Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 750. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1236  —  750. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Láru Stefánsdóttur um örbylgjusamband við Raufarhöfn.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvað líður nýju örbylgjusambandi milli Snartarstaðanúps og Raufarhafnar og hvernig er ætlunin að nýta það?

    Samkvæmt upplýsingum frá Símanum var á síðasta ári lagður ljósleiðarastrengur frá Kópaskeri upp á Snartarstaðanúp. Í framhaldi af honum á að vera örbylgjusamband til Raufarhafnar og er reiknað með að það verði tekið í notkun í næsta mánuði.
    Þetta samband þjónar fyrst og fremst þeim tilgangi að vera öryggissamband fyrir Raufarhöfn og Kópasker. Fjarskiptasamband við Raufarhöfn hefur verið eingöngu um örbylgju frá Viðarfjalli þannig að bilun á því hefur getað valdið sambandsleysi.
    Með þessu opnast ný leið fyrir sambönd til Raufarhafnar um Kópasker og þaðan til Húsavíkur en samband milli þeirra staða var stækkað í þeim tilgangi. Kópasker mun á sama hátt geta nýtt samband til Raufarhafnar sem varasamband.