Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 392. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 434  —  392. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um aldurstakmark á skipulagðar útihátíðir.

Frá Kolbrúnu Baldursdóttur.



    Hefur ráðherra íhugað, eða áformar hann, að setja 18 ára aldurstakmark á skipulagðar útihátíðir, eða sjá til þess að börn undir 18 ára aldri fái einungis aðgang að slíkum hátíðum séu þau í fylgd með fullorðnum sem staðfestir að hann taki ábyrgð á þeim?


Skriflegt svar óskast.