Þskj. 1063 — 682. mál.
Skýrsla
samgönguráðherra um framkvæmd fjarskiptaáætlunar.
(Lögð fyrir Alþingi á 133. löggjafarþingi 2006–2007.)
Alþingi samþykkti vorið 2005 þingsályktun um stefnu í fjarskiptamálum fyrir árin 2005– 2010. Sú ályktun var samin af stýrihópi sem samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, skipaði í ársbyrjun 2004. Áætlunin er sú fyrsta sem samþykkt hefur verið en samkvæmt lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, sbr. lög nr. 78/2005, skal samgönguráðherra leggja fram á Alþingi á þriggja ára fresti tillögu til þingsályktunar um fjarskiptaáætlun.
Fjarskiptaáætlun skal leggja grunn að framþróun íslensks samfélags með því að bjóða bestu, ódýrustu og öruggustu rafrænu samskiptin með beitingu fjarskipta- og upplýsingatækni. Þá skal í áætluninni mörkuð stefna fyrir næstu sex ár. Í áætluninni er skilgreind nánar aðkoma og markmið stjórnvalda í fjarskiptamálum til næstu ára, auk þess sem gerð er grein fyrir ástandi og horfum í fjarskiptamálum í landinu í ljósi alþjóðlegrar þróunar. Með samræmdri stefnumótun er stefnt að því að auka samkeppnishæfni landsins og stuðla að framþróun atvinnulífs og ná fram hagkvæmri nýtingu fjármagns og samræmdri forgangsröðun verkefna. Einnig er lögð áhersla á að aðgengi að fjarskiptum sé mikilvægt fyrir alla landsmenn og fjallað um með hvaða hætti aðstaða landsmanna, hvað varðar aðgengi að fjarskiptum, verði jöfnuð.
Fjarskiptaáætlun skiptist í 15 meginmarkmið en að auki eru 32 markmið (verkefni) sem unnið er að og skiptast niður á fimm kafla áætlunarinnar:
I. Forskot.
II. Háhraðavæðing.
III. Farsamband.
IV. Stafrænt sjónvarp og hljóðvarp.
V. Öryggi og persónuvernd.
VI. Samkeppnishæfni.
Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir þeim verkefnum sem unnið hefur verið að við framkvæmd fjarskiptaáætlunar. Að gerð hennar komu auk verkefnisstjórnar fjarskiptaáætlunar Póst- og fjarskiptastofnun. Þá var einnig aflað upplýsinga frá öðrum ráðuneytum vegna einstakra markmiða áætlunarinnar sem eru á ábyrgð þeirra.
Áhrifa fjarskiptaáætlunar er víða farið að gæta og ljóst er að samþykkt hennar hefur haft í för með sér aukinn áhuga stjórnvalda og almennings á þessum málum. Þá er ljóst að umgjörðin, sem sköpuð hefur verið um gerð hennar svo og framkvæmd, er til þess fallin að ná megi markmiðum hennar og stuðla þannig að því að Ísland sé og verði í fremstu röð í uppbyggingu og notkun fjarskiptatækni.
1. Framkvæmd fjarskiptaáætlunar.
Verkefnisstjórn fjarskiptaáætlunar hefur yfirumsjón með framkvæmd fjarskiptaáætlunar fyrir hönd samgönguráðuneytisins. Verkefnisstjórnina skipa fimm manns: Friðrik Már Baldursson, formaður, Kristinn Jónasson, Adolf Berndsen, Guðbjörg Sigurðardóttir og Hjálmar Árnason.
Auk þess að vera verkefnisstjórn um framkvæmd fjarskiptaáætlunar er hún jafnframt stjórn fjarskiptasjóðs en sá sjóður var stofnaður með lögum nr. 132/2005. Fjarskiptasjóður hefur það hlutverk að stuðla að uppbyggingu á sviði fjarskiptamála á grundvelli fjarskiptaáætlunar.
Til að vinna að verkefnum fjarskiptasjóðs gerði stjórnin samning við Póst- og fjarskiptastofnun um að stofnunin aðstoðaði m.a. við skipulag útboða og eftirlit með framkvæmd verkefna sjóðsins sem njóta styrkja. Sérstök deild innan Póst- og fjarskiptastofnunar hefur það verkefni eitt að vinna að þessum verkefnum en deildin er aðgreind frá eftirlitsstarfsemi stofnunarinnar. Er þetta í samræmi við lög um fjarskiptasjóð en þar segir að fjarskiptasjóður skuli bera allan kostnað Póst- og fjarskiptastofnunar af starfsemi sem tengist verkefnum sjóðsins. Tveir starfsmenn voru sérstaklega ráðnir til að sinna þessum störfum.
Þá er lögfræðingur samgönguráðuneytisins í fjarskiptamálum starfsmaður verkefnisstjórnar fjarskiptaáætlunar og stjórnar fjarskiptasjóðs en varsla og umsýsla sjóðsins er í samgönguráðuneytinu.
Í fjarskiptaáætlun er einnig um að ræða verkefni sem heyra undir önnur ráðuneyti og stofnanir. Í fyrsta lagi ber að nefna að Póst- og fjarskiptastofnun, sem stjórnsýslu- og eftirlitsstofnun, ber ábyrgð á mörgum verkefnum fjarskiptaáætlunar. Þá bera menntamálaráðuneyti, fjármálaráðuneyti, dómsmálaráðuneyti og umhverfisráðuneyti ábyrgð á einstökum verkefnum. Tilnefndir hafa verið vegna þeirra verkefna tengiliðir ráðuneytanna við verkefnisstjórnina og virkar stjórnin þá sem samráðs- og samstarfsvettvangur.
2. Fjarskiptasjóður.
2.1 Starfsemi.
Fjarskiptasjóður var stofnaður með lögum fjarskiptasjóð, nr. 132/2005. Hlutverk hans er að úthluta fjármagni til verkefna sem miða að uppbyggingu stofnkerfa fjarskipta, verkefna sem stuðla að öryggi og samkeppnishæfni þjóðfélagsins á sviði fjarskipta og annarra verkefna, enda sé kveðið á um þau í fjarskiptaáætlun og ætla má að ekki verði í þau ráðist á markaðsforsendum. Framkvæmdir vegna verkefna fjarskiptasjóðs eru boðnar út og er það hlutverk stjórnar að ákveða tilhögun og stærð útboða.
Með lögum um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf., nr. 133/2005, var samþykkt að leggja sjóðnum til fjármagn að fjárhæð 2.500 millj. kr. Þeir fjármunir, sem samþykkt hefur verið að leggja í fjarskiptasjóð, eiga fyrst og fremst að standa straum að þremur markmiðum fjarskiptaáætlunar:
1. Að allir landsmenn, sem þess óska, hafi aðgang að háhraðatengingum árið 2007.
2. GSM-farsímaþjónusta verði aðgengileg á þjóðvegi 1, öðrum helstu stofnvegum og á helstu ferðamannastöðum.
3. Dreifing sjónvarpsdagskrár Ríkisútvarpsins, auk hljóðvarps Rásar 1 og Rásar 2, til sjómanna á miðum við landið og til strjálbýlli svæða verði stafræn um gervihnött.
2.2 Verkefni.
2.2.1 Uppbygging GSM-farsímakerfis.
Markmiðið er, sbr. fjarskiptaáætlun, að GSM-farsímaþjónusta verði aðgengileg á þjóðvegi 1 og öðrum helstu stofnvegum og á helstu ferðamannastöðum. Þannig er ætlunin að auka öryggi vegfarenda og aðgengi að farsímaþjónustu á þjóðvegum landsins með því að stuðla að aukinni útbreiðslu GSM-farsímanetsins á þeim stöðum sem ekki er líklegt að verði þjónað á markaðslegum forsendum. GSM-farsímakerfið er ekki landsþekjandi og skortir töluvert á að samband náist á þjóðvegakerfinu. Þrátt fyrir að farsímakerfið hafi ekki verið hannað sem öryggiskerfi er ljóst að almenn eign slíkra farsíma er mikilvægur liður í öryggi fólks, auk þess sem farsíminn gegnir mikilvægu hlutverki í samskiptum í nútímaþjóðfélagi.
GSM 1.
Í fyrsta áfanga GSM-verkefnisins, sem boðinn var út á árinu 2006, voru boðnir út vegkaflar á hringvegi 1, þar sem GSM-farsímaþjónustu nýtur ekki við nú, og fjallvegirnir um Fróðárheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Þverárfjallsveg, Fagradal og Fjarðarheiði. Að auki skal setja upp sendi í Flatey á Breiðafirði sem þjónusta á um helming leiðarinnar um Barðaströnd. Alls er um að ræða 500 km svæði en lengsti kaflinn á hringveginum þar sem GSM-samband er ekki fyrir hendi í dag er um Mývatnsöræfi en hann er 80 km langur.
Á meðfylgjandi korti má sjá þá vegkafla sem boðnir voru út í útboðinu en þeir eru merktir með breiðu rauðu striki.
Mynd 1. Vegkaflar í útboði sem fór fram á árinu 2006.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Ákveðið var að hafa lokað útboð að undangengnu forvali en sjóðurinn naut aðstoðar Ríkiskaupa við framkvæmd útboðsins. Fyrirhugað forval var kynnt á Evrópska efnahagssvæðinu um miðjan júní og áttu áhugasamir aðilar að skila tilkynningu um þátttöku til Ríkiskaupa. 1 Forvalinu lauk á haustmánuðum og fengu þeir aðilar, sem uppfylltu skilyrði forvalsins, afhend útboðsgögn 2 í október og skiluðu inn tilboðum sínum í desember. Þrjú tilboð bárust, eitt frá Og fjarskiptum ehf. og tvö frá Símanum hf., annað frávikstilboð.
Og fjarskipti ehf. 669 millj. kr.
Síminn hf. 598 millj. kr.
Síminn hf. (frávikstilboð) 535 millj. kr.
Verktími hjá Og fjarskiptum ehf. var samkvæmt tilboðinu 20 mánuðir en 12 mánuðir í báðum tilboðum Símans hf. Gengið var til skýringaviðræðna og svo í framhaldinu samningaviðræðna við Símann hf. og var skrifað undir samning við fyrirtækið 12. janúar 2007. Samið var við Símann hf. á grundvelli frávikstilboðs og var endanleg samningsupphæð 565 millj. kr. Uppsetning á GSM-sendum á vegköflunum skal vera að fullu lokið 12. janúar 2008.
GSM 2.
Næsti hluti áætlunar um endurbætur á GSM-farsímanetinu snýst um stofnvegi og helstu ferðamannastaði þar sem ekki er GSM-farsímasamband. Vinna við að greina þau svæði, sem koma til skoðunar í þeim áfanga GSM-verkefnisins, er þegar hafin. Á mynd 2 má sjá þá stofnvegi þar sem bæta þarf GSM-samband.
