Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 664. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1179  —  664. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um framkvæmdaáætlun um sjálfbæra þróun.

     1.      Hvernig er háttað formlegu samráði ráðuneyta vegna framkvæmdaáætlunar um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi til 2020?
    Á fundi ríkisstjórnarinnar 16. janúar 2001 var samþykkt að tillögu umhverfisráðherra að skipa samstarfsnefnd ráðuneyta um sjálfbæra þróun og skyldi hún skipuð fulltrúum þeirra ráðuneyta sem helst koma að stefnumótun á því sviði. Auk umhverfisráðuneytis áttu forsætisráðuneytið, fjármálaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið, landbúnaðarráðuneytið, samgönguráðuneytið og sjávarútvegsráðuneytið fulltrúa í nefndinni. Síðar hafa bæst við fulltrúar frá utanríkisráðuneyti og menntamálaráðuneyti. Meginverkefni nefndarinnar er að vinna að gerð stefnumörkunar Íslands um sjálfbæra þróun á nýrri öld og að sjá um framkvæmd og eftirfylgni hennar.
    Árið 2002 samþykkti ríkisstjórnin stefnumörkun, sem ber heitið „Velferð til framtíðar – Sjálfbær þróun í íslensku samfélagi“. Þar var settur rammi um stefnumörkun um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi fram til ársins 2020. Í stefnumörkuninni voru sett fram 17 markmið sem var raðað í fjóra flokka: I. Heilnæmt og öruggt umhverfi, II. Verndun náttúru Íslands, III. Sjálfbær nýting auðlinda og IV. Hnattræn viðfangsefni. Fulltrúar í samráðsnefnd ráðuneytanna um sjálfbæra þróun sáu um að skrifa þá kafla í skýrslunni sem falla undir þeirra ráðuneyti í samráði við sérfræðinga og stofnanir eftir því sem við átti hverju sinni. Í „Velferð til framtíðar“ eru einnig birtar tölulegar vísbendingar sem tengjast markmiðum í skýrslunni. Þær vísbendingar byggjast einnig á upplýsingum og samráði viðkomandi ráðuneyta og stofnana.
    Samkvæmt eftirfarandi ákvæði í 10. gr. laga nr. 44/1999, um náttúruvernd, boðar umhverfisráðherra til umhverfisþings annað hvert ár:
    „Umhverfisráðherra skal boða til umhverfisþings að loknum hverjum alþingiskosningum og síðan tveimur árum síðar.
    Á umhverfisþingi skal fjalla um umhverfis- og náttúruvernd og sjálfbæra þróun. Fjórða hvert ár skal á umhverfisþingi fjalla um aðgerðaáætlanir um sjálfbæra þróun. Til umhverfisþings skal boða alþingismenn, fulltrúa stofnana ríkis og sveitarfélaga og fulltrúa atvinnulífs og frjálsra félagasamtaka sem hafa umhverfisvernd og sjálfbæra þróun á stefnuskrá sinni.“
    Samkvæmt ofangreindu ákvæði er sjálfbær þróun meginviðfangsefni umhverfisþings fjórða hvert ár. Á IV. umhverfisþinginu sem haldið var í nóvember 2005 var stefna ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun í brennidepli. Í aðdraganda þingsins hafði samráðsnefnd ráðuneytanna um sjálfbæra þróun endurskoðað og uppfært þær leiðir að markmiðum sem settar voru fram í „Velferð til framtíðar“ árið 2002. Á þinginu voru kynntar tillögur um nýjar leiðir að markmiðum til ársins 2009. Einnig voru tölulegar vísbendingar frá árinu 2002 uppfærðar og gefnar út í sérstöku riti í tengslum við þingið.
    Á umhverfisþinginu gafst þingfulltrúum kostur á að ræða drög að nýjum áherslum og í kjölfar þingsins var opnuð slóð á heimasíðu umhverfisráðuneytisins þar sem félagasamtök og einstaklingar gátu komið sjónarmiðum sínum varðandi nýjar áherslur á framfæri innan tiltekins tíma. Í tengslum við þingið hafði umhverfisráðuneytið einnig samráð við fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga um hinar nýju áherslur einkum þær sem snúa beint að starfsemi sveitarfélaga og krefjast aðgerða af þeirra hálfu. Samráðsnefnd ráðuneytanna um sjálfbæra þróun fjallaði um þær tillögur og athugasemdir sem bárust áður en ríkisstjórn fjallaði um málið og samþykkti megináherslur fyrir tímabilið 2006–2009.
    Velferð til framtíðar – Stefnumörkun til 2020 er að finna á eftirfarandi slóð á heimasíðu umhverfisráðuneytisins:
     www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/Velferð%20til%20framtíðar%20allt%20skjalið.pdf
    Tölulegar vísbendingar 2005 er að finna á eftirfarandi slóð á heimasíðu umhverfisráðuneytisins:
     www.umhverfisraduneyti.is/media/Vefutgafa_baeklings/Velferd2005.pdf
    Skýrsla með megináherslum ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun til ársins 2009 verður gefin út um miðjan mars 2007 og verður m.a. send öllum alþingismönnum.

