Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 559. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 846 — 559. mál.
um stofnun endurhæfingarseturs.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á fót endurhæfingarsetri og skoða m.a. möguleika á samstarfi við bæjaryfirvöld í Kópavogi um uppbyggingu slíks seturs á landi gamla Kópavogsbýlisins.
Tilgangur þingsályktunartillögunnar er að efla enn frekar endurhæfingu og hæfingu fatlaðra, langveikra og þeirra sem greinst hafa með alvarlega sjúkdóma og stuðla að uppbyggingu á lóð gamla holdsveikraspítalans í Kópavogi.
Endurhæfing fatlaðra og einstaklinga sem hafa fengið alvarlega sjúkdóma, sem og hæfing mikið fatlaðra, hefur mikið gildi hvort heldur er fyrir einstaklinginn sjálfan, fjölskyldu hans eða þjóðarbúið. Þörfin fyrir fjölbreytta endurhæfingu og hæfingu heldur áfram að aukast og má rekja það til fjölmargra þátta, m.a. til aukinnar læknisfræðilegrar þekkingar og tækni, sem hafa bætt lífslíkur fyrirbura og þeirra sem verða fyrir alvarlegum slysum eða greinast með alvarlega sjúkdóma. Meðfædd fötlun kallar oft á ævilanga þjálfun og hæfingu og álagið á fjölskyldur mikið fatlaðra barna er mikið. Endurhæfing ungs fólks, sem af ýmsum ástæðum hefur hætt skólagöngu og fótar sig ekki í daglegu lífi, er ekki síður mikilvæg. Fjöldi aldraðra sem þarfnast endurhæfingar vex samhliða hækkandi aldri þjóðarinnar. Þeir sem þurfa á endurhæfingu og hæfingu að halda til lengri tíma eru því mjög breiður hópur með ólíkar þarfir.
Skilningur og virðing fyrir þörfum fólks sem nýtur líknarmeðferðar fer stöðugt vaxandi og þar með viðurkenning á rekstri sérstakra líknardeilda. Rólegt og fallegt umhverfi hefur jákvæð áhrif á líðan þessara sjúklinga og aðstandenda þeirra og skiptir staðsetning líknardeilda því miklu máli.
Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að standa að stofnun endurhæfingarseturs, þ.e. blandaðri þjónustu fyrir fatlaða, langveika og þá sem greinst hafa með alvarlega sjúkdóma, t.d. krabbamein. Það er mikilvægt að hafa hugfasta nauðsyn fjölbreytilegra úrræða og setur af þessu tagi mundi auka möguleika til eflingar og nýbreytni á sviði endurhæfingar. Hugtakið „setur“ vísar til starfsemi á ákveðnu sviði en möguleika á mismunandi rekstri. Núverandi starfsemi er fjölbreytt og á ábyrgð bæði ríkis og sveitarfélaga.
Landspítali – háskólasjúkrahús (LSH) tók við fasteignum Kópavogshælisins þegar það var lagt niður og á flestar þeirra í dag. Með stofnun endurhæfingarseturs þarf að meta þörf LSH á húsnæði fyrir þá starfsemi sem ætluð er til framtíðar á vegum sjúkrahússinsog gera viðhlítandi ráðstafanir varðandi það húsnæði sem nýtist LSH ekki. Ef litið er á hvaða starfsemi fer fram á svæðinu um þessar mundir eru það þrjár sambýlisdeildir fyrir fatlaða ásamt húðdeild og líknardeild á vegum LSH, Endurhæfing ehf., Rjóðrið og Fjölsmiðjan.
Endurhæfing ehf. er einkarekin iðju- og sjúkraþjálfun fyrir fatlaða, sem tók við endurhæfingu fjölfatlaðra af LSH í Kópavogi á vordögum 2004. Að rekstri Endurhæfingar ehf. standa fyrrverandi starfsmenn endurhæfingardeildar LSH.
Rjóðrið, hvíldar- og endurhæfingarheimili langveikra barna, er samstarfsverkefni heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, Íslenskrar erfðagreiningar og LSH. Rekstur heimilisins byggist á hvíldarinnlögn fatlaðra og langveikra barna í heimahúsum ásamt foreldrum, en einnig endurhæfingu og framhaldi af vistun á barnaspítala LSH. Mikil þörf er á svipaðri þjónustu fyrir mikið fötluð eða langveik ungmenni eldri en 18 ára og fjölskyldur þeirra.
