Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 673. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1026  —  673. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um greiðslur fyrir sýningarrétt hjá Ríkisútvarpinu.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Tók Ríkisútvarpið frumkvæði að því að stofnunin var bundin trúnaði um greiðslur fyrir sýningarrétt Formúlukappaksturs og Evrópukeppninnar í knattspyrnu 2008 (sbr. upplýsingar í þskj. 933 á þessu löggjafarþingi)?
     2.      Hversu lengi er sá trúnaður áskilinn?
     3.      Hvernig koma þessar greiðslur fram í reikningum Ríkisútvarpsins?
     4.      Um hvaða annan kostnað við einstaka dagskrárliði ársins 2006 eða innkaup á því ári ríkir trúnaður og hver tók frumkvæði að því skilyrði hverju sinni?