Á árinu 2006 var unnið að því með aðstoð Ferðamálastofu að skilgreina hverjir væru helstu ferðamannastaðir. Gengið var út frá því að hugtakið ferðamannastaður merki staður (annaðhvort náttúrulegur eða manngerður) sem laðar að sér ferðamenn. Listi var gerður yfir ferðamannastaði fyrir hvern landsfjórðung og listarnir sendir til viðkomandi ferðamálafulltrúa og þeir fengnir til að yfirfara þá. Þá voru listarnir sendir til hagsmunaaðila og þeir beðnir að yfirfara þá með mikilvægi þeirra í huga. Vinnu við skilgreiningu helstu ferðamannastaða er ekki lokið.
Stjórn fjarskiptasjóðs á eftir að taka ákvörðun um forgangsröðun í næsta hluta áætlunar um endurbætur á GSM-farsímanetinu en stefnt er að því að útboðið verði auglýst á fyrri hluta árs 2007.
2.2.2 Háhraðatengingar um landið.
Markmiðið er, sbr. fjarskiptaáætlun, að allir landsmenn, sem þess óska, hafi aðgang að háhraðatengingum árið 2007. Verkefnið er því uppbygging á háhraðatengingum á þeim stöðum þar sem markaðsaðilar eru ekki eða ætla ekki að bjóða upp á háhraðatengingar. Upplýsingatækni er leiðandi í hagvexti og atvinnuuppbyggingu í Evrópu og víða annars staðar, m.a. hér á landi. Háhraðatengingar eru einn af grunnþáttum tækninnar sem gerir upplýsingasamfélag nútímans mögulegt. Áætlað er að stuðla að og hraða þróun upplýsingasamfélagsins svo að allir landsmenn, sem þess óska, geti tengst háhraðaneti og notið hagkvæmrar og öruggrar fjarskiptaþjónustu.
Mynd 2. Stofnvegir þar sem ekki er GSM-farsímasamband nú (merktir með bláu).
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Vinnu við verkefnið hefur verið skipt í þrjá meginþætti:
– Greining á þeim svæðum þar sem ekki er boðið upp á háhraðatengingar nú eða ætla má að markaðsaðilar ætli ekki að bjóða upp á háhraðatengingar.
– Skilgreining á lágmarksgæðum þeirra lausna sem sjóðurinn ætlar að styrkja.
– Ákvörðun um útboðsleið
Áhersla hefur verið lögð á að greina stöðu háhraðatenginga á landinu en nákvæm greining á henni hefur ekki verið gerð áður. Samkvæmt þeirri greiningarvinnu, sem gerð hefur verið, eru 1.603 lögbýli í dreifbýli og 69 í þéttbýli sem ekki eiga kost á háhraðatengingu, sbr. töflu.
Tafla 1. Fjöldi landsmanna sem ekki eiga kost á háhraðatengingu.
| Lögbýli | Fjöldi íbúa | |
| Samtals lögbýli án háhraðatenginga | 1.603 | 5.961 |
| Þéttbýli án háhraðatenginga | 69 | 277 |
| Samtals | 1.672 | 6.238 |
Þannig má gera ráð fyrir því að um 6.300 manns eigi ekki kost á háhraðatengingu nú. Á árinu 2004 kom fram í svari samgönguráðherra við fyrirspurn á Alþingi að rúmlega 22.000 manns ættu ekki kost á háhraðatengingum. 3 Samkvæmt þessu hefur þeim því fækkað mjög á undanförnum tveimur árum sem ekki eiga kost á háhraðanettengingum. En samkvæmt þessu eiga tæplega 98% landsmanna kost á háhraðatengingum. Næstu skref í greiningarvinnunni er að kanna fyrirhuguð áform markaðsaðila um uppbyggingu.
Einnig er hafin vinna við að skilgreina þjónustu- og gæðakröfur, það er að segja að skilgreina lágmarksgæði þeirra lausna sem sjóðurinn ætlar að styrkja. Þá er verið að skoða í samvinnu við Ríkiskaup hvaða útboðsleið hentar best fyrir þetta verkefni. Stefnt er að því að auglýsa útboð á fyrri hluta ársins 2007.
2.2.3 Dreifing á dagskrá RÚV um gervihnött.
Markmiðið er, sbr. fjarskiptaáætlun, að dreifing sjónvarpsdagskrár Ríkisútvarpsins, auk hljóðvarps Rásar 1 og Rásar 2, til sjómanna á miðum við landið og til strjálbýlli svæða, verði stafræn um gervihnött. Verkefnið er því að tryggja að sjófarendur og íbúar strjálbýlli svæða, sem ekki njóta fullnægjandi þjónustu, eigi möguleika á að ná sjónvarpsdagskrá RÚV, auk hljóðvarps Rásar 1 og Rásar 2 stafrænt í gegnum gervihnött.
Stjórn fjarskiptasjóðs leitaði síðastliðið vor eftir samstarfi við Ríkisútvarpið um þetta verkefni. Og eins og með önnur verkefni sjóðsins var óskað eftir aðstoð Ríkiskaupa.
Verkefnið er ekki útboðsskylt þar sem það fellur ekki undir lög um opinber innkaup né innkaupatilskipanir. Hins vegar var ákveðið að fara í afbrigði af útboði/samningskaupaferli til að tryggja að umbeðin þjónusta fengist af sem mestum gæðum fyrir sem hagstæðast verð. Sumarið 2006 fór í að vinna tilboðsgögn en valdir voru 9 aðilar og þeim boðin þátttaka. Boð um þátttöku var sent í lok september og frestur til að senda inn tilboð gefinn fram í nóvember. Tilboð bárust frá eftirfarandi þremur aðilum:
– Eutelsat
– Intelsat
– Telenor
Í framhaldinu var gengið til samningaviðræðna við Telenor og var skrifað undir samning við fyrirtækið 1. febrúar 2007. Stefnt er að því að útsendingar hefjist í byrjun apríl næstkomandi og þá á almenningur í hinum dreifðu byggðum og sjómenn að geta farið að nýta sér þjónustuna. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er kringum 150 milljónir króna á næstu þremur árum.
2.3 Fjármál.
Með fjáraukalögum ársins 2005 var úthlutað til sjóðsins 1.000 millj. kr. af söluandvirði Símans. Í greinargerð með frumvarpinu sagði að auk þess framlags skyldi varið til hans 1.500 millj. kr. með jöfnum framlögum árin 2007–2009. Með fjáraukalögum ársins 2006 var síðan ákveðið að veita 500 millj. kr. til sjóðsins í stað þess framlags sem koma átti á árinu 2007. Starfsemi sjóðsins hófst með skipan stjórnar hans hinn 1. febrúar 2006. Fjárheimild hans var þannig við upphaf starfseminnar 1.000 millj. kr. en hækkaði í 1.500 millj. kr. með samþykkt fjáraukalaga ársins 2006. Kostnaður við starfsemi sjóðsins á árinu 2006 var alls um 36,5 millj. kr. og óráðstafaðar fjárheimildir í árslok þannig 1.463,5 millj. kr. Meginkostnaður, sem féll til á árinu, var vegna kostnaðar Póst- og fjarskiptastofnunar af starfsemi sem tengist verkefnum sjóðsins og svo kaup á sérfræðiþjónustu við gerð útboðsgagna. Í töflu 2 má sjá sundurliðun kostnaðar á árinu 2006.
Tafla 2. Sundurliðun kostnaðar fjarskiptasjóðs á árinu 2006.
| Laun stjórnar | 3.179.869 |
| Ferðakostnaður | 925.083 |
| Kostn. v. starfsm. hjá Póst- og fjarskiptastofnun | 18.017.609 |
| Ríkiskaup | 3.327.544 |
| Sérfræðiráðgjöf | 10.843.775 |
| Annar kostnaður | 133.956 |
| Samtals | 36.427.836 |
3. Einstök markmið (verkefni) fjarskiptaáætlunar.
3.1 Forskot.
* Lögð verði áhersla á að þau tækifæri, sem felast í góðum fjarskiptum, góðri menntun og tækniþróun, verði nýtt til að skapa störf og auka hagsæld um land allt.
3.1.1 Staða Íslands í samanburði við aðrar þjóðir.
– Íslensk fyrirtæki og stofnanir nái forskoti á aðrar þjóðir í að hagnýta fjarskiptatækni í þjónustu- og framleiðslugreinum.
Mikilvægt er að Ísland sé í fremstu röð í að hagnýta fjarskiptatækni enda eru mikil jákvæð efnahagsleg áhrif tengd því. Hér á eftir er gerð grein fyrir stöðu fjarskiptamála hér á landi í alþjóðlegu samhengi með því að bera saman helstu mælikvarða um árangur á því sviði.
Eftirfarandi eru þeir mælikvarðar sem hafðir eru til hliðsjónar:
* Framboð þjónustu og tækni.
* Aðgengi almennings að fjarskiptaþjónustu.
* Notkun almennings á fjarskiptaþjónustu.
* Verð á fjarskiptaþjónustu.
Sú fjarskiptaþjónusta, sem er til skoðunar, er eftirfarandi:
* Fastanet fyrir talsíma.
* Farsímaþjónusta.
* Háhraðatengingar.
Gengið er út frá því markmiði að Ísland hafi forskot á a.m.k. 25 OECD-lönd af 30 löndum hvað varðar framboð, aðgengi (e. coverage), útbreiðslu (e. penetration) og verð fjarskiptaþjónustu. Ef gögn um viðkomandi þætti eru ekki tiltæk fyrir OECD-lönd þá er markmiðið að Ísland hafi forskot á a.m.k. 2 af 5 norrænum löndum.
Í töflu 3 má sjá yfirlit um forskot sem Ísland hefur á önnur lönd á árinu 2005 út frá ofangreindum markmiðum. Samkvæmt fjarskiptaáætlun er markmiðið að viðhalda því forskoti sem fyrir er og stuðla að úrbótum þar sem það er ekki fyrir hendi fyrir árið 2011.
Tafla 3. Forskot Íslands 2005.
| Forskot | Fastanet talsíma | Farsímanet | Háhraðatengingar | ||
| Áskriftir | Kort | Landsvísu | Landsbyggð | ||
| Framboð | Já | Nei | Nei | Já | Já |
| Aðgengi | Já | Já | Já | Já | Já |
| Notkun | Nei* | Já | Já | Já | Já |
| Verð | Já | Nei | Já | Nei | Nei |
| Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun. *Miðast við árið 2003. | |||||
Hér á eftir er gerð nánari grein fyrir þeirri tölfræði sem liggur til grundvallar þeirri niðurstöðu sem fram kemur í töflu 3.
Farsími og fastlínusími.
Framboð þjónustu og tækni.