Fjölsmiðjan er samstarfsverkefni félagsmálaráðuneytis (Vinnumálastofnunar), Rauða kross Íslands, sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og menntamálaráðuneytis. Fjölsmiðjunni er ætlað að starfrækja verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16–24 ára sem hætt hefur námi og ekki fótað sig á vinnumarkaði. Markmiðið er að bjóða fjölþætta verkþjálfun og fræðslu þannig að nemarnir geti fundið áhugavert starf þar sem hæfileikar þeirra nýtast eða tíminn nýtist sem forvinna að frekara skólanámi. Starfsemin fer að mestu fram í gamla Iðjuhúsinu sem Fjölsmiðjan leigir af LSH.
Um tveggja ára skeið var rekin göngudeild í Kópavogi með sérhæfðri krabbameinsendurhæfingu. Á síðasta ári var starfsemin flutt til innan LSH og vegna skipulagsbreytinga og í sparnaðarskyni. Mikil ánægja ríkti meðal skjólstæðinga göngudeildarinnar og voru vonir bundnar við frekari uppbyggingu á þessu sviði, svo sem rekstur dagdeildar, en mikil þörf er á slíkri þjónustu. Með starfi göngudeildarinnar var unnið brautryðjendastarf sem samræmdist vel starfsemi háskólasjúkrahúss. Þverfagleg vinna og metnaðarfullt starf hafði jákvæð áhrif á líðan skjólstæðinga deildarinnar. Sérstök ánægja var með staðsetningu göngudeildarinnar svo og aðstöðu til sjúkraþjálfunar, sérstaklega sundlaugina. Flutningsmaður telur að huga eigi að áframhaldandi þjónustu við krabbameinssjúklinga af þessu tagi í tengslum við stofnun endurhæfingarseturs. Staðsetningin og umhverfið allt getur stuðlað að árangursríkri meðferð.
Á stærstum hluta gamla Kópavogsbýlisins er fyrirhuguð 1000–1200 manna byggð og er deiliskipulag af svæðinu í undirbúningi. Samstarf um aðra landnýtingu og deiliskipulag þarf því að fara fljótt í gang ef hugmyndir um endurhæfingarsetur á svæðinu eiga fram að ganga.
Kópavogsbær hefur fest kaup á húsnæði gamla holdsveikraspítalans og er talið að hann verði rifinn til að rýma fyrir íbúðabyggð. Að mati flutningsmanns ætti að huga að verndun hússins vegna sögulegs gildis, aldurs og sem hluta af höfundarverki Guðjóns Samúelssonar arkitekts.
Þegar holdsveikraspítalinn, eða heilsuhælið í Kópavogi eins og það kallaðist áður, var reistur á sínum tíma var honum valinn staður í rólegu umhverfi en nærri höfuðborginni. Staðsetningin býður enn upp á rólegt og fallegt umhverfi með góðar almenningssamgöngur, takmarkaða bílaumferð en góða tengingu við göngu- og hjólastíga. Þessar aðstæður henta mjög vel núverandi starfsemi og nauðsynlegt er að hafa þær til hliðsjónar við uppbyggingu endurhæfingarseturs. Slíkar vinjar hafa horfið með þéttingu byggðarinnar á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Verið er að móta stöðu og framtíðarhlutverk LSH og hefur stjórn sjúkrahússins lagt á það áherslu að starfsemin verði sem mest skilgreind sem bráðaþjónusta og hefur í því skyni þegar hætt rekstri á ýmsum sviðum sem féll ekki endilega undir hana. Rekstur á húsnæði gamla Kópavogshælisins og nær öll sú starfsemi sem enn er á vegum LSH í þeim húsakynnum er því í mikilli óvissu. Ljóst er að innan tíðar þarf að taka ákvörðun um nýtingu lóðarinnar og núverandi húsakynna með gerð deiliskipulags. Sú starfsemi sem nú þegar er á svæðinu er mjög brýn og þörf er á frekari þjónustu á flestum sviðum starfseminnar. Má þar sérstaklega nefna sjúkra- og iðjuþjálfunina, starfsemi Rjóðursins og síðast en ekki síst brýna nauðsyn á að koma á fót öflugri og fjölbreyttri endurhæfingarþjónustu fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein.
Breyttar áherslur í geðheilbrigðisþjónustu, þ.e. að hverfa frá stofnanaþjónustu og innlögnum sjúklinga, falla vel að hugmyndinni um endurhæfingarsetur með fjölbreyttri starfsemi. Miðstöð sjálfseflingar og fræðslu fyrir geðsjúklinga og aðstandendur þeirra, sérstaklega fólks á höfuðborgarsvæðinu, mundi styrkja samfélagsþjónustu á þessu sviði.
