Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 673. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1026 — 673. mál.
um lækkun skatta á eftirlaun og ellilífeyri.
Kristján L. Möller, Lúðvík Bergvinsson, Guðrún Ögmundsdóttir,
Ásta R. Jóhannesdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að setja á fót starfshóp skipaðan m.a. fulltrúum hagsmunaaðila, sérfræðingum í skattamálum og fulltrúum stjórnmálaflokkanna sem taki saman upplýsingar um skattlagningu eftirlauna og ellilífeyris hér á landi og í nágrannalöndum og marki stefnu í þessum málum með það að markmiði að skattur á eftirlaun og ellilífeyri verði sanngjarn og sem næst sköttum á fjármagnstekjur.
Starfshópurinn skili niðurstöðum fyrir 1. maí 2006.
Færa má rök fyrir því að afar óeðlilegt sé og ranglátt að skattur á eftirlaun og ellilífeyri sé 37,58% eins og nú er þegar tekjuskattur er 24,75% og útsvar gjarnan 12,83%. Í raun má halda því fram að um sé að ræða tvísköttun eða jafnvel þrísköttun. Fyrst er greiddur fullur skattur þegar launin eru greidd, síðan fá menn eftirlaun sem eru skattlögð að fullu og þegar einstaklingurinn verður 67 ára eru greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins skertar miðað við eftirlaunin. Eðlilegra væri að skattur á eftirlaun og ellilífeyri væri svipaður því sem gerist um skattlagningu fjármagnstekna, eða um 10%.
Landssamband eldri borgara og félög eldri borgara um allt land hafa barist fyrir þessari leiðréttingu í langan tíma. Samfylkingarfélögin 60+, sem er félagsskapur jafnaðarmanna 60 ára og eldri, hafa að sjálfsögðu tekið undir þessar kröfur eldri borgara. Nú er svo komið að Landssamband eldri borgara á í málaferlum vegna skilningsleysis ríkisvaldsins á þessu máli.
Alþingi ber skylda til að beita sér í þessu réttlætismáli eldri borgara og sýna þeim þann sóma að afnema þessa tvísköttun á tekjur eldra fólks og lækka skatt á eftirlaun og ellilífeyri þeim til hagsbóta. Með því væri þessu fólki gert betur kleift að lifa lífinu með reisn og því sýnt þakklæti fyrir það þjóðfélag sem það hefur skilað til næstu kynslóðar.
Þess vegna er þingsályktunartillaga þessi flutt.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1026 — 673. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um lækkun skatta á eftirlaun og ellilífeyri.
Flm.: Össur Skarphéðinsson, Guðmundur Árni Stefánsson,
Kristján L. Möller, Lúðvík Bergvinsson, Guðrún Ögmundsdóttir,
Ásta R. Jóhannesdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að setja á fót starfshóp skipaðan m.a. fulltrúum hagsmunaaðila, sérfræðingum í skattamálum og fulltrúum stjórnmálaflokkanna sem taki saman upplýsingar um skattlagningu eftirlauna og ellilífeyris hér á landi og í nágrannalöndum og marki stefnu í þessum málum með það að markmiði að skattur á eftirlaun og ellilífeyri verði sanngjarn og sem næst sköttum á fjármagnstekjur.
Starfshópurinn skili niðurstöðum fyrir 1. maí 2006.
Greinargerð.