Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 421. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 780  —  421. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhöhnnu Sigurðardóttur um tryggingavernd innstæðueigenda.

     1.      Hvernig er tryggingavernd innstæðueigenda háttað hérlendis samanborið við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndum?
    Í 9. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta segir að sé aðildarfyrirtæki ekki fært um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðu, verðbréfa eða reiðufjár sem viðskiptavinur hefur krafið aðildarfyrirtæki um endurgreiðslu eða skil á sé Tryggingarsjóði skylt að greiða viðskiptavininum andvirði innstæðu úr innstæðudeild og andvirði verðbréfa og reiðufjár í tengslum við viðskipti með verðbréf úr verðbréfadeild. Sama á við ef bú aðildarfyrirtækis er tekið til gjaldþrotaskipta. Lögin kveða því ekki á um sérstakar takmarkanir á fjárhæð tryggingaverndar.
    Á hinn bóginn er gert ráð fyrir því í lögunum að vera kann að eignir sjóðsins hrökkvi ekki til þess að greiða heildarfjárhæð tryggðra innstæðna, verðbréfa eða reiðufjár í hlutaðeigandi aðildarfyrirtækjum. Í 1. mgr. 10. gr. segir að í slíkum tilfellum skuli greiðslu úr innstæðudeild og verðbréfadeild skipt þannig milli kröfuhafa að krafa hvers þeirra allt að 1,7 millj. kr. verði bætt að fullu en allt sem umfram sé þessa fjárhæð skuli bætt hlutfallslega jafnt eftir því sem eignir hvorrar deildar hrökkvi til. Fjárhæð þessi er bundin við gengi evru miðað við kaupgengi hennar 5. janúar 1999 (sem var 81,39 kr.). Umreiknuð í evrur samsvarar tryggingaverndin 20.887 evrum. Miðað við gengiskráningu 17. janúar sl. (sem var 81,8 kr.) var þessi fjárhæð því 1.708.563 kr.
    Þess ber að geta að fjárhæðamörkin byggjast á 1. mgr. 7. gr. tilskipunar 94/19/EB frá 30. maí 1994 um innlánatryggingakerfi og 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 97/9/EB frá 3. mars 1997 um bótakerfi fyrir fjárfesta, en þar er kveðið á um að tryggingavernd skuli að lágmarki nema 20.000 evrum. Fjárhæðamörk tryggingaverndarinnar samkvæmt lögunum er hins vegar nokkuð hærri en krafist er í tilskipuninni, þ.e. tryggingaverndin samsvarar 20.887 evrum.
    Lágmarksfjárhæð tryggingaverndar á Norðurlöndunum er eftirfarandi. Heimild: Norges Bank: Innskuddsikring i Norden og virkninger av å filialisere Nordea, 26. mars 2004, bls. 3. Fjárhæðir í ISK eru reiknaðar miðað við kaupgengi evru 17. janúar sl. og eru námundaðar við næsta þúsund.

ISK EUR Innlendur gjaldmiðill
Noregur 18.725.000 228.912 NOK 2.000.000
Danmörk 3.294.000 40.268 DKK 300.000
Svíþjóð 2.289.000 27.986 SEK 250.000
Finnland 2.045.000 25.000 EUR 25.000
Ísland 1.708.000 20.887 ISK 1.708.000

    Lágmarksfjárhæð tryggingaverndar er því nokkru lægri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndunum. Hún er hins vegar í nokkuð góðu samræmi við lágmarksfjárhæð tryggingaverndar í ESB-ríkjum, ef frá eru skilin Danmörk, Bretland, Frakkland og Ítalía. Algengt er að fjárhæðin sé um 20.000 evrur. Eftirfarandi mynd sýnir samanburð á lágmarksfjárhæð í ESB-ríkjunum. Heimild: ECB: Main Features of the Deposit-Insurance Schemes in the EU, 23. nóvember 2004, bls. 7–8. Fjárhæðir eru í evrum.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Þess ber að geta að samanburður á tryggingavernd milli landa er nokkuð vandasamur vegna mismunandi fyrirkomulags tryggingakerfa og ólíkra reglna. Sem dæmi má nefna að lágmarksfjárhæð greiðslu er ekki einhlítur mælikvarði á tryggingaverndina. Eins og rakið er hér að framan gildir sú regla hér á landi að lágmarksfjárhæðin á því aðeins við að eignir sjóðsins hrökkvi ekki til þess að greiða allar kröfur. Í öðrum löndum er hins vegar algengt að greiðslur fari ekki út fyrir lágmarksfjárhæðina. Þá fer víða fram á vegum tryggingarsjóða skuldajöfnuður milli krafna og skuldbindinga innstæðueigenda gagnvart aðildarfyrirtæki áður en til greiðslu kemur.

