Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 350. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 384  —  350. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um einkaneyslu og skatttekjur.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.


     1.      Hve mikið af einkaneyslu áranna 2002–2005, að báðum árum meðtöldum, var fjármagnað með lánum, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hvaða áhrif hefði það haft á skatttekjur hins opinbera, skipt eftir árum, ef einkaneysla áranna 2002–2005 hefði eingöngu verið fjármögnuð með rauntekjum heimilanna?


Skriflegt svar óskast.