Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 622. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1168 — 622. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Ágústs Ólafs Ágústssonar um sumarbústaði í eigu ríkisins o.fl.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hve margir sumarbústaðir eru í eigu ráðuneyta, undirstofnana þeirra, fyrirtækja í eigu ríkisins, stofnana og sjálfstæðra stofnana í eigu ríkisins eða starfsmannafélaga þeirra? Hvar eru þeir, hvernig er notkun slíkra bústaða háttað og hvaða reglur gilda um notkun þeirra? Óskað er eftir sundurliðuðum svörum.
Fjármálaráðuneytið leitaði svara við fyrirspurninni hjá öllum ráðuneytum og fylgja svör þeirra hér á eftir.
Óskað var upplýsinga um ríkisfyrirtæki og ríkisstofnanir í A–D hluta fjárlaga, auk starfsmannafélaga slíkra stofnana og ríkisfyrirtækja, enda hefði fjármunum ríkisins að einhverju marki verið ráðstafað til kaupanna.
Forsætisráðuneytið.
Í Þingvallabænum er ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum. Þar er aðstaða fyrir móttökur á
vegum forsætisráðherra, auk þess sem gistiaðstaða er þar fyrir ráðherrann og gesti á hans vegum.
Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands og Starfsmannafélag Seðlabanka Íslands eiga til samans sjö orlofshús. Eitt þeirra er formlega skráð eign bankans en hin starfsmannafélagsins. Húsin eru á eftirtöldum stöðum: Á Álftatanga í Grímsnesi, við Þingvallavatn, í grennd við Laugarvatn, í Holtsdal á Síðu (tvö hús), á Skriðudal og á Akureyri. Orlofshúsið á Álftatanga nýtist einnig fyrir minni fundi.
Sömu reglur gilda um notkun allra orlofshúsanna. Þau eru eingöngu ætluð starfsmönnum og eftirlaunaþegum Seðlabankans og gestum þeirra. Óheimilt er að framselja þessi réttindi til annarra. Úthlutun allra orlofshúsanna er alfarið á vegum starfsmannafélagsins á grundvelli þar til gerðs stigakerfis. Fjögur húsanna eru notuð árið um kring. Úthlutunartímabil eru þrjú, júní–september, október–desember og janúar-maí.
Menntamálaráðuneytið.
Menntamálaráðuneytið sendi fyrirspurnina til stofnana á stjórnsýslusviði ráðuneytisins. Svör hafa borist frá meginþorra stofnana. Fram kom hjá öllum stofnunum sem svöruðu fyrirspurninni, öðrum en Háskóla Íslands, að sumarbústaðir væru ekki í þeirra eigu. Þar sem sumarbústaðir tengdust stofnunum væru þeir í eigu og reknir af starfsmannafélögum svo sem
kennarafélögum og starfsmannafélagi RÚV. Húsnæði á vegum ráðuneytisins, svo sem kennaraíbúðir, er yfirleitt í langtímaleigu til einstaklinga eða stofnana. Þá hefur húsnæði í tveimur tilvikum verið nýtt sem fræðimannaaíbúðir með skammtímaútleigu og enn fremur var fyrrum starfsmannaíbúð leigð í tilraunaskyni til starfsmannafélags menntamálaráðuneytisins. Starfsmannafálagið greiðir leigu og sér um allan rekstur og viðhald húsnæðisins.
Háskóli Íslands.
Hugtakið „sumarbústaður“ er svolítið þokukennt en sennilega falla bæði húsin á Halldórsstöðum og í Herdísarvík undir það sem við er átt í fyrirspurninni, enda var umsjón þeirra til skamms tíma falin Félagi háskólakennara sem notaði þau sem orlofshús. Gestaíbúðir falla hins vegar klárlega utan við fyrirspurnina. Í dag eru bæði húsin á forræði Háskólans, en segja má að almenna reglan varðandi notkun þeirra sé að starfsmenn skólans geti fengið húsin til skemmri dvalar á sumrum, enda stangist það ekki á við önnur not.
Utanríkisráðuneytið.
Engir sumarbústaðir eru í eigu utanríkisráðuneytisns.
Landbúnaðarráðuneyti.
1. Litla-Skarð í Borgarfirði er jörð í umsjá Skógræktar ríkisins. Fyrir um 15 árum síðan, á árunum 1988–1991, var fyrrum vélaskúr gerður upp af Skógrækt ríkisins og landbúnaðarráðuneytinu. Mikið var og er unnið við bústaðinn í sjálfboðavinnu. Hann hefur verið leigður starfsfólki Skógræktar ríkisins og landbúnaðaráðuneytisins eina viku í senn yfir sumartímann eða skemur yfir vetrarmánuðina. Sömuleiðis er hann leigður skógræktar- og landgræðslufólki, starfsfólki annarra opinberra stofnana og einstaklingum. Þá hefur aðstaðan verið nýtt sem afdrep fyrir vinnufundi. Engin föst umsjón er með umgengni leigjenda en þeim treyst til að ganga snyrtilega um. Leigugjald fyrir eina viku er 9.000 kr.
