Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 609. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 1284  —  609. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Önnu Kristínar Gunnarsdóttur um vegagerð í Hrútafjarðarbotni.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hefur náðst samkomulag við eigendur lands undir nýjan veg í Hrútafjarðarbotni og ef svo er, hvenær er fyrirhugað að bjóða framkvæmdir við vegagerðina út?
     2.      Ef svo er ekki, hvaða land hefur ekki náðst samkomulag um og af hvaða ástæðum? Verður óskað heimildar til eignarnáms á því landi sem um er deilt?


    Skipulagsferli vegna breytinga á legu Hringvegar í Hrútafirði og tengingar Djúpvegar er ekki lokið. Ekki er unnt að ganga endanlega frá samningum við landeigendur eða segja til um hvenær verkið verður boðið út fyrr en því ferli lýkur. Viðræður við landeigendur hafa farið fram og góðar líkur þykja á að samkomulag náist.