Uppbygging endurhæfingarseturs þar sem sambærileg starfsemi er fyrir eykur öryggi sjúklinga og gæði þeirrar þjónustu sem veita á. Endurhæfingarsetur býður upp á nýjar leiðir til að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu auk óhefðbundinna leiða til menntunar. Endurhæfingarsetur býður einnig upp á möguleika á samvinnu í þverfaglegri vinnu milli stofnana á svæðinu.
Með starfsemi endurhæfingarseturs væri hægt að byggja upp fjölbreytta endurhæfingu fyrir fatlaða og þá sem hafa fengið alvarlega sjúkdóma ásamt hæfingu fyrir þá sem verst eru settir og falla ekki alfarið undir ákveðna sjúkdómsgreiningu eða félagslega þjónustu. Langtímameðferð í rólegu umhverfi án áreitis er mikilvæg fyrir þá sem þurfa á hæfingu að halda. Þannig má stuðla að því að þeim fari ekki aftur. Öryrkjum hefur fjölgað mjög síðustu ár og er nauðsynlegt að vinna að því að byggja upp endurhæfingu vegna skertrar vinnufærni og koma fólki til heilsu á ný. Því yngri sem öryrkinn er, því mikilvægari er endurhæfing til atvinnu og þátttöku í daglegu lífi.
Flutningsmaður telur að verkefnið sé kjörið samvinnuverkefni heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og menntamálaráðuneytis og að þannig megi ná bestum árangri í að byggja upp sterkt hæfingar- og endurhæfingarsetur. Reynslan af slíku verkefni mundi nýtast vel í nauðsynlegri uppbyggingu á fjölbreyttri endurhæfingu í tengslum við stærri sjúkrahús út um land sem byggjast á þverfaglegum grunni og samnýta þá sérfræðiþekkingu sem er til staðar.
Fylgiskjal I.
Fyrir tveimur árum keypti Kópavogsbær hluta af landi Kópavogshælisins af ríkinu og í kjölfarið var efnt til samkeppni meðal arkitekta um deiliskipulag svæðisins. Benjamín Magnússon arkitekt vann þá samkeppni og samkvæmt tillögum hans fellur gamla holdsveikrahælið á lóðinni að því skipulagi.
Húsið er hið merkilegasta, teiknað af Guðjóni Samúelssyni arkitekt, en það var kvenfélagið Hringurinn sem stóð að byggingu þess árið 1926. Þá var það hugsað sem hressingarhæli fyrir berklasjúklinga í Kópavogi. Á hælinu voru rúm fyrir 24 sjúklinga en upphaflega var ætlunin að vista þar einkum sjúklinga í afturbata, sem höfðu ekki náð fullri heilsu og þoldu ekki erfiðisvinnu. Vegna skorts á aðstöðu fyrir berklasjúklinga varð Kópavogshæli almennt berklahæli, líkt og Vífilsstaðir og Kristnes. Þegar herinn kom til landsins árið 1940 tók hann holdsveikraspítalann í Laugarnesinu til eigin nota og sjúklingar þar voru vistaðir á berklahælinu. Þeir sem voru í Kópavoginum voru ýmist fluttir á Kristnesspítala eða Vífilsstaði. Síðustu holdsveikisjúklingarnir létust árið 1970 og síðan hefur lítil starfsemi verið í húsinu.
Benjamín segir enn of snemmt að segja til um örlög hússins. „Í þeirri tillögu sem ég lagði fram á sínum tíma er gert ráð fyrir að þetta hús muni standa áfram. Það eru hins vegar fleiri aðilar sem koma að þeirri ákvörðun og meta hvað er skynsamlegt að gera. Húsið hefur staðið ónotað um árabil og það er töluverð vinna að gera það upp. Í mínum drögum var eingöngu gert ráð fyrir þeim möguleika að húsið gæti staðið áfram, en ekki í hvaða samhengi. Það er yfirvalda að taka ákvörðun um það og ætla húsinu eitthvert hlutverk í framtíðinni.“
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 846 — 559. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um stofnun endurhæfingarseturs.
Flm.: Þuríður Backman.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á fót endurhæfingarsetri og skoða m.a. möguleika á samstarfi við bæjaryfirvöld í Kópavogi um uppbyggingu slíks seturs á landi gamla Kópavogsbýlisins.
Greinargerð.

Hvað verður um gamla holdsveikraspítalann?
(Fréttablaðið, 21. febrúar 2005.)