Tilnefningar til heiðurslauna listamanna
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hefur til umfjöllunar veitingu heiðurslauna listamanna á grundvelli laga um heiðurslaun listamanna, nr. 66/2012.
Þeir einir geta notið heiðurslauna sem hafa varið starfsævi sinni eða verulegum hluta hennar til liststarfa eða skarað fram úr við listsköpun sína eða ef störf þeirra að listum hafa skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóðavettvangi.
Nefndin tekur tillit til skiptingar í hópi heiðurslaunamanna eftir listgreinum og kyni.
Tekið er á móti tilnefningum til miðnættis 2. desember nk. á sérstöku eyðublaði sem nálgast má hér.