Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 659. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1263  —  659. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Fannýjar Gunnarsdóttur um loftmengun af völdum svifryks í Reykjavík.

     1.      Hver er stefna ráðuneytisins hvað varðar loftmengun af völdum svifryks í Reykjavík?
    Stefna stjórnvalda um þetta atriði kemur m.a. fram í gildandi reglugerð nr. 251/2002, um brennisteinsdíoxíð, köfnunarefnisdíoxíð, köfnunarefnisoxíð, bensen, kolsýring, svifryk og blý í andrúmsloftinu og upplýsingar til almennings. Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að viðunandi og samræmdar mælingar á styrk svifryks í andrúmsloftinu séu gerðar og að miðla upplýsingum til almennings um styrk þess í andrúmslofti. Jafnframt eru í reglugerðinni sett umhverfismörk, gróðurverndarmörk og heilsuverndarmörk og viðvörunarmörk fyrir svifryk og önnur efni, sem miða að því að komast hjá, fyrirbyggja eða draga úr skaðlegum áhrifum á heilbrigði manna og umhverfið í heild. Loks er það markmið reglugerðarinnar að viðhalda gæðum andrúmslofts þar sem þau eru mikil en bæta þau ella að því er varðar svifryk og önnur efni sem falla undir reglugerðina og halda loftmengun af völdum þessara efna í lágmarki og viðhalda þeim gæðum sem felast í hreinu og ómenguðu lofti. Reglugerðin gildir um eftirlit, mælingar, upplýsingaskipti og viðvaranir til almennings vegna m.a. svifryks í andrúmslofti. Reglugerðin var sett með hliðsjón af EB-gerðum um þessi efni sem eru hluti EES- samningsins. Frá síðasta ári hafa að viðmiðunarmörk fyrir meðalsólarhringsgildi PM10 verið 50mg/m3 og má gildið ekki fara yfir viðmiðunarmörk oftar en 35 sinnum á ári. Frá og með 2010 má ekki fara oftar en sjö sinnum yfir viðmiðunarmörk.
    Talið er að loftmengunar af völdum svifryks hér á landi gæti einkum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Af þeim sökum og í samvinnu við Reykjavíkurborg ákvað ráðuneytið árið 2001 að setja á laggirnar starfshóp um svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu. Hlutverk starfshópsins er að fara yfir stöðu mála og gera tillögur um aðgerðir til að draga úr svifryksmengun vegna aukinnar umferðar á höfuðborgarsvæðinu til þess að ná settum markmiðum sem tóku gildi 2005, og þó sérstaklega 2010. Fyrstu niðurstöður úr greiningu á svifryki eftir uppsprettum sem unnið var að á vegum Iðntæknistofnunar voru kynntar á ráðstefnu í nóvember 2003. Í framhaldi af því ákvað starfshópurinn að ráðast í frekari greiningu, sérstaklega með athugun á tengslum veðurfars og svifryksmengunar í Reykjavík, og var gerður samningur við Umhverfisstofnun sem vann verkið í samvinnu við umhverfissvið Reykjavíkurborgar. Skýrslu var skilað til starfshóps um svifryk í byrjun mars sl. og ákvað starfshópurinn að efna til málþings þar sem niðurstöður skýrslunnar yrðu kynntar og málin rædd í heild. Málþingið var haldið 24. apríl sl. og mun starfshópurinn nú í framhaldi skila tillögum til umhverfisráðherra.

     2.      Með hvaða úrræðum mæla sérfræðingar ráðuneytisins?
    Framangreind nefnd um svifmengun á höfuðborgarsvæðinu hefur, eins og fram hefur komið, ekki skilað tillögum til ráðherra. Ljóst er að svifryksmengun er að miklu leyti háð veðurfari og eykst svifryksmengun á köldum stillum vetrardögum en dregur úr henni eftir því sem úrkoma er meiri. Ýmis úrræði sem koma til greina og hafa helst verið nefnd hvatning til að draga úr notkun nagladekkja, betri stilling bifreiða, hreinsun gatna, sótsíur á dísilbifreiðar, svo nokkuð sé nefnt. Málið verður tekið til frekari umfjöllunar í ráðuneytinu þegar tillögur svifryksstarfshópsins liggja fyrir.

     3.      Hvort eru aðgerðir á ábyrgð umhverfisráðuneytis eða borgaryfirvalda?
    Almennt annast heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna eftirlit með framkvæmd reglugerða um loftmengun í þéttbýli og gera eftir því sem við á ráðstafanir til að dregið verði úr loftmengun og umhverfismörk virt. Heilbrigðisnefnd getur takmarkað umferð og aðra starfsemi á ákveðnum svæðum um skemmri tíma fari mengun verulega yfir gildandi umhverfismörk, t.d. vegna ófyrirséðra atvika eða ef óþæginda gætir af völdum annarra mengandi efna en þeirra sem sérstakar reglur gilda um. Samkvæmt ákvæðum reglugerðar um loftgæði skal viðkomandi heilbrigðisnefnd semja aðgerðaráætlun sem gildir um skammtímaráðstafanir sem fylgja skal ef hætta er á að farið verði yfir umhverfismörk og/eða viðvörunarmörk og til að draga úr þeirri hættu sem slík atvik skapa og stytta tímann sem þau vara.