23. fundur
velferðarnefndar á 157. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, mánudaginn 8. desember 2025
kl. 09:00
Mætt:
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (KÁB) formaður, kl. 09:00Kristján Þórður Snæbjarnarson (KÞS) 1. varaformaður, kl. 09:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA) 2. varaformaður, kl. 09:08
Grímur Grímsson (GrímG), kl. 09:00
Ingibjörg Isaksen (IIsak), kl. 09:06
Jónína Björk Óskarsdóttir (JBÓ), kl. 09:00
Rósa Guðbjartsdóttir (RGuðb), kl. 09:00
Sigurður Örn Hilmarsson (SÖH), kl. 09:03
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (SSB), kl. 09:00
Sigríður Á. Andersen vék af fundi milli kl. 10:24-10:58 og vék síðan af fundi kl. 11:20.
Ingibjörg Isaksen vék af fundi kl. 11:16.
Nefndarritari: Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið var frestað.
2) 286. mál - fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi Kl. 09:01
Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum. Að nefndaráliti standa Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Grímur Grímsson, Ingibjörg Isaksen, Jónína Björk Óskarsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Rósa Guðbjartsdóttir, Sigríður Á. Andersen, Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.
Ingibjörg Isaksen, Sigríður Á. Andersen og Sigurður Örn Hilmarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið skv. heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
3) 306. mál - húsnæðismál Kl. 09:02
Tillaga um að Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt. Nefndin staðfesti umsagnarbeiðni sem send var út með fresti til 12. desember með vísan til ákvörðunar á 22. nefndarfundi 157. löggjafarþings, sbr. 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.
Á fund nefndarinnar mættu Hildur Dungal og Lísa Margrét Sigurðardóttir frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti og Elmar Erlendsson frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Gunnar Alexander Ólafsson, Kjartan Þór Ingason og Sigurð Árnason frá ÖBÍ réttindasamtökum. Samhliða var fjallað um dagskrárlið nr. 4.
Þá komu á fund nefndarinnar Lísbet Sigurðardóttir og Ragnar Sigurður Kristjánsson frá Viðskiptaráði Íslands og Jóhanna Klara Stefánsdóttir frá Samtökum iðnaðarins.
Þá komu á fund nefndarinnar Sigfús Ingi Sigfússon og Einar E. Einarsson frá sveitarfélaginu Skagafirði.
Loks komu á fund nefndarinnar Guðmundur Ásgeirsson og Guðrún Bryndís Harðardóttir frá Hagsmunasamtökum heimilanna.
Minni hluti velferðarnefndar, Ingibjörg Isaksen, Rósa Guðbjartsdóttir, Sigríður Á. Andersen og Sigurður Örn Hilmarsson, lagði fram eftirfarandi bókun:
Minni hluti velferðarnefndar gagnrýnir vinnubrögð velferðarnefndar við meðferð málsins sem eru illsamrýmanleg hlutverki fastanefnda Alþingis við lagasetningu. Ráðherra mælti fyrir málinu föstudaginn 5. desember kl. 19.46 og gekk málið til velferðarnefndar sama dag. Í kjölfarið virðist meiri hluti velferðarnefndar hafa ákveðið að veita umsagnaraðilum frest til 12. desember til að skila athugasemdum sínum en hefja hins vegar gestakomur fyrir nefndinni strax að morgni mánudagsins 8. desember. Eðli málsins samkvæmt bitnar þetta verklag á möguleikum nefndarmanna til að rækja hlutverk sitt þegar umsagnaraðilar hafa ekki fengið nægan tíma til að rýna málið né heldur að skila umsögn. Þetta er sérstaklega óheppilegt þar sem drög að frumvarpinu voru ekki lögð fram til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Áskilinn er réttur til að óska þess að einstaka umsagnaraðilar komi aftur fyrir nefndina þegar þeir hafa skilað umsögnum sínum og nefndarmönnum hefur gefist færi á að kynna sér efni þeirra.
Meiri hluti velferðarnefndar, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Grímur Grímsson, Jónína Björk Óskarsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, lagði fram eftirfarandi bókun: Meiri hlutinn telur að það sé vert að reyna að ljúka málinu fyrir jól þar sem verið er að útvíkka úrræðið til að tryggja að fleiri íbúðir verði byggðar inn í kerfið. Verið er að hjálpa fleirum af leigumarkaði í eigið húsnæði.
4) 269. mál - almannatryggingar og heilbrigðisþjónusta Kl. 09:42
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þórey S. Þórðardóttir frá Landssamtökum lífeyrissjóða, Oddnýju Árnadóttur og Björn Snæbjörnsson frá Landssambandi eldri borgara og Sigurð Ágúst Sigurðsson frá félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.
Þá komu á fund nefndarinnar Gunnar Alexander Ólafsson, Kjartan Þór Ingason og Sigurður Árnason frá ÖBÍ réttindasamtökum. Samhliða var fjallað um dagskrárlið nr. 3.
Nefndin samþykkti með vísan til 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu vegna umsagna sem hafa borist um málið.
5) Önnur mál Kl. 10:31
Nefndin ræddi starfið framundan. Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:43