Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 425. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 503  —  425. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um svæði sem notuð hafa verið til skot- og sprengjuæfinga.

Frá Jóni Gunnarssyni.



     1.      Hvar eru þau 73 svæði á landinu sem notuð hafa verið til skot- og sprengjuæfinga Bandaríkjahers frá því í síðari heimsstyrjöld og hve stórt er hvert svæði? Óskað er eftir að svæðin verði sýnd á landakorti.
     2.      Er hægt að áætla magn skota og sprengna á hverju svæði? Ef svo er, hver er þá staðan á hverju svæði?
     3.      Hefur verið framkvæmd sprengjuleit og hreinsun á öllum svæðunum? Ef ekki, hvenær er áætlað að gera það á hverju einstöku svæði?
     4.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við leit og hreinsun?


Skriflegt svar óskast.