Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 697. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1027  —  697. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um innflutning á erfðabreyttu fóðri.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hve mikið er flutt inn af erfðabreyttum maís og erfðabreyttu sojamjöli og hvert er hlutfallið af heildarinnflutningi þessara fóðurvara?
     2.      Hvað líður innleiðingu reglugerða EB nr. 1829/2003, um rekjanleika og merkingar á erfðabreyttum lífverum og rekjanleika á matvæla- og fóðurvörum, og nr. 1830/2003, um rekjanleika efna sem innihalda erfðabreyttar lífverur, sbr. fyrirspurn þessa efnis á 131. löggjafarþingi (404. mál)?