Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 599. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1137 — 599. mál.
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Birkis J. Jónssonar um störf á landsbyggðinni.
1. Hversu mörg störf á vegum ráðuneytisins hafa orðið til á landsbyggðinni frá samþykkt byggðaáætlunar 2006?
Á undanförnum árum hafa átt sér stað umfangsmiklar breytingar á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar utan höfuðborgarsvæðisins. Þær hafa einkum falið í sér sameiningu heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa í eina sameiginlega heilbrigðisstofnun á tilteknum landsvæðum. Víðtækustu sameiningarnar hafa átt sér stað á Vestfjörðum, Austurlandi, Norðurlandi eystra, Suðurlandi og á Suðurnesjum. Nú er unnið að frekari sameiningu á Vesturlandi og Norðurlandi vestra. Í dag eru alls starfræktar 15 slíkar stofnanir á landsbyggðinni. Í frumvarpi til heilbrigðislaga, sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir að landinu verði skipt í sjö heilbrigðisumdæmi og er gert ráð fyrir að ein heilbrigðisstofnun með mörgum starfseiningum í hverju umdæmi verði þungamiðja heilbrigðisþjónustunnar á því svæði.
Þessar breytingar hafa stuðlað að ákveðinni hagkvæmni í rekstri heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni en jafnframt orðið til þess að styrkja þær faglega. Nú starfa fleiri sérhæfðir starfsmenn við þessar stofnanir en áður var og skilyrði hafa skapast fyrir því að landsbyggðarstofnanirnar geti þjónað fólki á vissum sérsviðum samhliða grunnverkefnum þeirra. Jafnhliða hefur heimsóknum sérfræðinga til margra heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni fjölgað á undanförnum árum.
Samkvæmt upplýsingum frá starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins er fjöldi ársverka í heilbrigðisþjónustunni á landsbyggðinni í heild svipaður á tímabilinu 2005–2007. Dæmi eru um fjölgun, t.d. á Austurlandi. Þar hefur ársverkum hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands fjölgað úr 225 í 242 á þessu tímabili. Í heild eru ársverk hjá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni sem heyra undir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið rúmlega 2.100 og eru þessar stofnanir með stærstu vinnustöðum í mörgum sveitarfélögum. Í þessum tölum eru ekki upplýsingar um fjölda ársverka sem unnin eru á sjálfseignarstofnunum í öldrunarþjónustunni.
Nýtt launabókhald ríkisins býður nú frá og með árinu 2007 upp á víðtækari möguleika á því að vinna yfirlit um fjölda ársverka og fjölda einstaklinga sem starfa innan heilbrigðisþjónustunnar, hvort sem um er að ræða skiptingu eftir stofnunum, stéttarfélögum eða landsvæðum. Á komandi árum ætti starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins því auðveldlega að geta tekið saman nákvæm yfirlit og upplýsingar um þróun opinberra starfa á landsbyggðinni og þannig gefið skýra mynd af stöðu byggðaáætlunar fyrir 2006–2009.
2. Hverjar eru áætlanir ráðherra um frekari fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni?
Á árinu 2004 gaf ráðuneytið út áfangaskýrslu um flutning verkefna á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga. Skýrslan var unnin af nefnd undir forustu Sæunnar Stefánsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmanns ráðherra, og var henni ætlað að verða grundvöllur fyrir frekari umræður og tillögur um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Á sama tíma var ráðist í gerð mannaflaspár fyrir heilbrigðisþjónustuna á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Fyrsta spáin var birt skömmu fyrir síðustu áramót og er þess vænst að á næstu árum verði mögulegt að gera nákvæmari áætlanir og spár til lengri tíma um þróun starfsmannafjölda fyrir landið í heild og einstaka hluta þess.
Niðurstöður umræddra skýrslna verða hafðar til hliðsjónar við gerð tillagna um fjárveitingar til heilbrigðisþjónustunnar, hvort sem um er að ræða starfsemi á landsbyggðinni eða höfuðborgarsvæðinu.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1137 — 599. mál.
Svar