Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 329. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 367  —  329. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um nýtingu grásleppu.

Flm.: Gísli S. Einarsson, Jón Gunnarsson,


Anna Kristín Gunnarsdóttir, Össur Skarphéðinsson.


    Alþingi ályktar að fela sjávarútvegsráðherra að skipa nefnd sem kanni á hvern hátt unnt er að vinna frekari afurðir úr grásleppu.

Greinargerð.


    Það er staðreynd að nánast eina afurðin sem er nýtt úr grásleppu eru hrognin. Annar hluti grásleppunnar er ekki nýttur að marki.
    Mjög æskilegt er að gera úttekt á þeim rannsóknum sem til eru um grásleppu. Niðurstöðurnar þarf svo að meta með tilliti til þess hvort hér sé á ferðinni vannýtt hráefni sem markaður er fyrir. Þá kæmi einnig í ljós hvort ný þekking kalli á frekari rannsóknir. Má í því sambandi horfa jafnt til matvælaiðnaðar sem lyfjagerðar.
    Þegar tekið er meðaltal af veiðum sl. 10 ára hafa 1.000 tonn af grásleppuhrognum verið nýtt árlega til kavíarframleiðslu. Þannig má áætla að yfir 3.000 tonn af grásleppu falli til ár hvert. Hingað til hefur hafið tekið við því sem ekki hefur verið nýtt, en markmiðið með tillögu þessari er að breyta því þannig að hráefnið nýtist til verðmæta.
    Í 2. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, segir að skylt sé „að hirða og landa öllum afla sem kemur í veiðarfæri fiskiskipa. Ráðherra getur með reglugerð ákveðið að sleppa skuli lifandi afla sem er undir tiltekinni lengd eða þyngd eða fæst í ákveðin veiðarfæri. Þá getur ráðherra með reglugerð ákveðið að heimilt sé að varpa fyrir borð verðlausum fiski og innyflum, hausum og öðru því sem til fellur við verkun eða vinnslu um borð í veiðiskipum.“
    Með tillögu þessari er leitast við að fara nær því markmiði sem téðum lögum er ætlað að ná. Með henni er einnig ætlunin að gerð verði verðmæti úr hráefni sem ekkert hefur verið hirt um, þ.e. að bæta umgengni um auðlindina. Það hlýtur að vera skylda stjórnvalda að nýta auðlindir Íslands eins vel og unnt er. Ekki þarf heldur að efast um að sjómenn vilja leggja sitt af mörkum við það verkefni sem hér er gerð tillaga um.