24. fundur
velferðarnefndar á 156. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, miðvikudaginn 21. maí 2025
kl. 09:00
Mætt:
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (KÁB) formaður, kl. 09:00Kristján Þórður Snæbjarnarson (KÞS) 1. varaformaður, kl. 09:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA) 2. varaformaður, kl. 09:00
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS), kl. 09:00
Ingibjörg Isaksen (IIsak), kl. 09:00
Karólína Helga Símonardóttir (KHS) fyrir Jón Gnarr (JGnarr), kl. 09:00
Rósa Guðbjartsdóttir (RGuðb), kl. 09:00
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (SSB), kl. 09:00
Grétar Mar Jónsson var fjarverandi.
Nefndarritarar:
Brynjar Páll Jóhannesson
Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.
2) 258. mál - sjúkraskrár Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ingibjörgu K. Þorsteinsdóttur frá Sjúkratryggingum Íslands, Benedikt S. Benediktsson frá Samtökum heilbrigðisfyrirtækja, Rebekku Rán Samper frá Persónuvernd, Ingibjörgu Lárusdóttur frá embætti landlæknis og Maríu Heimisdóttur landlækni.
Nefndin samþykkti að Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir yrði framsögumaður málsins.
3) 257. mál - lyfjalög o.fl. Kl. 11:00
Nefndin samþykkti að Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir yrði framsögumaður málsins.
4) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:00