37. fundur
velferðarnefndar á 157. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, mánudaginn 2. febrúar 2026
kl. 09:30
Mætt:
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (KÁB) formaður, kl. 09:30Kristján Þórður Snæbjarnarson (KÞS) 1. varaformaður, kl. 09:30
Sigríður Á. Andersen (SÁA) 2. varaformaður, kl. 09:57
Grímur Grímsson (GrímG), kl. 09:30
Ingibjörg Isaksen (IIsak), kl. 09:57
Rósa Guðbjartsdóttir (RGuðb), kl. 09:30
Sigurður Örn Hilmarsson (SÖH), kl. 09:33
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (SSB), kl. 09:30
Þóra Gunnlaug Briem (ÞGB), kl. 09:30
Nefndarritarar:
Katrín Sól Gunnarsdóttir
Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 35. og 36. fundar voru samþykktar.
2) 238. mál - brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð Kl. 09:33
Tillaga formanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum. Að nefndaráliti meiri hluta standa Kolbrún Áslaugar Benediktsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Grímur Grímsson, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir og Þóra Gunnlaug Briem.
Sigríður Á. Andersen og Ingibjörg Isaksen voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
3) 305. mál - framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn Kl. 09:35
Tillaga um að Grímur Grímsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.
4) 312. mál - atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir Kl. 09:35
Tillaga um að Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.
5) 311. mál - réttindavernd fatlaðs fólks Kl. 09:35
Tillaga um að Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.
6) 328. mál - sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir Kl. 09:35
Tillaga um að Kristján Þórður Snæbjarnarson verði framsögumaður málsins var samþykkt.
7) 301. mál - lækningatæki Kl. 09:46
Á fund nefndarinnar mættu Guðríður Bolladóttir og Ingibjörg Björnsdóttir frá heilbrigðisráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Tillaga um að Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.
8) 319. mál - réttindi sjúklinga Kl. 10:05
Á fund nefndarinnar mættu Guðríður Bolladóttir og Sigurður Kári Árnason frá heilbrigðisráðuneyti. Gestir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Tillaga um að Grímur Grímsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.
9) Önnur mál Kl. 10:49
Nefndin fjallaði um starfið framundan.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:52