Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 549. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 797 — 549. mál.
til umhverfisráðherra um framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun.
1. Hvernig er tryggt að einstakir þættir framkvæmda við gerð Kárahnjúkavirkjunar uppfylli þau skilyrði sem sett eru í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum virkjunarinnar frá 20. desember 2001?
2. Hvernig samræmast framkvæmdir norðan stíflu í Desjarárdal 3. skilyrðinu í úrskurði ráðherra?
3. Hvað líður vinnu við áætlun þá sem ætlað er að sýna útfærslu aðgerða til að minnka jarðvegsrof og áfok úr Hálslóni, sbr. 4. skilyrði úrskurðarins?
4. Hvað líður vinnu við uppgræðslu- og landbótaaðgerðir samkvæmt 5. skilyrðinu?
5. Hvað líður vinnu við áætlun um námur, haugsvæði, vega- og slóðagerð samkvæmt 7. skilyrði?
6. Hver er staða þeirra rannsókna sem getið er um í 11., 12., 13. og 19. skilyrði? Hverjar af þeim rannsóknarniðurstöðum sem þegar liggja fyrir hafa vakið sérstaka athygli eða komið sérstaklega á óvart?
7. Á hvern hátt hafa stofnanir ráðuneytisins fylgst með borun jarðganga á svæðinu, sbr. 14. skilyrði í úrskurðinum? Hvað hafa rannsóknir á jarðvatni því sem framkvæmdaraðilar hafa glímt við leitt í ljós?
Skriflegt svar óskast.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 797 — 549. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.