Tafla 4 lýsir framboði á þjónustu og tækni á farsímamarkaði hér á landi í samanburði við önnur norræn lönd. Sjá má að öll Norðurlönd að Íslandi frátöldu eru byrjuð með þriðju kynslóð farsíma. Þá er að auki NMT-farsímakerfi í notkun hér á landi eins og í Danmörku og Svíþjóð en fyrir liggur að það muni verða lagt niður hér á landi í síðasta lagi í árslok 2008. Einnig er stefnt að því að leggja niður NMT-kerfið í Danmörku og Svíþjóð á næstu árum. Af þessu má álykta að framboð farsímaþjónustu sé meira í öðrum norrænum löndum þar sem þriðju kynslóðar farsímakerfi (UMTS-kerfi) er ekki enn í boði hér á landi. Undirbúningur hefur þó verið í gangi vegna þriðju kynslóðar farsíma hér á landi og auglýsti Póst- og fjarskiptastofnun í lok árs 2006 útboð tíðniheimilda fyrir þriðju kynslóð farsíma. Óhætt er að álykta að framboð talsímaþjónustu á fastaneti sé a.m.k. jafngóð og gerist annars staðar á Norðurlöndum.
Tafla 4. Framboð þjónustu og tækni 2005.
| Lönd/tækni | Ísland | Danmörk | Svíþjóð | Finnland | Noregur |
| NMT | Já | Já | Já | Nei | Nei |
| GSM 900/1800 | Já | Já | Já | Já | Já |
| UMTS | Nei | Já | Já | Já | Já |
| Heimild: Competition and regulation in the Nordic mobile markets. September 2006. Skýrsla norrænu eftirlitsstofnananna á fjarskiptamarkaði. | |||||
Aðgengi almennings að fjarskiptaþjónustu.
Öll byggðarlög á Íslandi eiga kost á fastlínu- og farsímasambandi hér á landi. Farsímakerfi Símans nær til um 98% landsmanna og farsímakerfi Vodafone nær til um 83% landsmanna en 98% útbreiðslu er náð með reikisamningi við Símann.
Notkun almennings á fjarskiptaþjónustu.
Tafla 5 lýsir útbreiðslu á fastlínu- og farsímanotkun hér á landi í samanburði við önnur OECD-lönd. Niðurstaðan sýnir stöðu Íslands miðað við önnur OECD-lönd þar sem 1 er mesta útbreiðsla, 2 sú næstmesta o.s.frv. Notkun fastlínu fer eftir fjölda rása á fastaneti á hverja 100 íbúa og hefur hún farið minnkandi hér á landi frá árinu 2000 eftir því sem notkun farsíma hefur aukist. Notkun farsíma í töflu 5 fer eftir útbreiðslu áskrifta og fyrirframgreiddra korta í hlutfalli af íbúafjölda en í lok árs 2005 var hlutfallið um 100% hér á landi. 4
Tafla 5. Notkun fastlínu- og farsíma.
| Útbreiðsla | Norðurlönd | Sæti innan OECD ár hvert | ||||
| Ár/þjónusta | 2005 | 2003 | 2002 | 2002 | 2000 | 1999 |
| Fastlína | 6 | 7 | 7 | 7 | 5 | |
| Farsími | 3 | 6 | 5 | 4 | 5 | 4 |
| Heimild: OECD Communications outlook 2005. Skýrsla eftirlitsstofnananna á fjarskiptamarkaði, 2006. Competition and regulation in the Nordic mobile markets. | ||||||
| Skýringar: Aðildarlönd OECD eru 30 þjóðir. Niðurstaða sýnir í hvaða sæti Ísland er af 30 löndum OECD. Notkun á fastaneti miðast við fjölda rása á hverja 100 íbúa. Notkun farsíma miðast við hlutfall notenda (fyrirframgreidd kort og áskriftir) af íbúafjölda hvers lands. | ||||||
Verð á fjarskiptaþjónustu.
Niðurstöður fyrir farsíma og fastlínusíma um meðalnotkun má sjá í töflu 6.
Tafla 6. Verð á fjarskiptaþjónustu.
| Verðsamanburður | Sæti innan OECD ár hvert | ||||
| Ár/Þjónusta | 2006 | 2005 | 2004 | 2003 | 2002 |
| Heimilissími | 3 | 1 | 1 | 1 | 1 |
| Fyrirtækjasími | 4 | 3 | 2 | 3 | 1 |
| GSM – eftirágreitt | 8 | 9 | 5 | 3 | 3 |
| GSM – fyrirfram | 9 | 5 | 3 | 2 | 3 |
| Heimild: Teligen. | |||||
| Skýring: Aðildarlönd OECD eru 30 þjóðir. Sæti 1 merkir að Ísland er með ódýrustu þjónustuna af mældum löndum OECD varðandi fjarskipti. Unnið upp úr verðskrám fjarskiptafyrirtækja í nóvember ár hvert. | |||||
Háhraðatengingar.
Hér á eftir er gerður samanburður á framboði, aðgengi og notkun almennings fyrir háhraðainternetsamband á Íslandi miðað við önnur Evrópulönd. Hér er um að ræða rannsókn sem unnin var af IDATE (www.idate.org) og kom út í september 2005. Að Íslandi meðtöldu er um að ræða 17 Evrópulönd en þau eru eftirfarandi: Austurríki, Belgía, Bretland, Danmörk, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalía, Lúxemborg, Noregur, Portúgal, Spánn, Svíþjóð og Þýskaland.
Byrjað er á því að bera saman þjónustuframboð miðað við tækni og það borið saman við önnur lönd. Því næst er aðgengi að háhraðainterneti flokkað eftir tveimur skilgreindum landsvæðum, þ.e.:
* Þéttbýlissvæði (e. urban). Skilgreint sem það landsvæði þar sem fólksfjöldi er meiri en 500 íbúar/km 2.
* Landsbyggðarsvæði (e. rural). Skilgreint sem það landsvæði þar sem fólksfjöldi er minni en 100 íbúar/km 2.
Þá er notkun þjónustu metin eftir fjölda áskrifenda á hverja 100 íbúa á ofangreindum þremur svæðum. Að lokum er gerður verðsamanburður á háhraðatengingum til heimila og fyrirtækja á Íslandi innan OECD (30 lönd) ásamt því að meta í hvaða sæti Ísland er ef tekið er mið af verði og þjónustu sem í boði er. Hér er um að ræða rannsókn sem unnin var af Wairuaconsulting (www.wairua.com) og kom út í maí 2006.
Framboð eftir tækni.
Tafla 7 lýsir notkun á háhraðatengingum á Íslandi eftir tækni í samanburði við önnur norræn lönd árin 2004 og 2005. Í árslok 2005 var almenn notkun háhraðatenginga hvað mest hér á landi á Norðurlöndunum og einnig innan OECD sé hún reiknuð í hlutfalli við íbúafjölda eða 26,7%. 5
Tafla 7. Notkun háhraðatenginga eftir tækni í hlutfalli við íbúafjölda í árslok 2004 og 2005.
| Lönd | Ísland | Danmörk | Noregur | Svíþjóð | Finnland | |||||
| Dags./Tækni | 2004 | 2005 | 2004 | 2005 | 2004 | 2005 | 2004 | 2005 | 2004 | 2005 |
| DSL | 17,2 | 25,9 | 11,7 | 15,3 | 10,7 | 17,8 | 9,8 | 13,3 | 10,4 | 19,5 |
| Kapal módem 6 | 0,2 | 0,1 | 6,7 | 7,2 | 2,3 | 2,9 | 2,7 | 3,4 | 2,2 | 2,8 |
| Önnur háhraðaþj. 7 | 0,8 | 0,6 | 1,8 | 2,5 | 0,9 | 1,2 | 3,7 | 3,6 | 0,1 | 0,1 |
| Samtals (%) | 18,2 | 26,7 | 20,2 | 25,0 | 13,9 | 21,9 | 16,2 | 20,3 | 12,7 | 22,5 |
| Heimild: Broadband Access Development in Europe, mynd 4.3. IDATE www.idate.org. September 2005. OECD fyrir árið 2005. Sjá: www.oecd.org/document/39/0,2340,en_2649_201185_36459431_1_1_1_1,00.html |
||||||||||
Aðgengi almennings að háhraðatengingum (e. coverage).
Tafla 8 sýnir hvar Ísland stendur hvað varðar aðgengi almennings að DSL-háhraðaþjónustu á landsvísu og á landsbyggðinni.
Tafla 8. Aðgengi almennings að háhraðatengingum (DSL) á landsvísu og á landsbyggðinni.
| Aðgengi að háhraðatengingum 8 | Sæti meðal 17 Evrópulanda | Sæti meðal 5 norrænna landa | |||
| Dags. | 31/12/2003 | 31/12/2004 | 31/12/2003 | 31/12/2004 | 31/12/2005 |
| Á landsvísu | 6 | 8 | 3 | 4 | 3 |
| Á landsbyggðinni | 6 | 8 | 3 | 4 | 3 |
| Heimild: Broadband Access Development in Europe. IDATE www.idate.org. September 2005. | |||||
| Skýringar: Sæti 1 merkir að aðgengi á viðkomandi þjónustu er mest hér á landi af 17 Evrópuþjóðum eða norrænu löndunum 5, Íslandi, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi eða Danmörku. | |||||
Notkun almennings á háhraðatengingum eftir landsvæðum (e. penetration).
Tafla 9 sýnir notkun háhraðatenginga á landsvísu og á landsbyggðinni í samanburði við önnur Evrópulönd annars vegar og önnur norræn lönd hins vegar.
Tafla 9. Notkun á háhraðatengingum (DSL, Kapal módem, FTTH, WLL,
gervihnattasambönd og PLC) á landsvísu og á landsbyggðinni.
| Notkun háhraðatenginga 9 | Sæti meðal 17 Evrópulanda | Sæti meðal 5 norrænna landa | |||
| Dags. | 31/12/2003 | 31/12/2004 | 31/12/2003 | 31/12/2004 | 31/12/2005 10 |
| Á landsvísu | 2 | 3 | 1 | 2 | 1 |
| Á landsbyggðinni | 4 | 3 | 3 | 1 | 1 |
| Heimild: Broadband Access Development in Europe, myndir 4.1 og 4.4. IDATE www.idate.org. September 2005. | |||||
| Skýringar: Sæti 1 merkir að notkun á viðkomandi þjónustu er mest hér á landi af 17 Evrópuþjóðum eða norrænu löndunum 5, Íslandi, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi eða Danmörku. | |||||
Verð fyrir háhraðatengingar.
Í töflu 10 má sjá hvar meðalhraði (upp- og niðurhal) er á Íslandi í samanburði við önnur Evrópulönd og norræn lönd sem verðsamanburðurinn byggist á.
