Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 363. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 418  —  363. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Flm.: Álfheiður Ingadóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon.



1. gr.

    3. málsl. ákvæðis til bráðabirgða X í lögunum fellur brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta var flutt á 130. löggjafarþingi en varð þá ekki útrætt. Það er því endurflutt óbreytt.
    Frumvarpið gerir ráð fyrir því að kaupendur almenningsvagna sitji við sama borð og kaupendur annarra hópferðabifreiða og njóti endurgreiðslu á 2/ 3 hlutum virðisaukaskatts sem greiddur er vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða á tímabilinu 1. september 2000 til 31. desember 2005.
    Með lögum nr. 57/2001 var bundin í lög heimild til að endurgreiða þeim sem hafa leyfi til fólksflutninga í atvinnuskyni 2/ 3hluta þess virðisaukaskatts sem greiddur er vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða á tímabilinu 1. september 2000 til 21. desember 2003. Með lögum nr. 77/2003 var heimildin framlengd til 31. desember 2005.
    Niðurfelling virðisaukaskatts vegna kaupa á almenningsvögnum er hins vegar óheimil samkvæmt lögum nr. 50/1988 og hafa þeir sem reka almenningssamgöngur, en það eru einkum sveitarfélög og fyrirtæki þeirra, engrar endurgreiðslu notið. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að fyrirtæki sem reka almenningssamgöngur sitji við sama borð og þeir sem reka hópferðabifreiðar í samræmi við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
    Jafngild rök liggja að baki nauðsynlegrar endurnýjunar á flota almenningsvagna og flota hópferðabifreiða. Almenningssamgöngum er nú haldið úti á höfuðborgarsvæðinu af Strætó bs. með 110 vögnum. Frá 1. september 2000 til ársloka 2003 keypti Strætó bs. 14 vagna. Álagður virðisaukaskattur vegna þessara kaupa er 50,3 millj. kr. og 2/ 3hlutar fjárhæðarinnar, þ.e. það sem endurgreiðslan tæki til, nemur 33,5 millj. kr.
    Meðalaldur vagna Strætó bs. er um 11 ár. Elstu vagnarnir eru frá 1983, eða 21 árs gamlir. Því er ljóst að mikil þörf er á endurnýjun þessa flota, enda er fyrirhugað að kaupa 21 vagn á árunum 2004 og 2005, þar af tvo metanknúna. Gera má ráð fyrir því að 2/ 3 hlutar virðisaukaskatts vegna þeirra vagnakaupa verði á bilinu 45–50 millj. kr., eftir því hvert innkaupsverðið verður.
    Þjónustusvæði Strætó bs., sem er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, er dreifbýli á Kjalarnesi og í Mosfellsdal, þéttbýli í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, á Seltjarnarnesi, Álftanesi og í Reykjanesbæ. Í athugun er jafnvel að taka upp akstur til Akraness en í raun er allt svæðið frá Árborg, Reykjanesbæ og Akranesi orðið eitt atvinnusvæði. Auk höfuðborgarsvæðisins er haldið uppi reglubundum almenningssamgöngum á Akureyri (3–4 vagnar), Ísafirði og í Fjarðabyggð. Ætla má að endurgreiðsla 2/ 3hluta virðisaukaskatts vegna kaupa á almenningsvögnum til allra þeirra sem hér um ræðir gæti numið um 100 millj. kr. vegna tímabilsins 1. september 2000 til 31. desember 2005.
    Frekari stuðningur ríkisins við almenningssamgöngur væri í samræmi við markmið samgönguáætlunar 2003–2006 og að stefnt yrði að því að ríkið endurgreiði álögð gjöld á almenningssamgöngur að fullu.