9. fundur
velferðarnefndar á 156. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, mánudaginn 24. mars 2025 kl. 09:30


Mætt:

Kristján Þórður Snæbjarnarson (KÞS) 1. varaformaður, kl. 09:30
Sigríður Á. Andersen (SÁA) 2. varaformaður, kl. 09:45
Ingibjörg Isaksen (IIsak), kl. 09:30
Jón Gnarr (JGnarr), kl. 09:30
Jónína Björk Óskarsdóttir (JBÓ), kl. 09:30
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (KÁB) fyrir Guðmund Inga Kristinsson (GIK), kl. 10:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:30
Ragna Sigurðardóttir (RagnaS), kl. 09:30
Rósa Guðbjartsdóttir (RGuðb), kl. 09:30

Nefndarritari: Brynjar Páll Jóhannesson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerðir 8. og 9. fundar voru samþykktar.

2) 118. mál - sjúkratryggingar Kl. 09:39
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigurð Helgason, Berglindi Ýr Karlsdóttur og Elsu Gísladóttur frá Sjúkratryggingum Íslands.
Þá komu á fund nefndarinnar Ísak Einar Rúnarsson og Lilja Hrund Lúðvíksdóttir frá Samtökum atvinnulífsins.

3) 2. mál - landlæknir og lýðheilsa o.fl. Kl. 10:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðríði Bolladóttur og Sigurð Kára Árnason frá heilbrigðisráðuneyti.

4) 148. mál - þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu Kl. 10:41
Nefndin fjallaði um málið. Á fund nefndarinnar mættu Rósa María Hjörvar frá ÖBÍ réttindasamtökum, Kristinn Halldór Einarsson frá Blindrafélaginu og Elfa Svanhildur Hermannsdóttir og Sigríður Dísa Gunnarsdóttir frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnaskerðingu.

Nefndin samþykkti að Jónína Björk Óskarsdóttir verði framsögumaður málsins.

5) 187. mál - samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks Kl. 10:51
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti.
Ákvörðun um framsögumann var frestað.

6) 143. mál - endurskoðun á reglum um endurgreiðslu ferðakostnaðar sjúklinga Kl. 13:40
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti og að Ingibjörg Isaksen verði framsögumaður þess.

7) Önnur mál Kl. 10:55
Nefndin ræddi starfið fram undan.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:58