Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 350. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 665 — 350. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um einkaneyslu og skatttekjur.
1. Hve mikið af einkaneyslu áranna 2002–2005, að báðum árum meðtöldum, var fjármagnað með lánum, sundurliðað eftir árum?
Ekki eru til upplýsingar um það hvernig einkaneysla er fjármögnuð og því ekki hægt að segja til um hve mikið af neyslunni var fjármagnað með lánum. Þá eru vísbendingar um talsverðar sveiflur í skuldsetningu heimilanna í tengslum við árferði. Það er því mjög erfitt að meta hve stór hluti af einkaneyslu hefur verið fjármagnaður með lánum.
Upplýsingar liggja fyrir um heildartekjur á grundvelli skattframtala og ríkisskattstjóraembættið tekur þær saman. Upplýsingar um árið 2005 liggja ekki fyrir. Á grundvelli upplýsinganna eru ráðstöfunartekjur reiknaðar með einfaldri nálgun. Ráðstöfunartekjur sem hér eru birtar eru reiknaðar út frá heildartekjum að frádregnum sköttum og öðrum gjöldum að viðbættum barna- og vaxtabótum. Lífeyrissjóðsgreiðslur eru einnig dregnar frá tekjum. Upplýsingar um einkaneyslu koma úr þjóðhagsreikningum sem Hagstofan birtir. Þegar ráðstöfunartekjur og einkaneysla eru borin saman þarf að hafa fyrirvara á því að hér er um samanburð að ræða milli mismunandi upplýsingabrunna en í því getur falist ósamræmi. Til upplýsingar skal þess getið að Hagstofa Íslands stefnir að því að birta nákvæmar upplýsingar um ráðstöfunartekjur heimilanna á þjóðhagsreikningagrunni fyrir umliðin ár. Í eftirfarandi töflu koma einnig fram upplýsingar um skuldir heimilanna við lánakerfið samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. Til skulda heimila teljast skuldir við bankakerfið, önnur lánakerfi, lífeyrissjóði, tryggingafélög, Lánasjóð íslenskra námsmanna og verðbréfasjóði. Þess ber að geta að ráðstöfun skuldanna er ekki sundirliðuð, en að stórum hluta er henni varið til íbúðafjárfestinga.
Þegar ráðstöfunartekjur eru bornar saman við útreiknaða einkaneyslu samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar kemur í ljós að einkaneysla áranna 2002–2004 var meiri en ráðstöfunartekjur þjóðarinnar. Eins og áður segir er erfitt að bera saman upplýsingar á mismunandi grunnum. Það er því talsverð óvissa sem tengist mismun ráðstöfunartekna og einkaneyslu eins og hann er hér settur fram. Þá er vitað að neysla getur verið fjármögnuð með eignasölu og að hluti ráðstöfunartekna er sendur úr landi. Af þessu má vera ljóst að erfitt er að meta að hve miklu leyti þessi mismunur gefur vísbendingu um hlut lánsfjármögnunar í einkaneyslu.
2. Hvaða áhrif hefði það haft á skatttekjur hins opinbera, skipt eftir árum, ef einkaneysla áranna 2002–2005 hefði eingöngu verið fjármögnuð með rauntekjum heimilanna?
Ljóst má vera að ef einkaneysla heimilanna hefði eingöngu verið fjármögnuð með rauntekjum þeirra hefði hún orðið minni en raun bar vitni árin 2002–2004, en eins og fyrr greinir er erfitt að meta hve mikið einkaneyslan hefði minnkað. Skatttekjur vegna veltuskatta hefðu þó dregist saman en hlutfall þeirra af einkaneyslu var eftirfarandi á árunum 2002–2004:
Við það verður þó að setja þann fyrirvara að erfitt er að meta nákvæmlega hvernig minni einkaneysla hefur áhrif á tekjur hins opinbera af veltusköttum því líklegt má telja að hlutföll einstakra þátta í neyslunni breytist, t.d. að hlutfall matarinnkaupa af einkaneyslu aukist en bifreiðakaup dragist saman ef einkaneyslan minnkar vegna minni lántöku heimilanna. Ef fyrrgreind hlutföll eru notuð sem nálgun hefði t.d. 1% minni einkaneysla árið 2004, að öðru óbreyttu, leitt til 1,4 milljarða kr. minni skatttekna af vöru og þjónustu og árið 2003 hefði tekjuminnkunin numið 1,2 milljörðum kr.
Þar að auki leiðir minni lántaka heimilanna einnig til samdráttar í tekjum af stimpilgjöldum. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hver stór hluti stimpilgjalda er vegna lántöku til einkaneyslu. Einkaneysla hefur einnig áhrif á veltu og hagnað fyrirtækja í landinu og þar af leiðandi á skatttekjur hins opinbera af tekjuskatti lögaðila. Af fyrrgreindu má vera ljóst að erfitt er að meta heildaráhrif slíkra forsendna á skatttekjur hins opinbera.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 665 — 350. mál.
Svar

Ráðstöfunartekjur og einkaneysla heimilanna 2002–2004.
| Í millj. kr. á verðlagi hvers árs . | ||||||
| Heildartekjur | Ráðstöfunartekjur | Einkaneysla | Mismunur ráðstöfunartekna og einkaneyslu | Skuldir við lánakerfið í árslok | Aukning á milli ára | |
| 2002 | 541.599 | 407.317 | 429.621 | -22.304 | 758.603 | 49.898 |
| 2003 | 583.907 | 440.108 | 460.363 | -20.255 | 772.129 | 13.526 |
| 2004 | 640.466 | 478.827 | 506.100 | -27.273 | 877.044 | 104.915 |
Þegar ráðstöfunartekjur eru bornar saman við útreiknaða einkaneyslu samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar kemur í ljós að einkaneysla áranna 2002–2004 var meiri en ráðstöfunartekjur þjóðarinnar. Eins og áður segir er erfitt að bera saman upplýsingar á mismunandi grunnum. Það er því talsverð óvissa sem tengist mismun ráðstöfunartekna og einkaneyslu eins og hann er hér settur fram. Þá er vitað að neysla getur verið fjármögnuð með eignasölu og að hluti ráðstöfunartekna er sendur úr landi. Af þessu má vera ljóst að erfitt er að meta að hve miklu leyti þessi mismunur gefur vísbendingu um hlut lánsfjármögnunar í einkaneyslu.
2. Hvaða áhrif hefði það haft á skatttekjur hins opinbera, skipt eftir árum, ef einkaneysla áranna 2002–2005 hefði eingöngu verið fjármögnuð með rauntekjum heimilanna?
Ljóst má vera að ef einkaneysla heimilanna hefði eingöngu verið fjármögnuð með rauntekjum þeirra hefði hún orðið minni en raun bar vitni árin 2002–2004, en eins og fyrr greinir er erfitt að meta hve mikið einkaneyslan hefði minnkað. Skatttekjur vegna veltuskatta hefðu þó dregist saman en hlutfall þeirra af einkaneyslu var eftirfarandi á árunum 2002–2004:
Hlutfall skatta á vöru og þjónustu af einkaneyslu.
| 2002 | 2003 | 2004 | |
| Hlutfall virðisaukaskatts | 17,8 | 17,6 | 19,1 |
| Hlutfall annarra skatta á vöru og þjónustu | 8,7 | 9,2 | 9,3 |
| Samtals | 26,5 | 26,7 | 28,4 |