Tafla 10. Meðalafkastageta í boði fyrir upphal og niðurhal.
| Afkastageta | 26 OECD-lönd | 5 norræn lönd | ||
| Niðurhal | Upphal | Niðurhal | Upphal | |
| Ísland (sæti) | 6 | 8 | 3 | 4 |
| Heimild: Comparison of OECD Broadband Markets, myndir 3 og 5. Maí 2006. Wairuaconsulting. | ||||
| Skýringar: Lægra sætisnúmer þýðir meiri hraði. | ||||
Hér á eftir má sjá niðurstöður úr samanburði Wairuaconsulting á verði og þjónustu fyrir háhraðatengingar í löndum OECD. Verð miðast við 5. maí 2006 og eru leiðrétt fyrir kaupmætti. Tafla 11 sýnir samanburð á mánaðargjaldi fyrir áskriftum.
Tafla 11. Mánaðargjald og tengigjald þann 5. maí 2006.
11
| Mánaðargjald | OECD-lönd (mánaðargjald 26 lönd, tengigjald 25 lönd) |
5 norræn lönd | ||
| Mánaðargjald | Tengigjald | Mánaðargjald | Tengigjald | |
| Ísland (sæti) | 16 | 23 | 4 | 5 |
| Heimild: Comparison of OECD Broadband Markets, myndir 9 og 13. Maí 2006. Wairuaconsulting. | ||||
| Skýringar: Lægra sætisnúmer þýðir lægri kostnaður. | ||||
Í töflu 12 er lagt mat á stöðu háhraðatenginga á Íslandi m.v. önnur OECD-lönd og norræn lönd út frá eftirfarandi fimm þáttum:
* Meðalhraða niðurhals.
* Meðalhraða upphals.
* Meðalmánaðargjaldi.
* Meðaltengigjaldi.
* Fjölda áskrifta með takmarkað gagnamagn (e. data caps).
Þá er Íslandi raðað niður eftir fjölda áskrifenda eftir íbúafjölda samanborið við önnur OECD-lönd og norræn lönd. 12
Tafla 12. Staða háhraðatenginga á Íslandi m.v. önnur OECD-lönd og fjöldi áskrifenda í árslok 2005.
| 26 OECD-lönd | 5 norræn lönd | |||
| Stöðumat | Fjöldi áskrifenda | Stöðumat | Fjöldi áskrifenda | |
| Ísland (sæti) | 13 | 1 | 4 | 1 |
| Heimild: Comparison of OECD Broadband Markets, tafla 8. Maí 2006. Wairuaconsulting. | ||||
| Skýringar: Lægra sætisnúmer þýðir betri stöðu og fleiri áskrifendur. | ||||
Samantekt.
Áskriftarhlutfall DSL-háhraðatenginga er mest hér á landi á Norðurlöndunum. Útbreiðsla háhraðatenginga á landsbyggðinni er í meðallagi góð hér á landi m.v. önnur Evrópulönd og norræn lönd en þrátt fyrir það er notkun háhraðatenginga á landsbyggðinni hvað mest hér á landi í Evrópu og á Norðurlöndunum.
Almenn staða háhraðatenginga á Íslandi er í meðallagi góð m.v. önnur OECD-lönd út frá ofangreindum fimm þáttum og næstverst á Norðurlöndunum á eftir Danmörku. Þar má helst um kenna háu verði háhraðatenginga hér á landi m.v. önnur lönd. Þrátt fyrir það eru flestir áskrifendur hér á landi m.v. íbúafjölda, bæði innan OECD og á Norðurlöndum.
3.1.2 Skerpt á ímynd Íslands þar sem fjarskipti eru til fyrirmyndar.
– Skerpt verði á ímynd Íslands sem lands þar sem fjarskipti eru til fyrirmyndar og styrkt með því staða þess í samkeppni um erlendar fjárfestingar.
Á árinu 2006 gaf samgönguráðuneytið út kynningarrit um fjarskiptaáætlun til ársins 2010 sem dreift var inn á öll heimili í landinu. Í kjölfarið efndi samgönguráðherra og forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar til tæplega þrjátíu kynningarfunda víðs vegar um landið þar sem markmið fjarskiptaáætlunar voru kynnt. Útgáfa kynningarritsins og fundirnir hafa haft í för með sér mikla vakningu í fjarskiptamálum á landinu. Þá var fjarskiptaáætlun þýdd yfir á ensku og er aðgengileg á veraldarvefnum. Þá hafa fulltrúar ráðuneytisins og Póst- og fjarskiptastofnunar kynnt áætlunina fyrir erlendum aðilum þegar tækifæri hafa gefist.
Fyrir ímynd Íslands sem lands þar sem fjarskipti eru til fyrirmyndar skiptir mestu að fjarskipti séu örugg og góð. Tvö verkefni fjarskiptaáætlunar hafa þar mikil áhrif. Í fyrsta lagi að allir landsmenn eigi kost á háhraðatengingu og í öðru lagi öruggt samband fjarskipta við umheiminn. Því til stuðnings má nefna að í nýlegri skýrslu nefndar forsætisráðherra um alþjóðlega fjármálastarfsemi kom fram að ein af meginforsendum þess að hægt sé að markaðssetja Ísland sem ákjósanlegt land fyrir alþjóðlega fjármálastarfsemi er fullkomið fjarskiptasamband milli Íslands og annarra landa. Þegar þessum markmiðum er náð er mikilvægt fyrir stjórnvöld og íslenskt atvinnulíf að koma þeim upplýsingum á framfæri til að laða að erlendar fjárfestingar.
3.1.3 Bætt fjarskipti notuð í atvinnulífinu til að vega á móti jaðaráhrifum.
– Notuð verði bætt fjarskipti til að vega á móti jaðaráhrifum í atvinnulífi á landsbyggðinni og í alþjóðaviðskiptum.
Það eru einkum tvö markmið fjarskiptaáætlunar sem stuðla að þessu, þ.e. að allir landsmenn eigi kost á háhraðatengingu og öruggt samband fjarskipta við útlönd.
3.2 Háhraðavæðing.
* Allir landsmenn, sem þess óska, geti tengst háhraðaneti og notið hagkvæmrar og öruggrar fjarskiptaþjónustu.
* Menntastofnanir verði tengdar öflugu háhraðaneti.
3.2.1 Aðgangur landsmanna að háhraðatengingu.
– Allir landsmenn, sem þess óska, hafi aðgang að háhraðatengingu árið 2007.
Kveðið er á um það markmið að allir landsmenn, sem þess óska, hafi aðgang að háhraðatengingu árið 2007. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem fjarskiptasjóður hefur fengið fjármagn til að vinna að og gerð er nánari grein fyrir í kafla 2.
3.2.2 Tenging menntastofnana við útlönd.
– Allar framhaldsskóla-, háskóla- og rannsóknastofnanir samnýti 2,5 Gbs-tengingu til útlanda árið 2006.
Rannsókna- og háskólanet Íslands, RH-net, tengir nú saman 16 háskóla- og rannsóknastofnanir með allt að 1 Gbps-tengihraða. Eins og fram kemur í fjarskiptaáætlun krefst nútímarannsóknarstarfsemi öflugs tölvubúnaðar og reiknigetu til að ráða við sífellt umfangsmeiri og flóknari mæli- og rannsóknagögn sem safnað er í fjölþjóðlegum verkefnum. Til þess að íslenskir vísindamenn og námsmenn geti tekið þátt í dreifðri netvinnslu, sem nú er að ryðja sér til rúms í alþjóðlegu rannsóknar- og háskólaumhverfi, þurfa þeir að hafa aðgang að háhraðatengingu til annarra landa sem að lágmarki er 2,5 Gbps.
Á árinu 2006 hafa menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti skoðað mögulegan flutning á utanlandstengingu RH-nets yfir á Farice-1 strenginn. Þá hefur verið rætt við fulltrúa stjórna RH-nets og Farice hf. um tæknilegar og fjárhagslegar hliðar málsins. Á árinu 2007 er stefnt að því að halda þessum viðræðum áfram og tryggja nægjanlegt fjármagn svo að mennta- og rannsóknastofnanir hafi aðgang að lágmarki 2,5 Gbps-tengingu til útlanda.
3.2.3 Framhaldsskólar.
– Allir framhaldsskólar verði tengdir öflugu háhraðaneti (lágmörk háð stærð skóla):
a. Árið 2006 100–1.000 Mbps.
b. Árið 2007/2008 1 Gbps.
FS-net er fjarskiptanet fyrir framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar og var stofnað af menntamálaráðuneytinu árið 2003. Menntamálaráðuneytið stóð fyrir útboði á FS-netinu og telst eigandi þess en aðilar að netinu eru nær allir framhaldsskólar og símenntunarmiðstöðvar í landinu. Tilgangur þess er að veita framhaldsskólum og símenntunarmiðstöðvum bestu mögulegu netþjónustu óháð staðsetningu þeirra. Jafnframt er netinu ætlað að vera vettvangur nýsköpunar og þróunar í kennsluháttum þar sem háhraðatenginga er krafist. Samningur við þjónustuaðila rennur út um mitt ár 2007 og er nú verið að skoða hvernig haga eigi útboði sem ráðgert er að auglýst verði á fyrri hluta ársins. Verkefnastjórn fjarskiptaáætlunar hefur lagt áherslu á að til hliðsjónar verði höfð þau viðmið sem fram koma í fjarskiptaáætlun þegar kröfur um tengingar í útboðinu verða ákveðnar.
3.2.4 Grunnskólar.
– Allir grunnskólar verði tengdir öflugu háhraðaneti (lágmörk háð stærð skóla):
a. Árið 2006 10–100 Mbps.
b. Árið 2007/2008 100–1.000 Mbps.
Gerð var könnun á stöðu grunnskólanna árið 2002 sem var svo uppfærð árið 2004. Samkvæmt þeirri könnun er ástand tenginga grunnskóla mjög misjafnt. Af 179 skólum eru 38 skólar nú þegar með góðar tengingar og í samræmi við markmið áætlunarinnar. Hins vegar eru 73 skólar með tengingar sem ekki geta talist háhraðatengingar. Verkefnastjórn fjarskiptaáætlunar telur mikilvægt að hugað verði að eflingu tenginga grunnskóla með markvissum hætti. Í því sambandi bendir stjórnin á hvort eigi sé mögulegt samstarf FS-netsins og grunnskóla.
3.2.5 Stofnanir ríkisins.
– Allar helstu stofnanir ríkisins verði tengdar öflugu háhraðaneti (lágmörk háð stærð stofnunar):
a. Árið 2006 10 Mbps.
b. Árið 2007 100–1.000 Mbps.
c. Árið 2010 1 Gbps.