     2.      Hver er meðalinnstæða einstaklinga í viðskiptabönkum og sparisjóðum, og hversu margir eiga innstæður annars vegar undir og hins vegar yfir þeirri lágmarkstryggingavernd sem lög um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta kveða á um? Um hve háar fjárhæðir er að ræða í hvoru tilviki?

    Ráðuneytið leitaði til Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) um svar við þessum lið fyrirspurnarinnar. SBV óskaði síðan eftir upplýsingunum hjá Reiknistofu bankanna. Í upplýsingunum hér á eftir koma fram allir lifandi sparisjóðs- og tékkareikningar á kennitölum einstaklinga hjá bönkum og sparisjóðum í vinnslu hjá Reiknistofu bankanna með innstæðu miðað við 31. desember 2004:
       1.      Heildarfjöldi reikninga var 1.117.208 og meðalinnstæða á þeim 249.837 kr.
       2.      Talinn var fjöldi einstaklinga sem átti innstæðu jafnt og eða hærri en 1.740.000 kr. hjá bönkum og sparisjóðum en það var lágmarkstryggingavernd í íslenskum krónum í desember sl. þegar óskað var eftir svari við þessum lið fyrirspurnarinnar. Hver kennitala var athuguð sérstaklega innan hvers banka og einnig innan sparisjóðanna saman, þannig að hver kennitala getur hafa komið fyrir allt að fjórum sinnum, ef einstaklingur átti innstæðu yfir 1.740.000 kr. hjá Íslandsbanka, KB banka, Landsbanka og sparisjóðunum hverjum fyrir sig. Fjöldi kennitalna í þessum flokki var 31.879 og fjöldi reikninga að baki þeirra var 107.424.
     3.      Talinn var fjöldi einstaklinga sem átti innstæðu lægri en 1.740.000 kr. hjá bönkum og sparisjóðum. Hver kennitala var athuguð sérstaklega innan hvers banka og einnig innan sparisjóðanna saman, þannig að hver kennitala getur hafa komið fyrir allt að fjórum sinnum, ef einstaklingur átti innstæðu undir 1.740.000 kr. hjá Íslandsbanka, KB banka, Landsbanka og sparisjóðunum hverjum fyrir sig. Fjöldi kennitalna í þessum flokki var 580.669 og fjöldi reikninga að baki þeirra var 1.009.784.

     3.      Telur ráðherra rétt í ljósi aðstæðna á fjármálamarkaði að grípa til aðgerða til að treysta betur stöðu innstæðueigenda og telur hann að öryggi þeirra sé nægjanlega tryggt komi til alvarlegra skakkafalla hjá innlánsstofnunum þannig að þær geti ekki staðið við skuldbindingar gagnvart innstæðueigendum?
    Ráðherra telur að núverandi lágmarksinnstæðutrygging samkvæmt lögum um innstæðueigendur og tryggingakerfi fyrir fjárfesta veiti innstæðueigendum fullnægjandi vernd. Í því efni ber að hafa í huga að lágmarkstrygging samkvæmt lögunum á aðeins við ef eignir sjóðsins hrökkva ekki til þess að greiða allar kröfur. Meginreglan er því sú að allar innstæður eru greiddar, svo fremi sem Tryggingasjóður innstæðueigenda og fjárfesta eigi fyrir kröfum innstæðueigenda. Ráðherra telur á hinn bóginn að ástæða sé til að huga að því á næstu missirum hvort rétt sé að innlánastofnanir greiði meira til sjóðsins, t.d. með því að hækka það hlutfall tryggðra innstæðna sem sjóðurinn skal eiga á hverjum tíma.