Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 371. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 716 — 371. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Drífu Hjartardóttur um fjarnám við Háskólann á Akureyri.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margir nemendur hafa verið í fjarnámi við Háskólann á Akureyri frá upphafi og hve hátt hlutfall af nemendum skólans hafa þeir verið, sundurliðað eftir skólaárum?
2. Hvaðan af landinu eru þessir nemendur?
3. Hversu margir fjarnámsnemendur hafa brautskráðst frá skólanum árlega og hve hátt hlutfall eru þeir af brautskráðum?
4. Hver eru samfélagsleg áhrif fjarnáms við Háskólann á Akureyri?
Fjarkennsla við Háskólann á Akureyri hófst haustið 1998 þegar boðið var upp á fjarnám við heilbrigðisdeild. Um var að ræða nám í dagskóla á hjúkrunarfræðibraut, þar sem kennt var samtímis á Akureyri og Ísafirði. Ári síðar bættust svo nemendur á Egilsstöðum í þennan hóp. Frá árinu 1998 hefur fjarnám verið vaxandi þáttur í námsframboði Háskólans á Akureyri og veturinn 2006–2007 bjóða þrjár deildir af fjórum upp á fjarnám. Þetta eru heilbrigðisdeild, kennaradeild og viðskipta- og raunvísindadeild. Hröð þróun í upplýsingatækni getur af sér fjölbreyttar leiðir í kennslu, við miðlun námsefnis, í samskiptum og við að mæta þörfum nemenda í fjarnámi.
Í upphafi var nær eingöngu byggt á útsendingum fyrirlestra með gagnvirkum myndfundabúnaði. Enn í dag er myndfundabúnaður notaður í talsverðum mæli við háskólann en þróunin hefur orðið sú að fjarnám við skólann byggist núorðið á notkun velflestra þeirra fjarkennslumiðla sem til eru. Má þar nefna almennan tölvupóst, vefsíður kennara og vefnámsumhverfið WebCT, sem m.a. hefur að geyma innbyggt póstforrit, vefumræður og spjallrásir, sem og möguleika til framsetningar námsefnis í margvíslegu formi. Haustið 2003 var svo tekið í notkun vefkennslukerfið WebDemo sem gefur möguleika á kennslu í rauntíma með nettengdri tölvu. Upplýsingakerfið Stefanía, sem þróað hefur verið í Háskólanum á Akureyri, veitir aðgang að öllum helstu upplýsingum sem tengjast daglegu lífi í skólanum, svo sem stundaskrá, próftöflum, námsframvindu, námskeiðslýsingum o.s.frv.
Háskólinn á Akureyri hefur átt öflugt samstarf um fjarkennslu við bæjarfélög og símenntunar- og fræðslumiðstöðvar víðs vegar um landið enda er það talin forsenda fjarnámsins að nemendum sé sköpuð góð aðstaða til að taka við kennslunni, með myndfundabúnaði, tölvum og nettengingu. Einnig hefur það sýnt sig að myndun námshópa á fjarkennslustöðum hefur reynst góð leið til að efla hópkennd og stuðning nemenda í milli. Á öllum fjarkennslustöðum hafa nemendur aðgang að myndfundabúnaði og tölvuveri ásamt ljósritunar- og vinnuaðstöðu og aðstöðu til próftöku. Helstu samstarfsaðilar háskólans eru: Fræðslumiðstöð Norðurlands vestra, Háskólasetur Vestfjarða á Ísafirði, Þekkingarsetur Austurlands, Fræðslunet Suðurlands, Fræðslumiðstöð Þingeyinga/FræÞing, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Námsflokkar Hafnarfjarðar, Símenntunarmiðstöð Vesturlands og Viska – Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja.
Í fjarnáminu er ýmist um að ræða fullt nám í dagskóla eða nám sniðið að þörfum þeirra sem stunda það samhliða starfi, m.a. á þann hátt að nemendur geta dreift náminu á lengri tíma en gert er ráð fyrir í fullu námi. Hér á eftir eru aðeins taldir þeir fjarnemendur sem stunda nám fyrir milligöngu símenntunarmiðstöðva en ekki eru taldir með þeir nemendur sem stunda annars konar sveigjanlegt námsform eins og svokallað lotunám.
Fjöldi og hlutfall fjarnámsnemenda við Háskólann á Akureyri.
Í töflunni hér á eftir eru svör við 1. og 3. lið fyrirspurnarinnar. Hlutfall fjarnemenda óx mjög hratt til 2003 en hefur verið sem næst óbreytt síðan. Fjarnemendur hafa verið um þriðjungur af nemendafjölda háskólans og jafnvægi hefur náðst á milli hlutfalls fjarnemenda í námi og hlutfalls þeirra af brautskráðum nemendum. Skólaárið 2005–2006 stunduðu 577 fjarnemendur nám við Háskólann á Akureyri og frá upphafi hafa 306 fjarnemendur brautskráðst frá skólanum, þar af 214 á síðustu tveimur árum.
Búseta fjarnemenda.
