - lyfjalög og lækningatæki Kl. 10:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Birtu Sif Arnardóttur frá félagi atvinnurekenda.
Þá komu á fund nefndarinnar Arna Gunnarsdóttir og Rúna Hauksdóttir Hvanndal frá Lyfjastofnun.

Nefndin samþykkti, með vísan til 51. gr. þingskapa, að óska eftir minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti þar sem fram komi viðbrögð við þeim umsögnum sem borist hafa um málið.

4) 118. mál - sjúkratryggingar Kl. 09:33
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og að Kristján Þórður Snæbjarnarson verði framsögumaður þess.

5) Önnur mál Kl. 10:25
Ingibjörg Isaksen og Rósa Guðbjartsdóttir óskuðu eftir því að nefndin stofnaði frumkvæðismál, sbr. 1. mgr. 26. gr. þingskapa, um málefni barna með fjölþættan vanda. Nefndin ræddi tillöguna.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:40