Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 260. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 417 — 260. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Jóns Gunnarssonar um vegaskrá.
1. Hversu margir vegir hafa verið teknir af vegaskrá á tímabilinu 1980–2004? Hvað heita þessir vegir og hver er lengd þeirra? Hvernig skiptast þeir milli sveitarfélaga og kjördæma?
Vegaskrá er aðeins breytt af Alþingi samhliða endurskoðun samgönguáætlunar, áður vegáætlunar. Slík endurskoðun fór ekki fram árið 1980 og hefur ekki heldur farið fram á yfirstandandi ári. Því verður hér miðað við tímabilið 1981–2003. Á því tímabili hefur alls 41 tengivegur verið felldur af vegaskrá, samtals um 200 km. Af þeim hafa um 129 km orðið að safnvegum eða landsvegum en 71 km hefur fallið alfarið út af vegaskrá. Sjá eftirfarandi yfirlit. Á umræddu tímabili hafa orðið töluverðar breytingar á skrám um safnvegi (áður sýsluvegi) en ekki er til heildstætt yfirlit yfir þær breytingar.
2. Hvað ræður því hvort vegur er tekinn af skrá Vegagerðarinnar eða ekki?
Farið er eftir 8. gr. vegalaga, nr. 45/1994, með síðari breytingum, varðandi flokkun vega og ákvörðun um það hvort vegir skuli teljast þjóðvegir.
3. Er samráð haft við sveitarfélög um brottfall vega af vegaskrá?
Eins og fram kemur í svari við 2. lið er fylgt ákvæðum laga um vegaskrána. Samráð er yfirleitt ekki haft við sveitarfélög nema ef um vafamál er að ræða.
Þjóðvegir, af flokknum tengivegir, sem féllu af vegaskrá á árunum 1981–2003.
Margir þeirra eru nú þjóðvegir í flokki safnvega eða landsvega.
Skipting á milli kjördæma.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 417 — 260. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.