Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 396. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1184  —  396. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Magnúsar Þórs Hafsteinssonar um erlenda ríkisborgara án lögheimilis.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margir erlendir ríkisborgarar hérlendis voru án lögheimilis 1. desember árin 2003–2005 og hversu margir 1. nóvember sl.?
     2.      Hvernig skiptast þeir niður á ríkisföng?


    Frá því að Þjóðskrá var stofnuð árið 1953 hefur hún haldið sérstakar íbúaskrár yfir landsmenn með fasta búsetu á Íslandi og því skráð lögheimili þeirra hvort sem þeir hafa verið íslenskir eða erlendir ríkisborgarar. Þetta þýðir að erlendir ríkisborgarar eru ekki skráðir á íbúaskrár fyrr en þeir taka upp fasta búsetu hér á landi. Erlendur ríkisborgari sem ekki hefur eða hyggst taka upp fasta búsetu hér á landi hefur í rúm tuttugu ár getað óskað eftir skráningu í sérstaka skrá Þjóðskrár og úthlutun kennitölu. Þetta á t.d. við um þá útlendinga sem til landsins koma í skammtímavinnu og þá útlendinga sem þurfa kennitölu vegna viðskipta á Íslandi hvort sem þeir koma til landsins eða ekki. Þeir erlendu ríkisborgarar á þessari skrá sem ílendast eru síðan færðir á íbúaskrár þegar þeir taka upp fasta búsetu.
    Í gegnum árin hefur ekki verið talin þörf á að halda utan um og birta sérstakar tölur yfir erlenda ríkisborgara sem Þjóðskrá hefur úthlutað kennitölum og ekki hafa lögheimili á Íslandi. Ekki er því hægt að tilgreina tölur frá árunum 2003–2005. Síðastliðið sumar varð mikil umræða í samfélaginu um fjölgun útlendinga hér á landi. Af því tilefni ákvað dómsmálaráðherra að frá 1. ágúst 2006 tæki Þjóðskrá saman mánaðarlega tölur yfir þá útlendinga sem fá úthlutað kennitölu án lögheimilis. Á tímabilinu frá 1. ágúst 2006 til 28. febrúar 2007 hafa alls 8.711 útlendingar fengið kennitölu og af þeim hafa 2.227 tekið upp fasta búsetu hér á landi. Í eftirfarandi töflum sést nánar skipting þessara útlendinga eftir þjóðerni, kyni og aldri.

Alls Ág.
2006
Sept.
2006
Okt.
2006
Nóv.
2006
Des.
2006
Jan.
2007
Febr.
2007
Lögheimili síðan skráð
Alls 8.711 1.017 2.925 1.326 880 481 1.075 1.007 2.227
Kyn og aldur
Karlar 18 ára og eldri 5.787 575 1.951 897 600 315 745 704 1.383
Konur 18 ára og eldri 2.443 343 835 364 228 124 295 254 631
Börn 17 ára og yngri 481 99 139 65 52 42 35 49 213
Aðsetur
Á Íslandi 7.286 926 2.566 1.070 700 330 894 800 1.950
    Höfuðborgarsvæði 4.109 561 1.267 734 403 210 523 411 1.068
    Austurland 863 91 298 93 60 32 130 159 264
    Önnur landsvæði 2.314 274 1.001 243 237 88 241 230 618
Erlendis 1.426 91 359 256 180 152 181 207 277
Ríkisfang
Pólland 4.315 425 1.480 705 433 188 523 561 1.340
Litáen 582 45 185 110 87 37 59 59 153
Þýskaland 400 99 146 43 25 15 47 25 85
Lettland 315 23 107 47 47 32 32 27 50
Portúgal 276 24 102 35 23 7 38 47 55
Svíþjóð 238 35 113 27 20 8 18 17 21
Ítalía 221 14 62 24 22 16 46 37 46
Bandaríkin 215 40 67 18 19 27 26 18 61
Tékkland 185 14 51 52 15 8 25 20 77
Bretland 175 24 51 35 17 10 21 17 11
Danmörk 161 36 35 31 10 13 22 14 20
Slóvakía 112 16 27 19 17 12 8 13 36
Frakkland 111 30 38 9 2 2 16 14 14
Kanada 105 12 24 12 7 16 17 17 29
Finnland 88 13 30 7 4 2 26 6 6
Filippseyjar 84 7 31 13 6 16 7 4 26
Noregur 76 1 25 8 21 2 12 7 2
Spánn 68 12 33 6 5 2 5 5 5
Taíland 66 10 18 10 7 4 8 9 24
Rúmenía 62 2 35 7 1 4 7 6 3
Holland 55 11 11 3 6 3 14 7 5
Austurríki 51 27 6 2 2 1 9 4 9
Kína 43 4 11 2 5 9 9 3 10
Ungverjaland 41 3 19 6 3 3 1 6 5
Belgía 38 7 11 2 3 1 3 11 7
Indland 38 1 7 13 9 – 1 7 6
Nýja-Sjáland 36 15 17 – – – 3 1 6
Rússland 36 10 9 5 5 1 4 2 11
Slóvenía 36 2 11 3 3 2 12 3 1
Írland 31 5 8 5 3 – 10 – –
Eistland 30 5 4 7 7 1 4 2 8
Serbía 30 4 10 3 3 5 1 4 7
Ástralía 28 4 8 4 1 1 8 2 9
Brasilía 24 3 11 5 3 – 1 1 7
Sviss 23 7 4 2 3 1 3 3 4
Úkraína 21 1 11 4 2 2 – 1 10
Japan 17 4 2 1 6 1 3 – –
Víetnam 17 1 4 2 – 6 – 4 3
Króatía 16 3 5 6 1 – 1 – 3
Önnur lönd 245 18 96 33 27 23 25 23 52



Einstaklingar færðir á kennitöluskrá án lögheimilis
1. ágúst 2006 – 28. febrúar 2007. Kyn og fæðingarár.

Alls Karlar 18 ára
og eldri
Konur 18 ára
og eldri
Börn 17 ára
og yngri
Alls 8.711 5.787 2.443 481
Fæddir 1997–2007 253 – – 253
Fæddir 1987–1996 564 140 196 228
Fæddir 1977–1986 3.755 2.242 1.513 –
Fæddir 1967–1976 2.046 1.640 406 –
Fæddir 1957–1966 1.385 1.178 207 –
Fæddir 1947–1956 611 517 94 –
Fæddir 1937–1946 89 66 23 –
Fæddir 1936 og fyrr 8 4 4 –