Breytingar á starfsáætlun

27.4.2026

Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar 27. apríl um breytingar á starfsáætlun.

Samkvæmt starfsáætlun Alþingis eru mánudagurinn 18. maí og þriðjudagurinn 19. maí þingfundadagar. Nú hefur hinsvegar verið ákveðið að hafa nefndadaga báða þá daga. Miðvikudagurinn 20. maí er og verður þingfundadagur. Samkvæmt starfsáætlun eru fimmtudagurinn 21. maí og föstudagurinn 22. maí nefndadagar. Nú hefur verið ákveðið að hafa þingfundi báða þá daga.