Kveðið er á um að unnið skuli að því markmiði að allar helstu stofnanir ríkisins verði tengdar öflugu háhraðaneti og eru í því sambandi nefnd ákveðin lágmörk sem háð eru stærð stofnunar. Mikilvægt er að stofnanir séu meðvitaðar um markmið fjarskiptaáætlunar um tengingar en almennt er gengið út frá því að þær eigi sjálfar að afla sér tenginga í samræmi við þörf og viðmið fjarskiptaáætlunar.
Á árinu 2006 var unnið að því að fá stofnanir ríkisins til að viðhafa sameiginlegt útboð á fjarskiptaþjónustu. Með slíku útboði má ná fram markmiðum fjarskiptaáætlunar um betri tengingar til handa stofnunum ríkisins en að auki má ná fram fleiri markmiðum, svo sem ódýrari þjónustu og betri tengingum til stofnana úti á landi. Fjármálaráðuneytið og samgönguráðuneytið hafa saman leitt þá vinnu. Í byrjun var farið í greiningarvinnu en óskað var eftir upplýsingum frá öllum stofnunum um annars vegar núverandi gagnaflutningshraða stofnana og hins vegar æskilegan. Þessi upplýsingaöflun leiddi í ljós að margar stofnanir eru með tengingar sem hvorki fullnægja þörfum þeirrar þjónustu sem þær veita né kröfum viðskiptavina þeirra.
Vegagerðin vann að og auglýsti útboð á háhraðatengingum stofnunarinnar á árinu 2006. Í kjölfar útboðsins skrifaði stofnunin undir samning við Símann hf. um kaup á víðnetsþjónustu fyrir stofnunina. Í útboðsgögnum voru sett upp annars vegar lágmarkskröfur um sambönd og hins vegar æskilegar. Kostnaðarmat við gerð útboðs hljóðaði upp á 900 þús. kr. fyrir lágmarkshraða en 1,3 millj. kr. fyrir æskilegan hraða. Tvö tilboð bárust sem voru það hagstæð að ákveðið var að semja um æskilegan hraða en ekki lágmarkshraða. Eins og fram kemur í minnisblaði Vegagerðarinnar til samgönguráðuneytisins náði stofnunum öllum sínum markmiðum með útboðinu, lækkaði verð og jók hraða sambanda. Þannig ca. 10 faldast tengihraði á 14 starfsstöðvum á landinu, en 50 faldast á öðrum stöðum. Þrátt fyrir það verður kostnaður stofnunarinnar vegna háhraðatenginga minni eftir útboðið.
Í samvinnu við fjármálaráðuneyti og samgönguráðuneyti var reynt að fá fleiri stofnanir til að taka þátt í útboði Vegagerðarinnar. Haldnir voru fundir með stofnunum og ráðuneytum og þeim gerð grein fyrir útboðinu og boðin þátttaka. Síðastliðið haust lá hins vegar fyrir að fáar stofnanir hefðu sýnt áhuga á þátttöku. Í framhaldinu lagði samgönguráðherra fram minnisblað í ríkisstjórn þar sem gerð var grein fyrir stöðu málsins og ráðuneytin hvött til þess að leggja ríka áherslu á að stofnanir þeirra tæku þátt í sameiginlegu útboði á fjarskiptaþjónustu hins opinbera í þeim tilgangi að bæta tengingar til stofnana ríkisins.
Verkefnastjórn fjarskiptaáætlunar leggur áherslu á að á árinu 2007 verði haldið áfram að hvetja stofnanir til að fara í sameiginlegt útboð á fjarskiptaþjónustu.
3.2.6 Löggjöf um höfundarétt.
– Íslensk löggjöf um höfundarétt þróist í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar með tilliti til hagsmuna neytenda og rétthafa. Framboð efnis á háhraðanetum verði aukið.
Alþingi samþykkti á árinu 2006 breytingar á lögum um höfundarétt, sbr. lög 9/2006. Með lögunum er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/29/EB frá 22. maí 2001, um samræmingu tiltekinna þátta höfundaréttar og skyldra réttinda í upplýsingasamfélaginu. Þessar lagabreytingar og innleiðing tilskipunar 2001/29/EB miða að því að styrkja réttindi höfunda, flytjenda og framleiðenda efnis. En lögvernd fyrir tækni og ráðstöfunum, sem ætlað er að verja efni höfunda gegn óheimilli notkun og dreifingu, er hins vegar mikilvæg forsenda þess að höfundar og útgefendur treysti sér yfirleitt til þess að bjóða fram efni með löglegum hætti á netinu.
Þá er kveðið á um það í þjónustusamningi, með frumvarpi því sem samþykkt var á Alþingi í janúar og sem mun taka gildi þann 1. apríl 2007, að stefnt skuli að því að heimila útvarps- og sjónvarpsstöðvum að endurflytja og eftir atvikum veita almenningi aðgang að áður útsendu efni. Slíkir samningar hafa enn ekki verið gerðir en í samningi um útvarpsþjónustu í almannaþágu við Ríkisútvarpið er ákvæði í 3. gr. samningsins þar sem kveðið er á um að stefnt sé að því á samningstímanum að ná heildarsamkomulagi við rétthafa um víðtækari notkun á eldra safnaefni til að gera það aðgengilegra almenningi.
3.3 Farsamband.
* Öryggi vegfarenda verði bætt með auknu aðgengi að farsímaþjónustu á þjóðvegum landsins og helstu ferðamannastöðum.
* Háhraðafarþjónusta verði byggð upp um allt land.
* Langdræg stafræn farsímakerfi til að þjóna landinu öllu og miðunum verði byggð upp.
3.3.1 Uppbygging GSM-dreifikerfis á þjóðvegum og ferðamannastöðum.
– GSM-farsímaþjónusta verði aðgengileg á þjóðvegi 1 og öðrum helstu stofnvegum, á helstu ferðamannastöðum og minni þéttbýlisstöðum, sbr. samþjónustumarkmið fyrir árið 2006.
Þetta er eitt af þeim verkefnum sem fjarskiptasjóður hefur fengið fjármagn til að vinna að og gerð er nánari grein fyrir í kafla 2.
3.3.2 Háhraðafarþjónusta.
– Háhraðafarþjónusta standi til boða um allt land eigi síðar en 2006.
Í desember sl. bauð Póst- og fjarskiptastofnun út tíðnir fyrir þriðju kynslóð farsíma í samræmi við lög um þriðju kynslóð farsíma, nr. 8/2005, í framhaldi af auknum áhuga markaðsaðila á að ráðast í uppbyggingu þriðju kynslóðar farsímakerfa. Áður hafði farið fram samráð við hagsmunaaðila í formi umræðuskjals með helstu útboðsskilmálum og bárust athugasemdir og ábendingar frá þremur fjarskiptafyrirtækjum.
Umsóknarfrestur er til 12. mars 2007 og er gert ráð fyrir að tíðniheimildir verði gefnar út fyrir 1. apríl nk. Að hámarki verða gefnar út 4 tíðniheimildir.
Meðal lágmarkskrafna, sem tilboðsgjafar verða að uppfylla, er að þjónustan nái a.m.k. til 40% íbúa landsins innan 18 mánaða frá útgáfu tíðniheimildarinnar, þ.e. fyrir 1. október 2008. Tólf mánuðum síðar, þ.e. fyrir 1. október 2009, skal þjónustan ná til a.m.k. 30% íbúa í sérhverju kjördæmi landsins. Fyrir 1. apríl 2011 skal þjónustan svo ná til a.m.k. 60% íbúa í sérhverju kjördæmi. Ef bjóðendur veita þjónustu umfram lágmarksútbreiðslukröfur fyrir 1. október 2012, þ.e. umfram 60% íbúa utan höfuðborgarsvæðisins, fá þeir sérstakan afslátt af tíðnigjöldum í samræmi við ákvæði laga nr. 8/2005.
3.3.3 Arftaki NMT-kerfisins.
– Langdræg stafræn farsímaþjónusta standi til boða um allt land og á miðum við landið eftir að rekstri NMT-kerfisins lýkur.
Ákveðið hefur verið að allt tíðnisviðið, sem nýtt hefur verið fyrir NMT-kerfið, verði úthlutað einum aðila. Póst- og fjarskiptastofnun sendi út umræðuskjal með helstu útboðsskilmálum í lok janúar 2007 þar sem hagsmunaaðilum var gefinn kostur á að koma með athugasemdir og ábendingar. Stefnt er að því að útboðsgögn verði birt í febrúar 2007 og að tilboð þurfi að berast í maí 2007. Tíðniheimild verður væntanlega gefin út um mitt ár 2007.
Gerð verður sú krafa í útboðslýsingu að útbreiðsla verði a.m.k. jafnvíðtæk og núverandi NMT-þjónusta. Gert er ráð fyrir að í nýja kerfinu verði unnt að veita margvíslega þjónustu sem ekki er til staðar í NMT-kerfinu.
Símanum hefur verið gert að starfrækja NMT-farsímakerfið til ársloka 2008. Gert er ráð fyrir að nýtt langdrægt, stafrænt kerfi verði tekið í notkun fyrri hluta árs 2008 á hluta tíðnisviðsins. Í ársbyrjun 2009 mun nýja kerfið hafa allt NMT-tíðnisviðið til ráðstöfunar og unnt verður að veita fulla þjónustu.
3.4 Stafrænt sjónvarp og hljóðvarp.
* Allir landsmenn hafi aðgengi að gagnvirku stafrænu sjónvarpi.
* Útvarpað verði um gervihnött fyrir landið allt og næstu mið.
3.4.1 Stafrænt sjónvarp um háhraðanet.
– Stafrænt sjónvarp um háhraðanet verði boðið árið 2005.
Stafrænar útsendingar í gegnum loftið eða ADSL eru þegar hafnar. Póst- og fjarskiptastofnun hefur ekki safnað upplýsingum um fjölda notenda með gagnvirka sjónvarpsþjónustu en hyggst byrja á því með tölfræðieyðublaði fyrir árið 2006 sem mun berast fjarskiptafyrirtækjum í janúar 2007. Upplýsingar um fjölda notenda í árslok 2006 ætti því að liggja fyrir hjá stofnuninni í mars mánuði 2007.
3.4.2 Stafræn dreifing á dagskrá RÚV í gegnum gervihnött.
– Dreifing sjónvarpsdagskrár Ríkisútvarpsins, auk hljóðvarps Rásar 1 og Rásar 2, til sjómanna á miðum við landið og til strjálbýlli svæða verði stafræn um gervihnött.
Kveðið er á um það verkefni í áætluninni að dreifing á sjónvarpsdagskrá Ríkisútvarpsins, auk hljóðvarps Rásar 1 og Rásar 2, til sjómanna á miðum við landið og til strjálbýlli svæða verði stafræn um gervihnött. Þetta er eitt af þeim þremur verkefnum sem fjarskiptasjóður hefur fengið fjármagn til að standa straum af og er gerð nánari grein fyrir því í kafla 2.