2. Skógarkot í Norðtunguskógi er gamalt starfsmannahús í eigu Skógræktar ríkisins en hefur verið leigt Félagi íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) allt árið sem leigir það út til sinna
félagsmanna.
Dómsmálaráðuneyti.
Dómsmálaráðuneytið og stofnanir þess eiga ekki sumarhús.
Fjögur sumarhús eru í eigu starfsmannafélags Landhelgisgæslu Íslands. Sumarhúsin eru staðsett í Djúpafirði og starfsmannafélagið úthlutar vikudvöl sem miðast við aðild að félaginu og starfsaldur hjá Landshelgisgæslunni.
Ekki hefur verið leitað eftir upplýsingum hjá stéttarfélögum þeirra starfsmanna sem starfa hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og stofnunum þess.
Sjávarútvegsráðuneyti.
Enginn sumarbústaður er eigu sjávarútvegsráðuneytis né stofnana þess.
Félagsmálaráðuneyti.
Félagsmálaráðuneytið á ekki sumarbústað og einungis ein stofnum sem heyrir undir ráðuneytið á slíka eign. Íbúðalánasjóður á einn sumarbústað sem hann yfirtók frá Húsnæðisstofnum ríkisins þegar sjóðurinn tók til starfa og Húsnæðisstofnun var jafnframt lög niður. Hefur ráðuneytið aflað upplýsinga frá Íbúðalánasjóði í samræmi við fyrirsprunina og fara svör sjóðsins hér á eftir.
Íbúðalánasjóður.
Um er að ræða bústaðinn Tintu, sem stendur í landi Kambs, lóð nr. 3, í Rangárþingi ytra. Nánar tiltekið stendur bústaðurinn rétt austan við Þjórsá, við vatn sem sumir kalla Vestra Gíslholtsvatn en aðrir kalla Herríðarhólsvatn.
Á árinu 2000 var rekstur bústaðarins settur í fast form hjá sjóðnun. Þá var skipuð sérstök nefnd til að hafa umsjón með bústaðnum og notkun hans. Nefnd þessi er skipuð tveimur aðilum sem starfsmannafélag sjóðsins tilnefnir og tveimur aðilum sem framkvæmdastjóri tilnefnir. Nefndin sér um rekstur bústaðarins og útleigu hans. Jafnframt sér bóndinn á Kambi um að líta til með bústaðnum þegar enginn er í honum. Bústaðurinn er einungis hafður til afnota fyrir starfsmenn sjóðsins og stjórnarmenn hans og í einu eða tveimur undantekningartilfellum hafa starfsmenn félagsmálaráðuneytisins fengið afnot af honum ef hann hefur á sama tíma ekki verið bókaður af starfsmönnum sjóðsins eða stjórnarmönnum.
Í gildi eru ákveðnar reglur um það hverjir fá bústaðinn hverju sinni. Reglur þessar byggjast á því að starfsmenn ávinna sér ákveðna punkta eftir því hversu lengi þeir hafa unnið og síðan veldur hver úthlutun á bústaðnum frádrætti frá þessum punktum. Gildir þetta fyrir úthlutun bústaðarins að sumri til en á veturna gildir reglan að fyrstir koma fyrstir fá nema þegar um vinsælustu helgarnar er að ræða, þ.e. þegar frídagar lengja helgina. Þær helgar eru auglýstar sérstaklega og þá er úthlutað eftir punktafjölda starfsmanna en sú úthlutun felur ekki í sér frádrátt.
Þegar Íbúðalánasjóður tók starfa var stór hluti starfsmanna hans nýr og vissi ekki af tilvist
bústaðarins. Nýting hans var því ekki eins góð og kosið hefði verið á árinu 1999 og var því ákveðið að setja rekstur hans í fast form með skipan nefndarinnar. Lá fyrir á þeim tíma að ef bústaðurinn yrði ekki notaður kæmi til greina að skoða hugsanlega sölu hans. Síðan þá hefur nýting bústaðarins verið mjög góð. Bústaðurinn er í útleigu allt sumarið og langflestar helgar á veturna. Það er sérstaklega í desember og fram eftir janúar sem bústaðurinn er ekki í notkun. Aðrar helgar vetrar og allar vikur sumars er bústaðurinn nýttur.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
Ráðuneytið upplýsir hér með að engir sumarbústaðir eru í eigu þess eða undirstofnana þess að frátöldum sumarbústöðum í eigu Landspítala – háskólasjúkrahúss og starfsmannaráðs spítalans. Svar Landspítala – háskólasjúkrahúss um sumarbústaði í eigu spítalans og starfsmannaráðs þess, staðsetningu þeirra ásamt með reglum um útleigu bústaðanna er eftirfarandi:
Landspítali – háskólasjúkrahús.
