Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 370. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Prentað upp.

Þskj. 404  —  370. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um tekjur sveitarfélaga af einkahlutafélögum.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hvaða sveitarfélög hafa orðið fyrir umtalsverðu tekjutapi vegna fjölgunar einkahlutafélaga og í hve miklum mæli er tekjutapið? Í svarinu verði bornar saman tekjur viðkomandi sveitarfélaga sl. fjögur ár og tekjur þeirra næstu fjögur ár áður en skattalögum var breytt með lögum nr. 133/2001.
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að sveitarfélögum verði bætt það tekjutap sem þau hafa orðið fyrir af völdum fyrrnefndrar lagabreytingar?


Skriflegt svar óskast.