3.4.3 UHF-sjónvarpstíðnir.
– Boðnar verði út UHF-sjónvarpstíðnir fyrir stafrænt sjónvarp á árinu 2005.
Á fyrri hluta árs 2005 auglýsti Póst- og fjarskiptastofnun útboð á UHF-sjónvarpstíðnum. Umsóknir bárust frá tveimur aðilum, RÚV og 365 ljósvakamiðlum ehf. Báðir umsækjendur fengu úthlutað tíðnum 8. júlí 2005. Samkvæmt útboðsskilmálum skyldi dreifikerfið ná til a.m.k. 40 sveitarfélaga innan eins árs frá útgáfu tíðniheimildarinnar, þ.e. fyrir 8. júlí 2006, og innan tveggja ára, þ.e. fyrir 8. júlí 2007, skyldi útbreiðslan ná til a.m.k. 98% heimila í landinu.
Uppbygging dreifikerfis 365 ljósvakamiðla ehf. (nú Vodafone) hefur verið nokkurn veginn á áætlun en RÚV hefur ekki hafið uppbygginguna.
3.4.4 Stafrænt gagnvirkt sjónvarp nái til því sem næst allra landsmanna árið 2007.
– Stafrænt gagnvirkt sjónvarp nái til því sem næst allra landsmanna árið 2007.
Með gagnvirku sjónvarpi er átt við að sjónvarpsnotendur geti sent upplýsingar með rafrænum hætti til sjónvarpsstöðvar og haft þannig áhrif á útsendingar frá sjónvarpsstöð. Dæmi um þetta er ,,sjónvarp eftir pöntun“ (Video-on-Demand).
Sú fjarskiptaleið, sem notuð er til að koma upplýsingum frá notenda til sjónvarpsstöðvar, getur verið, en þarf ekki að vera, á sama dreifikerfi og hin eiginlega sjónvarpsdreifing. Þannig má t.d. nota farsímakerfi (GSM) eða fastlínukerfi til þess að senda upplýsingar til sjónvarpsstöðvar óháð því hvert sjónvarpsdreifikerfið er.
Með sjónvarpsdreifingu á kopar-heimtaugum, t.d. ADSL, liggur nokkuð beint við að nota sama dreifikerfi, þ.e. heimtaugarnar, fyrir sendingar frá notanda til sjónvarpsstöðvar.
Með stafrænu sjónvarpi á UHF-sjónvarpstíðnum má segja að allar tæknilegar forsendur fyrir gagnvirkt sjónvarp séu fyrir hendi þar sem sendingar frá notanda til sjónvarpsstöðvar má útfæra með margvíslegum hætti sem nú þegar er fyrir hendi, t.d. með fastlínusíma, GSM eða annarri þráðlausri tækni.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ekki upplýsingar um hve margir landsmenn eiga kost á gagnvirku sjónvarpi. Stofnunin telur að samkeppni á markaði verði helsti drifkrafturinn í þessu efni.
3.4.5 Hliðrænt dreifikerfi fyrir sjónvarp lagt niður.
– Hliðrænt dreifikerfi fyrir sjónvarp verði lagt niður eigi síðar en árið 2010.
Yfirfærsla rekstraraðila sjónvarpsdreifineta frá hliðrænni tækni yfir á stafræna er í fullum gangi. Þar má nefna ADSL Símans, Digital Ísland, Val+, gervihnattarsjónvarp o.fl.
Til að tryggja að stafrænt merki Ríkisútvarpsins verði aðgengilegt öllum landsmönnum bæði á landi og á næstu miðum verður RÚV jafnframt aðgengilegt í gegnum gervihnött í byrjun apríl 2007. Auk þess er kveðið á um það í þjónustusamningi, með frumvarpi því sem samþykkt var á Alþingi í janúar og sem mun taka gildi þann 1. apríl nk., að menntamálaráðuneytið og RÚV geri með sér samning fyrir lok þessa árs um stafræna dreifingu og þjónustu í hljóðvarpi og sjónvarpi. Í samningnum á eftirfarandi að koma fram:
* Hvaða tækni RÚV hyggst nota til að ná til allra landsmanna.
* Hvaða tímaramma RÚV setur sér í útbreiðslu á stafrænu hljóðvarpi og sjónvarpi.
* Hvernig RÚV hyggst hvetja alla landsmenn til að skipta úr hliðrænni yfir í stafræna tækni áður en slökkt verður á hliðrænum hljóðvarps- og sjónvarpsútsendingum hér á landi.
* Hvort RÚV hyggst byggja upp eigið dreifikerfi, nota dreifikerfi annarra eða efna til samstarfs um dreifingu með öðrum hætti.
* Upplýsingar um fyrirhugaða þjónustu í grafísku þjónustuviðmóti í stafrænu sjónvarpi.
* Hvort og þá hvaða gagnvirka þjónustu RÚV hyggst veita í stafrænu sjónvarpi.
* Hvaða áform RÚV hefur í útsendingum á breiðtjaldi og háskerpu.
3.4.6 Aðgangur að lokuðum dreifikerfum.
– Stjórnvöld tryggi sjónvarpsstöðvum, sem hafa skyldur við almenning, aðgengi að lokuðum dreifikerfum.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur gefið út reglur um skilyrt aðgangskerfi og notendabúnað fyrir stafrænt sjónvarp, nr. 570/2006. Í þessum reglum er kveðið á um aðgang útvarpsstöðva og annarra efnisveitenda að skilyrtum aðgangskerfum, án mismununar og á sanngjörnum og réttmætum kjörum.
3.5 Öryggi og persónuvernd.
* Öryggi almennra fjarskiptaneta innan lands og við umheiminn verði tryggt með fullnægjandi varasamböndum.
* Öryggi netsins verði bætt svo að almenningur geti treyst á það í viðskiptum og daglegu lífi.
3.5.1 Leiðbeiningar til neytenda.
– Leiðbeiningum og fræðsluefni um öryggismál, neytendavernd, persónuvernd og siðferðileg álitaefni verði miðlað til neytenda.
Í janúar 2006 var opnaður vefurinn www.netöryggi.is. Vefurinn veitir upplýsingar til neytenda um öryggi nettengdra tölva, m.a. um eldveggi, veiruvarnir og öryggisstillingar. Jafnframt eru veittar upplýsingar um örugga netnotkun einstaklinga. Þannig eru t.d. veitt ráð um val á lykilorðum, hvað beri að hafa í huga við viðskipti á netinu, blekkjandi tölvupóst, o.s.frv. Þá eru tenglar inn á aðra vefi sem fjalla um persónuvernd og siðferðileg álitaefni, m.a. SAFT-verkefnið og vef Persónuverndar. Vefurinn verður opnaður í breyttu formi í byrjun mars 2007.
3.5.2 Vinnuhópur til að herða viðbrögð við óværu á netinu.
– Stofnaður verði vinnuhópur til að herða viðbrögð við óværu á netinu.
Viðbrögð við hættum á netinu er verkefni sem unnið er í alþjóðlegri samvinnu. Í flestum löndum eru mismargir viðbragðshópar sem þjóna mismunandi markhópum, t.d. háskólum eða hinu opinbera. Þessi hópar hafa náin tengsl og skiptast á upplýsingum. Reynsla annarra þjóða er að slíkir hópar krefjast mannafla og fjármagns. Póst- og fjarskiptastofnun hefur unnið að skoðun þessara mála og mun innan tíðar móta fyrstu kostnaðaráætlun. Að teknu tilliti til kostnaðarins og ávinnings verður tekin ákvörðun um framhaldið.
3.5.3 Öryggisviðmið og lágmarksgæðakröfur vegna virkni fastaneta og farsímaneta.
– Skilgreind verði skýr öryggisviðmið og lágmarksgæðakröfur vegna virkni fastaneta og farsímaneta. Eftirfylgni verði tryggð.
Fyrir Alþingi liggur fyrir frumvarp til breytinga á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003. Meðal þeirra breytinga, sem kveðið er á um í frumvarpinu, er að stofnuninni verði veitt heimild til að setja reglur sem taka á þessu markmiði. Póst- og fjarskiptastofnun er nú með í smíðum reglur um virkni almennra fjarskiptaneta. Markmið reglnanna er að auka neytendavernd og treysta stoðir upplýsingasamfélagsins. Í þeim er kveðið á um þær ráðstafanir sem Póst- og fjarskiptastofnun telur nauðsynlegt að fjarskiptafyrirtækin geri til að tryggja órofinn og samfelldan rekstur almennra fjarskiptaneta. Samkvæmt reglunum skulu fyrirtækin gera ráðstafanir sem lúta að varaleiðum, burðargetu kerfa, stjórn þeirra og ytra umhverfi.
3.5.4 Skilgreining krafna um gæði og rekstraröryggi til netþjónustuaðila.
– Skilgreint verði hvaða kröfur um gæði og rekstraröryggi á að gera til netþjónustuaðila.
Fyrir Alþingi liggur fyrir frumvarp til breytinga á lögum um fjarskipta, nr. 81/2003. Meðal þeirra breytinga, sem kveðið er á um í frumvarpinu, er að stofnuninni verði veitt heimild til að setja reglur um vernd, virkni og gæði IP-netþjónustu. Póst- og fjarskiptastofnun er nú með í smíðum reglur er taka á þessum málum. Markmið reglnanna eru aukin gæði netþjónustu og betri upplýsingagjöf til viðskiptavina fjarskiptafyrirtækja í þeim tilgangi að auka neytendavernd og treysta stoðir upplýsingasamfélagsins. Með reglum þessum er kveðið á um þær ráðstafanir sem Póst- og fjarskiptastofnun telur eðlilegt að fjarskiptafyrirtækin geri. Samkvæmt þeim skal leitast við að tryggja vernd, virkni og gæði netþjónustunnar með viðeigandi ráðstöfunum sem lúta að þjónustunni og þjónustusamningum. Enn fremur með stjórnun þeirra neta sem þjónustan er veitt yfir sem er undirstaða og forsenda góðrar netþjónustu.
3.5.5 Tengingar við útlönd.
– Gert verði áhættumat um tengingu landsins við útlönd og tryggt að öryggismálum verði þannig háttað að tenging rofni ekki. Lágmarksþjónusta og viðbragðsáætlun verði skilgreindar ef bregðast þarf við bilun eða ógn, t.d. ef tenging um sæstreng rofnar.