Fjarnámið nær til a.m.k. 20 misfjölmennra þéttbýlisstaða víðs vegar um landið en að sjálfsögðu sækja nemendur utan þessara þéttbýlisstaða fjarnámið þar sem það er í boði næst þeim. Mestur fjöldi fjarnemenda er í Hafnarfirði, eða 204, en einnig eru allstórir hópar í Reykjanesbæ, á Selfossi, á Ísafirði og í Vestmannaeyjum. Þess má geta að fjarnemendur í Hafnarfirði koma víða að af höfuðborgarsvæðinu. Nánar er gerð grein fyrir þessari skiptingu í eftirfarandi töflu:
Samfélagsleg áhrif.
Ekki hefur verið gerð heildstæð rannsókn á samfélagslegum áhrifum fjarnámsins á Akureyrarsvæðinu sérstaklega en þar sem fjarnám hefur verið starfrækt í tiltölulega stuttan tíma við Háskólann á Akureyri má segja að áhrif þess séu ekki að fullu komin fram. Í þessu sambandi má þó benda á almenn áhrif fjarnáms:
a. Fjarnámið eykur aðgengi að háskólanámi án tillits til búsetu og stuðlar þannig að jafnrétti til náms. Þeir sem stunda fjarnám eiga oft af ýmsum ástæðum erfitt með að flytja búferlum til að stunda nám, m.a. af fjölskylduástæðum, vegna atvinnu eða annarra ástæðna.
b. Fjarnám eflir atvinnulíf á þeim stað sem það er stundað. Þeir sem stunda fjarnám eru oftast (eða hafa verið) virkir þátttakendur í atvinnulífi í sinni heimabyggð. Fjarnám gefur þeim kost á að stunda nám án þess að flytja brott úr heimabyggð og atvinnulífið á viðkomandi stað nýtur áfram enn öflugri starfskrafta þeirra. Nemendur í fjarnámi eru víða lykilfólk í sínu byggðarlagi og á grundvelli nýrrar þekkingar úr náminu öðlast þeir hæfni til að taka þátt í að endurskapa atvinnulífið.
c. Fjarnámið eflir menntunarstig á landsbyggðinni og stuðlar að aukinni virkni og þátttöku sveitarfélaga í framboði menntunar í héraði. Það eflir starfsemi sí- og endurmenntunarmiðstöðva og mikilvæg þekkingaruppbygging verður á hverjum stað þar sem haldið er úti aðstöðu til fjarnáms. Það skapar einnig tækifæri til að nýta þá sérfræðikunnáttu sem er til staðar. Í ýmsum bæjarfélögum þar sem símenntunarmiðstöðvar eru er einnig sérfræðimenntað fólk sem háskólinn getur þá leitað til, t.d. hvað varðar leiðsögn við nemendur eða kennslu, og þar með fær þetta fólk tækifæri til að nýta menntun sína sem það hefði kannski annars ekki tækifæri til. Öll þessi atriði styrkja viðkomandi byggðarlög.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 716 — 371. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Búseta fjarnemenda.
Fjarnámið nær til a.m.k. 20 misfjölmennra þéttbýlisstaða víðs vegar um landið en að sjálfsögðu sækja nemendur utan þessara þéttbýlisstaða fjarnámið þar sem það er í boði næst þeim. Mestur fjöldi fjarnemenda er í Hafnarfirði, eða 204, en einnig eru allstórir hópar í Reykjanesbæ, á Selfossi, á Ísafirði og í Vestmannaeyjum. Þess má geta að fjarnemendur í Hafnarfirði koma víða að af höfuðborgarsvæðinu. Nánar er gerð grein fyrir þessari skiptingu í eftirfarandi töflu:
| Fjarkennslustaður | 1998– 1999 |
1999– 2000 |
2000– 2001 |
2001– 2002 |
2002– 2003 |
2003– 2004 |
2004– 2005 |
2005– 2006 |
| Ísafjörður | 10 | 10 | 21 | 47 | 37 | 32 | 48 | 45 |
| Patreksfjörður | 13 | 5 | 5 | 4 | 3 | |||
| Akureyri | 12 | 13 | 13 | 20 | 15 | 13 | 9 | |
| Dalvík | 2 | 2 | 2 | |||||
| Blönduós | 17 | 14 | 10 | 10 | ||||
| Sauðárkrókur | 4 | 4 | 5 | 22 | 14 | 26 | 28 | |
| Siglufjörður | 8 | 3 | 3 | 3 | ||||
| Egilsstaðir | 3 | 5 | 11 | 23 | 24 | 32 | 13 | 13 |
| Vopnafjörður | 8 | 6 | 5 | |||||
| Þórshöfn | 7 | |||||||
| Hornafjörður | 5 | 9 | 4 | 3 | 1 | 9 | ||
| Neskaupstaður | 7 | 9 | 10 | 11 | 28 | 13 | ||
| Selfoss | 56 | 49 | 88 | 77 | 53 | |||
| Vestmannaeyjar | 17 | 21 | 23 | 40 | 34 | |||
| Hafnarfjörður | 29 | 39 | 108 | 210 | 212 | 204 | ||
| Reykjanesbær | 38 | 54 | 46 | 80 | 69 | 80 | ||
| Reykjavík | 10 | 1 | 3 | 1 | ||||
| Akranes | 18 | 39 | 28 | 27 | ||||
| Stykkishólmur | 9 | 8 | 7 | |||||
| Búðardalur | 8 | 8 | ||||||
| Óstaðsett | 15 | 14 | 16 | |||||
| Samtals | 13 | 31 | 138 | 285 | 389 | 604 | 613 | 577 |