Í eigu Landspítala – háskólasjúkrahúss og starfsmannaráðs LSH eru sjö sumarbústaðir og tvö hús á Akureyri með samtals sjö íbúðum:
2 sumarbústaðir í landi Haga í Skorradal,
1 sumarbústaður í Úthlíð í Biskupstungum,
3 sumarbústaðir í Heiðarbyggð í nágrenni Flúða,
1 sumarbústaður í landi Hæðargarðs nærri Kirkjubæjarklaustri,
2 hæða hús að Hrafnagilsstræti 23, Akureyri, með 4 íbúðum,
2 hæða hús að Hrafnagilsstræti 26, Akureyri, með 3 íbúðum.
Orlofsbústaðirnir eru leigðir út að öllu jöfnu um helgar frá hausti og fram á vor, en þá tekur við vikuleiga yfir sumartímann. Hægt er að leigja í allt að viku ef þess er óskað yfir vetrartímann. Stofnaður var orlofsbústaðasjóður sem þeir starfsmenn sem þess óska geta greitt í. Greiddar eru 250 kr. á mánuði sem dregið er af launum og er þessi sjóður ætlaður til viðhalds og uppbyggingar á orlofshúsum starfsmannaráðs. Einn punktur fæst fyrir hvern greiddan mánuð og yfir sumartímann og um páska er úthlutað samkvæmt punktakerfinu. Á öðrum tímum er bókað í húsin gegnum síma og gildir þá reglan, fyrstur hringir fyrstur fær, hafa þá allir tækifæri en utanfélagsmenn greiða 75% hærra gjald.
Fjármálaráðuneyti.
Engir sumarbústaðir eru í eigu ráðuneytisins og samkvæmt upplýsingum frá stofnunum þess eru heldur engir sumarbústaðir þeirra eigu.
Samgönguráðuneyti.
Ráðuneytið hefur aflað upplýsinga hjá þeim stofnunum og fyrirtækjum sem heyra undir það og vill af því tilefni koma því á framfæri að í tveimur tilvikum hafa starfsmannafélög stofnana ráðuneytisins yfir að ráða sumarbústöðum, þ.e. Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar.
Vegagerðin.
Samtök starfsmannafélaga Vegagerðarinnar eiga alls níu sumarbústaði sem staðsettir eru á eftirtöldum stöðum:
Við Kirkjubæjarklaustur – 1 bústaður,
í Biskupstungum – 1 bústaður,
við Meðalfellsvatn í Hvalfirði – 1 bústaður,
í Borgarfirði – 2 bústaðir,
við Ísafjörð – 1 bústaður,
í Skagafirði – 1 bústaður,
í Fnjóskadal – 1 bústaður.
á Fljótsdalshéraði – 1 bústaður.
Notkun bústaðanna er þannig háttað að á sumrin er starfsmönnum úthlutað vikum eftir ákveðnum úthlutunarreglum en á öðrum tímum ársins gildir sú regla að sá sem fyrstur sækir um fær úthlutað.
Um notkun þeirra gilda eftirfarandi reglur:
1. Tímabil sem úthlutað er til starfsmanna Vegagerðarinnar er ákveðinn af orlofshúsanefnd og auglýst í fréttabréfi. Að öllu jöfnu miðast það við tímabilið júní til og með ágúst.
2. Úthlutun utan þessa tímabils er í höndum umsjónarmanna með orlofshúsum, einnig ef vikur eru lausar (ekki sótt um) eða losna á tímabili sem auglýst er.
3. Úthlutun til starfsmanna ræðst af punktaeign en starfsmaður vinnur sér inn 12 punkta á ári miðað við heilsársstarf. Fimmtíu prósent starfshlutfall eða meira gefur 12 punkta á ári, lægra starfshlutfall 6 punkta. Við gildistöku reglna þessara skal uppfæra punktaeign starfsmanna. Taka skal tillit til úthlutana sl. fjögur ár þannig að hafi starfsmaður fengið úthlutað á þeim tíma byrjar hann að vinna sér inn punkta frá þeim tíma. Starfsmenn sem hætt hafa störfum sökum aldurs njóta sömu réttinda og aðrir. Makar fráfallinna starfsmanna njóta einnig réttinda sem aðrir.
4. Úthlutuð vika á auglýstu tímabili kostar 24 punkta.