Um þessar mundir er Ísland tengt umheiminum með tveimur sæstrengjum. Ljósleiðarasæstrengurinn Farice-1 liggur á milli Íslands og Skotlands, með tengingu við Færeyjar, en rekstur Farice-1 hófst í janúar 2004. Eldri ljósleiðarastrengur, Cantat-3, var tekinn í notkun árið 1994 og liggur frá Kanada til Danmerkur, Englands og Þýskalands með greiningum til Færeyja og Íslands. Hann er byggður á gamalli tækni á mælikvarða slíkra strengja, hefur takmarkaða flutningsgetu og örfá ár eru í að gagnaflutningur frá Íslandi verði meiri en flutningsgeta hans leyfir. Þá hefur því verið haldið fram að Cantat-3 geti dugað sem varaleið til ársins 2010. Þá er einnig varasamband í gegnum gervihnetti en slíkt varasamband getur vart annað meiru en talsímaumferð. Engar fastar gervihnattatengingar fjarskiptafyrirtækja eru virkar við landið og flestir afkastamiklir móttökustaðir gervihnattasendinga hafa verið aflagðir hérlendis.
Á árinu 2006 var unnin skýrsla um mat á þjóðfélagslegum áhrifum þess að rof yrði á fjarskiptasamböndum Íslands við umheiminn og lagt mat á valkosti þá sem standa til boða til að auka öryggi útlandatenginga. Skýrslan var unnin af ráðgjafafyrirtækinu ParX en Póst- og fjarskiptastofnun óskaði eftir gerð hennar. Skýrslan lá fyrir í endanlegri mynd í desember 2006. 13 Þeir valmöguleikar, sem Íslendingum standa til boða, eru raktir í skýrslunni en þeim má skipta upp í tvo meginþætti, annars vegar út frá fjárhagslegri hagkvæmni og hins vegar út frá öryggissjónarmiðum. Meginniðurstaða skýrslunnar er að leggja þarf nýjan streng til landsins innan fárra ára. Þau sjónarmið, sem þarf að vega og meta í því sambandi, eru þá helst þau er lúta að tímasetningu og fjárhags- og öryggissjónarmiðum.
Í júní 2006 skipaði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra starfshóp til að gera tillögu um hvernig tryggja mætti varasamband fjarskipta við umheiminn í framtíðinni og eftir atvikum skila útfærðum tillögum um fjármögnun, eignarhald og framkvæmdatíma. Starfshópurinn lagði til að nýr sæstrengur yrði lagður frá Íslandi til Evrópu. Í niðurstöðum starfshópsins sagði m.a. að nauðsynlegt verði, eins og fram kemur í fjarskiptaáætlun sem Alþingi samþykkti vorið 2005, að ávallt séu tveir sæstrengir tengdir við landið auk varasambands um gervihnött. Þá benti starfshópurinn á þau tækifæri sem felast í að hafa öruggt varasamband og benti í því sambandi á nýlega skýrslu nefndar forsætisráðherra um alþjóðlega fjármálastarfsemi en þar kemur fram að ein af meginforsendum þess að hægt sé að markaðssetja Ísland sem ákjósanlegt land fyrir alþjóðlega fjármálastarfsemi sé fullkomið fjarskiptasamband milli Íslands og annarra landa. Þá felast tækifærin ekki bara í alþjóðlegri fjármálastarfsemi heldur einnig í t.d. rekstri netvera og gagnaþjónustumiðstöðva.
Starfshópurinn skoðaði mismunandi kosti við lagningu nýrra sæstrengja. Sérstaklega voru skoðaðir þrír kostir. Í fyrsta lagi sæstrengur frá Íslandi til Skotlands með greiningu til Færeyja. Í öðru lagi sæstrengur frá Íslandi til Írlands með greiningu til Færeyja og í þriðja lagi frá Íslandi til Írlands án greiningar til Færeyja. Niðurstaðan er sú að kostnaður við lagningu á þessum sæstrengjum sé á bilinu 31–44 millj. evra. Kostnaður við lagningu sæstrengs frá Íslandi til Írlands með greiningu til Færeyja er dýrastur en ástæðan er sú að greining til Færeyja er mun lengri en ef farið yrði til Skotlands. Hópurinn taldi þó ákveðna kosti því samhliða að leggja sæstreng til Írlands. Sæstrengurinn myndi þá ekki liggja á sama svæði og Farice-1, en það eykur öryggið, og auk hringtengingar um Farice-1 og nýjan streng við London eru síðan miklir möguleikar á samböndum frá Írlandi beint til Bandaríkjanna.
Í framhaldi af niðurstöðum starfshópsins samþykkti ríkisstjórnin að fela samgönguráðherra að hefja undirbúning að lagningu nýs sæstrengs. Í þeim undirbúningi yrði leitað samstarfs við fjarskiptafyrirtækin og aðra hagsmunaaðila um mögulega fjármögnun. Í byrjun árs 2007 var hafin nauðsynleg vinna undir forystu samgönguráðuneytisins að hrinda því í framkvæmd að lokið verði við lagningu á nýjum sæstreng haustið 2008.
3.5.6 Vernd fjarskiptavirkja.
– Hlutverk almannavarna hvað varðar virkni fjarskiptaneta verði skilgreint og tryggt að vernd fjarskiptavirkja verði í samræmi við kröfur stjórnvalda.
Í fyrrgreindum reglum Póst- og fjarskiptastofnunar um virkni almennra fjarskiptaneta, sbr. kafla 3.5.3, á eftir að taka afstöðu til þess hvort, og hvernig, hlutverk aðila verði skilgreint, m.a. Almannavarna.
3.5.7 Aðgerðaáætlun um varnir gegn ruslpósti.
– Sett verði fram og framfylgt aðgerðaáætlun um hvernig megi verjast ruslpósti.
Póst- og fjarskiptastofnun er með í smíðum reglur um vernd, virkni og gæði IP-netþjónustu en með þeim er m.a. leitast við að verjast óumbeðnum ruslpósti. Frumvarp til breytinga á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, liggur fyrir Alþingi, eins og áður hefur komið fram, og mun ef samþykkt verður veita stofnuninni heimild til að setja fyrrgreindar reglur. Markmiðið er að minnka áreiti af þessu tagi hjá neytendum. Stofnunin mun beita sér fyrir því að fjarskiptafyrirtækin tileinki sér þær tæknilegu leiðir að þessu markmiði sem stofnunin telur að virki best.
3.5.8 Upplýsa almenning um friðhelgi einkalífs í fjarskiptum og hættur þær sem fjarskipti kunna að hafa í för með sér.
– Almenningur verði upplýstur um rétt sinn til friðhelgi einkalífs í fjarskiptum, þær hættur sem fjarskipti kunna að hafa í för með sér og viðbrögð við þeim.
Í janúar 2006 var opnaður vefurinn netöryggi.is sem haldið er úti af stofnuninni. Vefurinn er ætlaður almenningi og þar er að finna fróðleik og upplýsingar um ýmsar hættur í netnotkun og hvernig einstaklingar geta aukið öryggi sitt í tölvu- og netnotkun. M.a. eru veitt ráð um notkun og val lykilorða, viðskipti á netinu, ruslpóst og blekkjandi tölvupóst og fleira sem lýtur að verndun friðhelgi einkalífs í fjarskiptum. Unnið er að því að breyta vefnum, gera hann aðgengilegri og skýrari og bæta við upplýsingum. Í undirbúningi er samstarf við SAFT- verkefnið hjá Heimili og skóla.
3.6 Samkeppnishæfni.
* Unnið verði að því að bæta laga- og reglugerðarumhverfi og efla eftirlit á fjarskiptamarkaði til að auka samkeppni, gagnsæi og traust.
* Stuðlað verði að því að jafna verð á fjarskiptaþjónustu um land allt.
* Stuðlað verði að bættu aðgengi að hagkvæmum og öruggum fjarskiptakerfum um land allt.
* Stuðlað verði að því að fatlaðir geti nýtt sér fjarskipti í upplýsingasamfélaginu.
3.6.1 Samkeppni milli fjarskiptaneta.
– Stuðlað verði að samkeppni milli fjarskiptaneta þar sem það er hagkvæmt.
Samkvæmt 4. gr. laga um fjarskipti, nr. 81/2003, er öllum frjálst að starfrækja fjarskiptanet. Slíka starfsemi þarf að tilkynna til Póst- og fjarskiptastofnunar en ekki þarf sérstakt leyfi nema þegar óskað er eftir tíðniúthlutun fyrir þráðlaus fjarskiptanet. Póst- og fjarskiptastofnun hefur að undanförnu staðið fyrir útboðum á tíðnisviðum fyrir þráðlaus fjarskiptanet. Árið 2005 voru boðnar út UHF-tíðnir fyrir stafrænt sjónvarp á árinu og voru í kjölfar þess gefin út leyfi fyrir tveimur sjónvarpsdreifikerfum sem ná um allt land. Árið 2006 fór fram útboð á 3,5 GHz tíðnisviði fyrir þráðlausar háhraðatengingar og fengu 9 aðilar heimild til þess að byggja upp slík net. Í árslok 2006 fór svo af stað útboð á 4 tíðniheimildum fyrir þriðju kynslóð farsíma og í undirbúningi eru útboð á tveimur heimildum fyrir GSM 1800-farsímanet og einni heimild fyrir starfrækslu stafrænnar farsímaþjónustu á tíðnisviði sem nú er notað fyrir NMT.
3.6.2 Tryggt verði að fyrirtæki geti auðveldlega veitt virðisaukandi þjónustu ofan á fyrirliggjandi net.
– Tryggt verði að fyrirtæki geti auðveldlega veitt virðisaukandi þjónustu ofan á fyrirliggjandi net.
Í gildi eru ýmsar reglur um aðgang að fjarskiptanetum og aðstöðu sem þeim tengist. Í VII. kafla fjarskiptalaga, nr. 81/2003, er kveðið á um samtengingu fjarskiptaneta, aðgang að aðstöðu, aðgang að netum og þjónustu, reiki milli farsímaneta, aðgang að leigulínum og aðgang að heimtaugum. Auk þess eru ákvæði um jafnræði, gagnsæi, bókhaldslegan aðskilnað og verðlagningu aðgangs. Póst- og fjarskiptastofnun er falið að greina samkeppnisstöðu á mörkuðum fyrir mismunandi fjarskiptaþjónustu og taka ákvarðanir um aðgangsskyldur í framhaldi af því. Stofnunin hefur birt drög að greiningum á 6 mörkuðum og kveðið á um aðgangsskyldur á einum þeirra með bindandi ákvörðun. Stefnt er að því að ljúka ákvörðunum varðandi 4 markaði til viðbótar á fyrsta fjórðungi ársins 2007. Kvaðir um aðgang, sem lagðar voru á í gildistíð eldri laga, gilda þar til nýjar ákvarðanir hafa verið teknar í kjölfar markaðsgreiningar.
Í dag eru í gildi kvaðir um aðgang að eftirfarandi þáttum:
* Samtenging farsímaneta (skv. markaðsgreiningu).
