Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 126. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 448  —  126. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um saksókn og ákæruvald í skattamálum.

     1.      Hve mörg mál hafa borist yfirskattanefnd árlega á síðastliðnum þremur árum og hver er meðalafgreiðslutími til lúkningar málum?
    172 mál voru send yfirskattanefnd til sektarmeðferðar á sl. þremur árum og skiptast þau sem hér segir: 64 mál árið 2002, 44 mál árið 2003 og 64 mál árið 2004.
    Úrskurðir hafa verið kveðnir upp í 151 máli og 21 mál er því óafgreitt hjá yfirskattanefnd.
    Meðaltími frá því að kröfugerð er send og þar til úrskurður liggur fyrir eru 269 dagar.

     2.      Hve mörg mál hafa árlega á síðastliðnum þremur árum sætt skattrannsókn og hversu mörg þeirra hafa farið til lögreglurannsóknar?

    469 mál voru tekin til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins á sl. þremur árum og skiptast þau sem hér segir: 166 mál árið 2002, 142 mál árið 2003 og 161 mál árið 2004.
    Af þessum málum hefur 118 verið vísað til opinberrar rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans.

     3.      Hve oft hafa mál sem kærð hafa verið vegna ætlaðra skattsvika farið til ákæruvaldsins árlega á síðastliðnum þremur árum og hve mörgum þeirra hefur lokið með sakfellingu? Hver var meðalafgreiðslutími mála frá því að skattrannsókn hófst og í hve mörgum tilvikum hafa mál fyrnst í kæru- og dómsmeðferð?
    Á sl. þremur árum var 127 málum vísað til opinberrar rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans og skiptast þau sem hér segir: 35 mál árið 2002, 54 mál árið 2003 og 38 mál árið 2004.
    Dómar hafa gengið í 78 þessara mála.
    Meðaltími frá því að rannsókn hefst hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins og þar til dómur fellur í héraði eru 768 dagar. Frá því að rannsókn hefst hjá skattrannsóknarstjóra og þar til máli er vísað til opinberrar rannsóknar líða að meðaltali 305 dagar. Frá því að máli er vísað til opinberrar rannsóknar og þar til dómur fellur líða að meðaltali 463 dagar.
    Í dómum allra 78 málanna var um sakfellingu að ræða. Af fyrrgreindum 127 málum hefur ríkislögreglustjórinn fallið frá rannsókn í sex málum sökum ótilgreindra ástæðna. Þá hefur verið gefin út ákæra í 19 málum til viðbótar.
    Alls eru 24 mál því óafgreidd af hálfu ríkislögreglustjórans, þ.e. hafa ekki sætt ákæru eða verið felld niður.

     4.      Hver er skoðun ráðherra á því að færa saksókn og ákæruvald í skattsvikamálum til embættis skattrannsóknarstjóra og málsforsvar í dómsmálum um ágreining í skattamálum til embættis ríkisskattstjóra, sbr. tillögur skattsvikanefndar frá desember 2004, og hvaða áhrif hefði það á málsmeðferð og skilvirkni í skattsvikamálum?

    Framangreindur liður er tvíþættur og er svarað í samræmi við það. Fyrri hlutinn varðar hugsanlegan tilflutning á saksókn og ákæruvaldi í skattsvikamálum frá embætti ríkislögreglustjóra til skattrannsóknarstjóra, en sá seinni tilflutning á málsforsvari í dómsmálum er varða skatta frá ríkislögmanni til embættis ríkisskattstjóra.

    Flutningur saksóknar og ákæruvalds í skattsvikamálum frá ríkislögreglustjóra til skattrannsóknarstjóra.
    Fyrirkomulag við rannsókn mála hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins er að nokkru leyti sambærilegt við fyrirkomulag rannsókna hjá ríkislögreglustjóra. Þannig er þess gætt við rannsóknir skattrannsóknarstjóra að framfylgt sé ákvæðum laga um meðferð opinberra mála, eftir því sem við getur átt, einkum varðandi réttarstöðu grunaðra manna, sbr. 7. mgr. 103. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt,. Þegar skattrannsóknarstjóri hefur lokið rannsókn telst mál að fullu upplýst og samhliða liggur fyrir mat á fjárhæðum undandreginna skattstofna.
    Á þeim tímapunkti tekur skattrannsóknarstjóri ákvörðun um hvort vísa eigi málinu til opinberrar rannsóknar. Geri hann það tekur ríkislögreglustjóri málið til rannsóknar á ný. Segja má að í því að hin meinta refsiverða háttsemi er rannsökuð aftur felist ákveðin endurtekning sem kann að leiða til þess að málsmeðferðartími í einstökum skattsvikamálum verði lengri en ella væri. Skattrannsóknarstjóri fer hins vegar ekki með lögregluvald og þeirri stöðu hans verður ekki breytt nema með lögum.
    Núgildandi fyrirkomulag má rekja allt aftur til ársins 1980, en með 2. mgr. 47. gr. laga nr. 7/1980 var rannsóknarlögreglu ríkisins, nú embætti ríkislögreglustjóra, falið að fara með frumrannsókn opinberra mála út af brotum á lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Af því leiðir að á undanförnum árum hefur safnast þar upp mikil sérþekking við rannsókn og gerð ákæra í opinberum málum, skattsvikamálum sem öðrum, enda er gefinn út fjöldi ákæra árlega, eins og fram kemur í svari við 3. lið fyrirspurnarinnar. Þá má halda því fram að of mikil dreifing ákæruvalds gæti reynst miður heppileg í ljósi þess að alhliða fagleg reynsla á því sviði getur ráðið miklu um framgang mála.

Flutningur málsforsvars í dómsmálum er varða skatta frá ríkislögmanni til embættis ríkisskattstjóra.
    Samkvæmt lögum fer ríkislögmaður með fyrirsvar í málum sem höfðuð eru á hendur ríkinu og sókn mála sem ríkið höfðar á hendur einkaaðilum. Tiltölulega fá skattamál fara fyrir dómstóla árlega og því er eðli málsins samkvæmt ákveðnum erfiðleikum bundið að byggja upp sérþekkingu í flutningi skattamála. Það gildir vitaskuld um flutning skattamála fyrir dómstólum, sem um flutning annarra mála, að reynsla málflutningsaðila getur skipt sköpum. Það sjónarmið vegur á móti því sjónarmiði að sérfræðiþekkingu í skattamálum sé fremur að finna hjá skattyfirvöldum en hjá embætti ríkislögmanns.

Samantekt.
    Af framansögðu leiðir að ekki er til einhlítt svar við því hvernig saksókn og ákæruvaldi í skattamálum og málsforsvari í dómsmálum um ágreining í skattamálum verði best fyrir komið. Á þessu stigi eru ekki uppi sérstök áform um breytingar á núverandi fyrirkomulagi, en tilhögun þessara mála hlýtur þó jafnan að vera til skoðunar í ljósi aðstæðna á hverjum tíma.