5. Starfsmaður getur farið í mínus punkta ef hann sækir um og fær viku, t.d. ef hann sækir einn um án samkeppni og punktastaða hans er 0 þá fær hann úthlutað og skráist með 24 punkta í mínus.
6. Úthlutanir sem umsjónarmenn sjá um, þ.e. lausar vikur og úthlutanir utan auglýsts tíma, skerða ekki punktaeign.
7. Sæki starfsmaður um ákveðinn eða ákveðna bústaði en fær ekki skráist hann á biðlista í viðkomandi húsum. Losni vika skal hafa samband við viðkomandi áður en viku er úthlutað. Punktaeign ræður röð.
8. Starfsmaður velur bústaði og vikur með því að númera þá staði sem hann óskar eftir að komast á. 1, 2, o.s.frv. Hámark er að sækja um á þrjá staði og þrjár vikur.
9. Starfsmenn geta sótt um viku í báða bústaði í Sauðhússkógi ef um sérstök tilefni er að ræða, svo sem stórafmæli starfsmanns eða maka. Að öllu jöfnu skal taka slíkt fram yfir aðrar umsóknir þótt punktaeign sé ekki fyrir hendi. Starfsmaður skal gera grein fyrir ástæðu í umsókn. Úthlutun sem þessi kostar 24 punkta þó að um tvo bústaði sé að ræða. Sæki tveir eða fleiri um sömu viku ræður punktaeign.
10. Heimilt er að sækja um báða bústaði í Sauðhússkógi án þess að um sérstakt tilefni sé að ræða en þá skal einungis úthluta báðum húsum sé viðbótarhús laust, þ.e. að ekki liggi fyrir umsókn í það.
11. Nýti starfsmaður ekki viku sem hann hefur fengið úthlutaða greiðir hann samt fyrir hana með punktum.
Siglingastofnun.
Starfsmannafélag Siglingastofnunar á eitt sumarhús. Það er staðsett að Malarrifi í Snæfellsbæ.
Notkun þess er þannig háttað að starfsmönnum er úthlutað dvalartími eftir ákveðnum úthlutunarreglum.
Um notkun þess gilda reglur sem starfsmannafélagið setur.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
Engir sumarbústaðir eru í eigu eftirtaldra stofnana eða starfsmannafélaga þeirra: Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar, Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins, Einkaleyfastofunnar, Fjármálaeftirlitsins, Samkeppnisstofnunar, Löggildingarstofu og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Engir bústaðir eru í eigu ráðuneytanna.
Sameiginlegt starfsmannafélag Orkustofnunar og Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) á og rekur bústaðinn Ossbæ í Reykjaskógi. Leigutekjur standa að mestu undir rekstri bústaðarins, en það litla sem upp á vantar er greitt af starfsmannafélaginu, af framlagi starfsmanna.
Eftirfarandi bústaðir eru í eigu Rariks.
Í landi Berglands í Fljótum, Skagafirði. Um er að ræða eyðibýli, áður í eigu Skeiðsfossvirkjunar vegna vatnsréttinda í Fljótaá. Húsið hefur verið notað sem vinnubúðir vegna Skeiðsfossvirkjunar en þar fyrir utan lánað starfsmannafélagi Rariks til útleigu með sama hætti og aðrir bústaðir starfsmannafélagsins.
Við Láxárvirkjun í Suður-Þingeyjarsýslu. Notkun er stýrt frá Akureyri og er starfsmönnum í flestum tilvikum heimil notkun hans. Hús þetta er fyrrum húsnæði starfsmanns klakstöðvar við virkjunina.
Í landi Fjarðarselsvirkjunar í Seyðisfirði. Notkun er stýrt frá Egilsstöðum og er starfsmönnum í flestum tilvikum heimil notkun hans. Hús þetta er fyrrum húsnæði vélstjóra við virkjunina.
Í landi Ásgarðs í Grímsnesi. Notkun fyrir gesti, stjórn og stjórnendur Rariks. Í nokkrum
tilfellum hefur þessi bústaður verið notaður fyrir fámenna fundi og hópvinnufundi. Einnig fyrir tímabundna gistingu starfsmanna annarra svæða við verkefni á Suðurlandi.
Eftirfarandi bústaðir eru í eigu RAFs, starfsmannafélags Rariks. Eru þeir leigðir út eftir tilteknum úthlutunarreglum:
Flatey á Breiðafirði,
við Birkilind í Eyjólfsstaðaskógi, Fljótsdalshéraði,
í landi Hrífuness, Skaftárhreppi,
við Flekkudalsveg í Kjósarhreppi.
Umhverfisráðuneyti.
Engir sumarbústaðir eru í eigu umhverfisráðuneytisins eða undirstofnana þess.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1168 — 622. mál.
Svar

Úthlutunarreglur sumarhúsa orlofshúsanefndar.