     2.      Er nefnd sú sem skipuð var 9. september 1998 og hafði það verkefni að fara yfir og meta stöðu einstakra þátta fyrri framkvæmdaáætlunar enn starfandi?
    Í kjölfar Ríó ráðstefnunnar sem haldin var árið 1992 samþykktu íslensk stjórnvöld fyrstu stefnumörkun sína um sjálfbæra þróun á árinu 1993 undir heitinu „Á leið til sjálfbærrar þróunar“.
    Hinn 11. febrúar 1997 samþykkti ríkisstjórn Íslands framkvæmdaáætlun um sjálfbæra þróun og bar hún yfirskriftina „Sjálfbær þróun í íslensku samfélagi 1996–2000“. Í framkvæmdaáætluninni voru ákvæði um endurskoðun hennar þar sem segir m.a.:
    „Framkvæmdaáætlunin verður endurskoðuð af sérstakri nefnd sem umhverfisráðherra mun skipa. Í þeirri endurskoðun verður farið yfir tillögurnar og metið hvernig miðað hefur með framkvæmdina og eftir atvikum gerðar tillögur um frekari aðgerðir til umhverfisráðherra.“
    Ofangreind nefnd var skipuð í september 1998. Auk fulltrúa umhverfisráðuneytis var nefndin skipuð fulltrúum frá sjávarútvegsráðuneyti, iðnaðarráðuneyti, samgönguráðuneyti og landbúnaðarráðuneyti auk fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Nefndin lauk starfi sínu með skýrslu til umhverfisráðherra 29. mars 1999. Helstu niðurstöður nefndarinnar voru á þann veg að stærstum hluta þeirra verkefna sem kveðið er á um í áætluninni hefði verið hrint í framkvæmd og mörgum lokið. Nefndin mælti með að framhald yrði á þeirri vinnu sem farið hefði fram við að framfylgja ákvæðum Dagskrár 21 á Íslandi og taldi m.a. mikilvægt að forgangsraða atriðum og þróa tölulegar vísbendingar. Þá lagði nefndin í áliti sínu áherslu á mikilvægi þess að komið yrði á reglulegum samráðsvettvangi til að tryggja framgang sjálfbærrar þróunar í samfélaginu.
    Við lok gildistíma framkvæmdaáætlunarinnar hófst vinna við að móta langtímastefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun og ákvað ríkisstjórnin í ársbyrjun 2001 að skipa sérstaka samráðsnefnd ráðuneyta um sjálfbæra þróun, sbr. svar við fyrstu spurningu. Meginverkefni samráðsnefndar ráðuneytanna er að vinna að gerð stefnumörkunar Íslands um sjálfbæra þróun og að sjá um framkvæmd og eftirfylgni hennar.

     3.      Er að vænta skýrslu um stöðu framkvæmdaáætlunarinnar?
    Á IV. umhverfisþingi árið 2005 var birt skýrsla með upplýsingum um framkvæmd markmiða í „Velferð til framtíðar“ með yfirliti yfir helstu aðgerðir sem á þeim tíma hafði verið gripið til í því skyni að ná settum markmiðum.
    Skýrsluna er að finna á eftirfarandi slóð á heimasíðu umhverfisráðuneytisins:
     www.umhverfisraduneyti.is/media/_umhverfisthing/Velferd_til_framtidar_- _yfirlit_yfir_adgerdir_2002-2005.doc
    Umhverfisráðuneytið mun í samvinnu við samráðsnefnd ráðuneytanna um sjálfbæra þróun halda áfram að fylgjast með framkvæmd stefnumörkunar ríkisstjórnarinnar eins og hún er sett fram í „Velferð til framtíðar“ bæði með því að taka saman skýrslur en einnig og ekki síður verður lögð áhersla á að uppfæra og þróa áfram tölulegar vísbendingar sem sýna hvernig miðar í átt til sjálfbærrar þróunar í samfélaginu.