Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 423. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1148  —  423. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar um fjölda þeirra sem sótt hafa meðferð við áfengis- og vímuefnafíkn.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað hafa margir Íslendingar farið í meðferð við áfengis- og vímuefnafíkn síðustu 20 árin? Svarið óskast sundurliðað annars vegar eftir árum og hins vegar eftir því hvort meðferðin var vegna ofneyslu áfengis eða vímuefna.

    Til að afla upplýsinga var sent erindi til helstu meðferðarstofnana sem reknar eru á vegum hins opinbera. Ekki var leitað upplýsinga frá vistheimilum eða áfangaheimilum sem rekin eru fyrir þennan hóp, enda ekki talið að þar sé um meðferðarstofnanir að ræða.
    Götusmiðjan gat ekki veitt upplýsingar þar sem starfsemin hafði nýlega flutt og gögn ekki aðgengileg.
    Hér að aftan er tafla yfir fjölda þeirra sem hafa sótt meðferð vegna áfengis- eða vímuefnafíknar á undanförnum árum. Upplýsingar frá SÁÁ, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og Samhjálp ná yfir allt tímabilið. Upplýsingar frá Landspítala – háskólasjúkrahúsi ná yfir árin 1987–2001. Upplýsingar frá Barnaverndarstofu og Meðferðarheimilinu í Krýsuvík ná aftur til ársins 1997.
    Hjá LSH, FSA og Meðferðarheimilinu í Krýsuvík kemur fram hlutfall þeirra sem eiga eingöngu við áfengisfíkn að etja. Í skýrslum annarra meðferðarstofnana er hópnum ekki skipt eftir því hvort um er að ræða áfengisfíkn eða fíkn í önnur vímuefni. Í upplýsingum frá Samhjálp kemur fram að á síðustu árum hafi sá hópur sem stríðir við blandaða fíkn, áfengis og vímuefna, farið mjög vaxandi en þeim að sama skapi fækkað hlutfallslega sem stríða eingöngu við áfengisfíkn.
    Í upplýsingum frá Barnaverndarstofu, sem er að finna í ársskýrslum stofunnar fyrir árið 2000 og árin 2004–2005, koma fram ástæður umsókna en flokkun á ástæðum vistunar er aðeins tiltæk fyrir Meðferðarheimilið Stuðla, þó er ekki aðgreint hvort um er að ræða áfengis- eða vímuefnafíkn.

    SÁÁ.
    SÁÁ birtir árlega tölur um komur og fjölda einstaklinga sem leggjast inn til meðferðar hjá samtökunum. Frá árinu 1977 hafa 18.093 Íslendingar lagst inn til meðferðar hjá SÁÁ.
    Ekki eru til jafngóðar tölulegar upplýsingar um þá sem leita á göngudeildir SÁÁ. Á hverju ári hafa heimsóknir verið um 15.000 á göngudeildina í Reykjavík og þangað leitað um 2.000–3.000 manns. Stærstur hluti þess hóps sem kemur á göngudeild hefur verið áður á Vogi en einhverjir einstaklingar fá eingöngu þjónustu á göngudeild. Í skrám samtakanna eru þeir ekki sérstaklega aðgreindir frá öðrum sem koma á göngudeildina og því er fjöldi þeirra ekki inni í töflunni.

    Landspítali – háskólasjúkrahús.
    Fjöldi einstaklinga sem lagst hafa inn á bráðadeild vegna áfengis- og vímuefnafíknar hefur verið 209 á ári að meðaltali. Aðeins tókst að fá nákvæmar tölur um fjölda þeirra sem lagst hafa inn fram til ársins 2001 en fjöldinn síðan þá hefur verið svipaður og áður.
    Á göngudeild vímuefnadeildar eru að meðaltali um 6.000 komur á ári síðustu 20 ár en fjöldi þeirra er nokkuð breytilegur milli ára. Þeir einstaklingar sem koma á göngudeild og hafa ekki verið áður á legudeild eru ekki aðgreindir sérstaklega á LSH frekar en hjá SÁÁ. Í Gunnarsholti, sem var lagt niður árið 2002, voru að meðaltali 80 innlagnir á ári á tímabilinu, ekki liggja fyrir tölur um hversu margir einstaklingar eru bak við þessar innlagnir.
    Hvað varðar hlutfall milli áfengis og annarra vímuefna er oft um blandaða fíkn að ræða. Hins vegar hefur hlutfall þeirra sem hafa áfengisvanda sem fyrstu greiningu lækkað úr nálægt 60% í u.þ.b. 40% á LSH á tímabilinu.

    Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
    Eins og sjá má á töflunni hefur þeim fjölgað sem hafa þurft að leggjast inn vegna áfengis- eða annarrar vímuefnafíknar á tímabilinu.
    Á göngudeild FSA komu að meðaltali 69 einstaklingar á ári á tímabilinu 2001–2005. Þeir einstaklingar sem ekki hafa áður verið á legudeild eru ekki aðgreindir sérstaklega frekar en á öðrum stofnunum.
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda einstaklinga sem hafa lagst inn á stofnun til meðferðar vegna áfengis- eða vímuefnavanda, skipt eftir árum.

Vogur
fjöldi
Samhjálp
fjöldi
Stuðlar
fjöldi
FSA
fjöldi
FSA
hlutfall
áfengisfíknar
LSH
fjöldi
LSH
hlutfall
áfengisfíknar
Krýsuvík
fjöldi
Krýsuvík
hlutfall
áfengisfíknar
1986 1.682 204 9 90%
1987 1.554 263 14 47% 362 61%
1988 1.576 306 13 76% 357 58%
1989 1.607 340 15 80% 421 58%
1990 1.515 205 16 73% 350 61%
1991 1.560 265 13 75% 345 64%
1992 1.675 253 14 80% 271 65%
1993 1.643 374 13 79% 194 65%
1994 1.613 339 28 87% 190 62%
1995 1.606 271 13 89% 152 56%
1996 1.644 225 22 68% 188 55%
1997 1.682 250 24 26 78% 186 60% 7 43%
1998 1.626 258 26 26 65% 225 52% 49 18%
1999 1.614 394 24 42 75 % 209 53% 62 21%
2000 1.836 260 17 43 76% 243 58% 65 15%
2001 1.790 232 25 35 70% 166 53% 47 17%
2002 1.726 263 41 33 56% 52% 40 10%
2003 1.798 196 50 29 65% 54% 68 6%
2004 1.725 279 44 31 51% 51% 52 0%
2005 1.656 277 47 57 52% 46% 48 4%

    Þann fyrirvara verður að hafa á framangreindum tölum að um er að ræða fjölda einstaklinga sem lögðust inn á viðkomandi stofnanir og meðferðarheimili á tímabilinu. Auk þessara hafa einhverjir komið eingöngu á göngudeildir. Einhverjir hafa lagst inn oftar en einu sinni og líklegt er að einhverjir hafi þegið meðferð á fleiri en einum stað. Til að fá nákvæma tölu um fjölda Íslendinga sem hafa farið í meðferð vegna áfengis- eða vímuefnafíknar þarf að bera saman skrár allra sem slíka meðferð veita til að leiðrétta fyrir endurtekningu á kennitölum bæði milli ára og meðferðarstofnana. Slík rannsókn fór ekki fram og er miklu viðameira og flóknara verkefni en hægt er að vinna á skömmum tíma. Upplýsingakerfi stofnana á þessu tímabili hafa ekki verið að fullu sambærileg.
    Þrátt fyrir framangreinda fyrirvara er vonast til að þær upplýsingar sem hér eru lagðar fram séu nægjanlegar til að gefa mynd af stöðu þessara mála.