Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 494. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 755 — 494. mál.
um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum.
Samkvæmt núgildandi lögum lækka greiðslur til örorkulífeyrisþega þegar þeir verða 67 ára og hefja töku ellilífeyris. Skýring þessa er m.a. sú að skerðingarprósenta ellilífeyris skv. 2. mgr. 11. gr. almannatryggingalaga er 30% en skerðingarprósenta örorkulífeyris skv. 5. mgr. 12. gr. sömu laga er 25%. Auk þessa hefst skerðing grunnlífeyris ellilífeyrisþega við lægri tekjumörk en grunnlífeyrir örorkulífeyrisþega, sbr. sömu ákvæði. Mismunar að þessu leyti gætir einnig hvað tekjutryggingu varðar.
Þær breytingar sem lagðar eru til í þessu frumvarpi fela í sér að í stað þess að öryrkjar hefji töku ellilífeyris við 67 ára aldur haldi þeir einfaldlega óbreyttum rétti til örorkulífeyris samkvæmt ákvæðum laganna. Auk þess að bæta kjör þessa öryrkjahóps er þessi breyting til þess fallin að einfalda lífeyriskerfi almannatryggingalaga. Ljóst er að framfærslukostnaður öryrkja lækkar ekki við það eitt að hann nær 67 ára aldri. Öryrki, sem verið hefur óvinnufær lengi, jafnvel stóran hluta ævinnar, og búið við fötlun af einhverju tagi, má búast við að fötlunin ágerist með tímanum og kostnaður við að draga fram lífið aukist því frekar en minnki. Því verður að telja það ósanngjarnt og órökrétt að lækka greiðslur almannatrygginga til öryrkja vegna þess eins að þeir ná 67 ára aldri og hefja töku ellilífeyris.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 755 — 494. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum.
Flm.: Ásta R. Jóhannesdóttir, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Mörður Árnason, Kristján L. Möller, Björgvin G. Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Greinargerð.