103. fundur
velferðarnefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 10. október 2016 kl. 12:00


Mættir:

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (SII) formaður, kl. 12:09
Elsa Lára Arnardóttir (ELA) 1. varaformaður, kl. 12:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 12:00
Guðmundur Steingrímsson (GStein) fyrir Pál Val Björnsson (PVB), kl. 12:00
Halldóra Mogensen (HallM) fyrir Helga Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 12:00
Óli Björn Kárason (ÓBK) fyrir Ragnheiði Ríkharðsdóttur (RR), kl. 12:00
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 12:00
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 12:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) fyrir Steingrím J. Sigfússon (SJS), kl. 12:00
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 12:00

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir vék af fundi kl. 12:42.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 12:00
Fundargerð samþykkt.

2) 857. mál - almannatryggingar o.fl. Kl. 12:00
Á fund nefndarinnar mættu Ellen Calmon og Sigríður Hanna Ingólfsdóttir frá Öryrkjabandalagi Íslands, Árni Múlí Jónasson og Bryndís Snæbjörnsdóttir frá Landssamtökunum Þroskahjálp, Ástbjörn Egilsson, Haukur Ingibergsson og Sigríður J. Guðmundsdóttir frá Landssambandi eldri borgara, Erna Indriðadóttir og Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og Henný Hinz og Sigurður Bessason frá Alþýðusambandi Íslands. Fóru þau yfir sjónarmið um málið ásamt því að svara spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 13:03
Fleira var ekki gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 13:03