Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 580. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 868  —  580. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um útvarp frá Alþingi.

Flm.: Magnús Þór Hafsteinsson, Guðjón A. Kristjánsson,


Gunnar Örlygsson, Sigurjón Þórðarson.


    Alþingi ályktar að fela forseta að hefja undirbúning þess að útvarpa þingfundum beint um allt land á sérstakri útvarpsrás. Stefnt verði að því að útvarp frá Alþingi hefjist þegar þing kemur saman haustið 2005.

Greinargerð.


    „Fundir Alþingis skulu haldnir í heyranda hljóði. Þó getur forseti eða svo margir þingmenn, sem til er tekið í þingsköpum, krafist, að öllum utanþingsmönnum sé vísað burt, og sker þá þingfundur úr, hvort ræða skuli málið í heyranda hljóði eða fyrir luktum dyrum.“ Þannig hljóðar 57. gr. stjórnarskrárinnar.
    Tilgangur þessarar tillögu er að tryggja að landsmönnum verði gert kleift að fylgjast með þingfundum í heyranda hljóði, með hjálp nútímaútvarpstækni. Þingfundum yrði útvarpað beint með því að nota dreifikerfi Ríkisútvarpsins. Þannig gætu Íslendingar heyrt þingfundi á sama tíma og þeir færu fram.
    Þingfundum hefur verið sjónvarpað með dreifikerfi sjónvarps Ríkisútvarpsins um árabil. Þessar sendingar hafa verið í beinni útsendingu á þeim tímum þegar engin önnur dagskrá er í sjónvarpinu. Þegar þingfundir hafa verið á sama tíma og dagskrárliðir sjónvarps hefur bein útsending þeirra fallið niður. Þeir eru svo sendir út síðar gegnum sjónvarp, eftir því sem laus tími leyfir. Þingfundum hefur einnig verið sjónvarpað beint um breiðbandskerfi Landssímans. Síðustu árin hafa áhugasamir með öflugar nettengingar getað fylgst með beinum útsendingum þingfunda hvar sem þeir eru staddir í heiminum.
    Öll þessi miðlun er þó með ýmsum annmörkum. Beinar útsendingar um kerfi Ríkisútvarpsins eru háðar því að aðrir liðir séu ekki á dagskrá, en þeir hafa undantekningarlaust forgang fram yfir útsendingar frá þingfundum. Breiðband Landssímans er einungis hjá takmörkuðum fjölda áskrifenda á Reykjavíkursvæðinu. Að fylgjast með þingfundum gegnum tölvu er háð góðri nettengingu, auk þess sem mynd- og hljóðgæði eru lítil.
    Enginn vafi er á að beint útvarp frá þingfundum mundi gera stærstum hluta landsmanna kleift að fylgjast með. Útvarpstæki eru mjög víða, og mun auðveldara er að fylgjast með útsendingum í hljóðvarpi á meðan öðrum verkefnum er sinnt, samanborið við sjónvarp.
    Beinar útvarpssendingar frá Alþingi ættu að vera sjálfsagður hlutur í nútímalýðræðisþjóðfélagi, á öld upplýsinga og fjölmiðlunar. Þær væru og í samræmi við anda fyrsta málsliðar 57. gr. stjórnarskrárinnar um að fundir Alþingis skuli háðir „í heyranda hljóði“.