* Samtenging fastlínuneta (skv. eldri lögum).
* Leigulínur (skv. eldri lögum).
* Heimtaugar (skv. eldri lögum).
* Forval og fast forval (skv. eldri lögum).
* Reiki (skv. eldri lögum).
Fyrir liggur að endurskoða ákvarðanir sem eru í gildi samkvæmt eldri lögum en auk þess þarf að taka ákvarðanir um aðgang að:
* Bitastraum fyrir breiðbandsþjónustu.
* Útvarpsdreifikerfi og -þjónustu.
* Símtölum í farsímanetum (MVNO o.fl.) og upphafi þeirra
Auk ákvæða VII. kafla fjarskiptalaga hafa verið settar ýmsar reglur er snúa að nánari útfærslu aðgangs að netum og þjónustu:
* Reglur um viðmiðunartilboð um samtengingu, nr. 94/2002.
* Reglugerð um sundurgreindan aðgang að heimtaugum, nr. 199/2002.
* Reglur um númeraflutning, nr. 401/2001.
* Reglur um forval og fast forval í talsímanetum, nr. 280/2002.
* Reglur um skilyrt aðgangskerfi og notendabúnað fyrir stafrænt sjónvarp, nr. 570/2006.
* Reglugerð um bókhaldslega og fjárhagslega aðgreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja, nr. 960/2001.
3.6.3 Gagnsæi í kostnaði við fjarskiptanotkun verði tryggt og skyldur þjónustuaðila vegna gjaldmælinga verði skilgreindar.
– Gagnsæi í kostnaði við fjarskiptanotkun verði tryggt og skyldur þjónustuaðila vegna gjaldmælinga verði skilgreindar.
Í 37. gr. laga um fjarskipti, nr. 81/2003, er kveðið á um að fjarskiptafyrirtæki skuli birta viðskiptaskilmála og gjaldskrá fyrir alla þjónustu sína á aðgengilegan hátt. Þeim ber enn fremur skylda til þess að tilkynna Póst- og fjarskiptastofnun um allar breytingar á gjaldskrám og skilmálum. Stofnunin hefur eftirlit með því að gjaldskrár séu birtar og í samræmi við lög.
Í reglum um almenna heimild til að reka fjarskiptanet og fjarskiptaþjónustu, nr. 345/2005, er ákvæði um nákvæmni reikninga og að hægt sé að krefjast gæðavottunar og löggildingar mælitækja.
Póst- og fjarskiptastofnun safnar upplýsingum um verðlagningu á fjarskiptaþjónustu og tímamælingar símtala og birtir á heimasíðu sinni. 14
Með lögum nr. 78/2005 til breytinga á lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, var lögfest skylda fjarskiptafyrirtækja til þess gera áskrifendum sýnilegt hvenær þeir greiða fyrir niðurhal frá útlöndum. Póst- og fjarskiptastofnun hefur gert könnun á því í samvinnu við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hvaða fyrirtæki taka gjald fyrir niðurhal og með hvaða hætti áskrifendum er gert það ljóst. Niðurstöður könnunarinnar má nálgast á vef Póst- og fjarskiptastofnunar.
3.6.4 Verð á fjarskiptatengingum til og frá landinu lækki.
– Verð á fjarskiptatengingum til og frá landinu lækki.
Vegna landfræðilegrar legu landsins er verð á fjarskiptatengingum til og frá Íslandi mun hærra en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Mjög mikilvægt er að stuðla að því að draga úr þessum aðstöðumun og því forskoti sem aðrar þjóðir hafa.
Í meðfylgjandi töflu má sjá þróun verðs hjá Farice hf. á árabilinu 2004–2007. Samkvæmt töflunni hefur verð á fjarskiptatengingum til útlanda lækkað undanfarin ár. Þannig var verð á hverja bandvíddeiningu (STM1) 1.320 evrur á árinu 2004 en verður á árinu 2007 500 evrur.
Tafla 13. Þróun verðs hjá Farice hf.
| Dags. | DS3 – 45 Mbit/s | STM1 – 155 Mbit/s | STM4 – 622 Mbit/s | STM16 – 2,5 Gbit/s |
| ./ár | . /ár | . /ár | . /ár | |
| 1.1.2004 | 630 | 1.320 | 3.960 | 11.880 |
| 1.1.2005 | 573 | 1.200 | 3.600 | 10.800 |
| 1.1.2006 | 420 | 880 | 2.640 | 7.920 |
| 1.1.2007 | 239 | 500 | 1.500 | 4.500 |
Ljóst er þó að vinna þarf enn meira að því marki að lækka tengigjöld til útlanda til hagsbóta fyrir íslenska neytendur og svo að samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja verði ekki raskað. Í niðurstöðum starfshóps, sem skipaður var til að gera tillögu um hvernig tryggja megi varasamband fjarskipta við umheiminn í framtíðinni, kom fram að þegar kæmi að fjármögnun á nýjum sæstreng yrði haft í huga mikilvægi þess að tryggja að verðlagning gagnaflutninga til útlanda hækki ekki.
3.6.5 Sérþarfir fatlaðra í fjarskiptum í upplýsingasamfélaginu verði greindar og stuðlað að framboði þjónustu og búnaðar sem hentar þeim.
– Sérþarfir fatlaðra í fjarskiptum í upplýsingasamfélaginu verði greindar og stuðlað að framboði þjónustu og búnaðar sem hentar þeim.
Póst- og fjarskiptastofnun tekur þátt í starfi norræns samstarfshóps um fjarskipti fyrir fatlaða NFTH (Nordisk Forum For Telekommunikation og Handikap). Á heimasíðu stofnunarinnar kemur fram að þar séu samræmdar aðgerðir til að veita fötluðum sem best aðgengi að upplýsingasamfélaginu. Hópurinn leggur fram tilmæli og leiðbeiningar til norrænu ríkisstjórnanna um sérlausnir fyrir fatlaða svo að þeir megi njóta góðs aðgengis að fjarskiptum og upplýsingatækni. Þá er markmið þessa samstarfs að miðla upplýsingum til fatlaðra um nýjar tæknilausnir sem geta auðgað líf þeirra og möguleika til virkrar þátttöku í samfélaginu.
Á heimasíðu Póst- og fjarskiptastofnunar eru birtar leiðbeiningar um ýmsar af þeim sérlausnum sem eru í boði fyrir fatlaða. 15
Á árinu 2007 verða endurskoðaðar þær skyldur sem hvíla á fjarskiptafyrirtækjum varðandi alþjónustu en þar á meðal er þjónusta við fatlaða. Vinna við þá endurskoðun fer af stað í byrjun árs og verður ákveðið á árinu hvaða þjónusta skuli vera í boði og hvaða fyrirtæki beri skyldu til að veita slíka þjónustu á komandi árum.
Þá hefur á vegum forsætis- og félagsmálaráðuneytisins verið unnin skýrsla um aðgengi allra að vefnum. 16 Þar eru lagðar fram tillögur um aðgerðir sem stuðla að því að fatlaðir og aðrir hópar sem gefa þarf sérstakan gaum í upplýsingasamfélaginu geti nýtt sér þjónustu á netinu. Sjá nánar: utvefur.is/adgengi þar sem fjallað er um tillögur skýrsluhöfunda og þær aðgerðir sem grípa á til á grundvelli þeirra.
3.6.6 Breyting gerð á byggingarreglugerð.
– Breytt verði byggingarreglugerð þannig að:
a. húsbyggjanda verði skylt að sjá til þess að lögð séu ídráttarrör fyrir ljósleiðara að nýbyggingum.
b. öllum fjarskiptafyrirtækjum sé heimilt að leggja háhraðalagnir (t.d. ljósleiðara) um lögnina að uppfylltum skilyrðum.
Verkefnisstjórn fjarskiptaáætlunar hefur óskað eftir því við umhverfisráðuneytið að það kanni hvort lagaheimild sé í núgildandi lögum þannig að breyta megi byggingarreglugerð í samræmi við markmið áætlunarinnar. Ef lagaheimild er hins vegar ekki fyrir hendi óskaði stjórnin eftir því að hugað verði að því við endurskoðun á gildandi skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997, sem nú er unnið að í umhverfisráðuneytinu að hægt verði að gera slíkar kröfur í reglugerð. Að þessu verkefni verður áfram unnið á árinu 2007 í samvinnu við umhverfisráðuneytið.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Pre-qualification no 14053 GSM Service in Iceland financing, designing, constructing, installing and operating a GSM Network in rural areas in Iceland July 2006.
- Neðanmálsgrein: 2
- 2 ÚTBOÐ NR. 14139 GSM-þjónusta á Íslandi – 18. október 2006.
- Neðanmálsgrein: 3
- 3 592. mál 130. löggjafarþings.
- Neðanmálsgrein: 4
- 4 Competition and regulation in the Nordic mobile markets. Sjá mynd 2 í skýrslu norrænu eftirlitsstofnananna frá september 2006.
- Neðanmálsgrein: 5
- 5 Sjá: www.oecd.org/document/39/0,2340,en_2649_201185_36459431_1_1_1_1,00.html.
- Neðanmálsgrein: 6
- 6 Á Íslandi er hér átt við kóax.
- Neðanmálsgrein: 7
- 7 Önnur háhraðaþjónusta er: FTTH, WLL gervihnattasambönd og PLC.
- Neðanmálsgrein: 8
- 8 Hér er átt við DSL-tengingar eingöngu.
- Neðanmálsgrein: 9
- 9 DSL, Kapal módem (þ.m.t. kóax), FTTH, WLL, gervihnettir, PLC.
- Neðanmálsgrein: 10
- 10 Eingöngu DSL-sambönd.
- Neðanmálsgrein: 11
- 11 Um er að ræða meðalmánaðargjald fyrir allar háhraðatengingaáskriftir og tengigjald fyrir DSL- áskriftir til heimila.
- Neðanmálsgrein: 12
- 12 OECD-breiðbandsáskrifendur – Desember 2005. Sjá: www.oecd.org/document/39/0,2340,en_ 2649_201185_36459431_1_1_1_1,00.html.
- Neðanmálsgrein: 13
- 13 Áhrif sambandsrofa í millilandafjarskiptum og tímasetning lagningar nýs sæstrengs. ParX – Viðskiptaráðgjöf IBM. Desember 2006.
- Neðanmálsgrein: 14
- 14 Sjá: www.pfs.is/displayer.asp?cat_id=170.
- Neðanmálsgrein: 15
- 15 www.pfs.is/displayer.asp?cat_id=26&module_id=210&element_id=626.
- Neðanmálsgrein: 16
- 16 Skýrsla um aðgengi allra að vefnum, janúar 2006, unnin fyrir forsætis- og félagsmálaráðuneytið.