Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 427. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 722  —  427. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um kostnað við stuðningsaðgerðir í Írak.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver hefur kostnaður íslenska ríkisins verið við stuðningsaðgerðir í Írak, svo sem flutning gagna og störf Landhelgisgæslunnar við sprengjuleit?

    Íslensk stjórnvöld hafa ráðstafað 388,7 millj. kr. til aðstoðar við Írak, sbr. sundurliðun hér á eftir.
    Ríkisstjórnin samþykkti hinn 8. apríl 2003 að veita 300 millj. kr. til neyðar- og mannúðaraðstoðar og enduruppbyggingarstarfs í Írak. 100 millj. kr. voru ætlaðar til neyðar- og mannúðaraðstoðar og 200 millj. kr. til enduruppbyggingarstarfs. Þessum fjármunum hefur verið ráðstafað með eftirfarandi hætti:

Framlag (millj. kr.)
Neyðar- og mannúðaraðstoð
2003 Rauði kross Íslands 40,0
Rauði kross Íslands – fjármögnun sendifulltrúa 7,0
Hjálparstarf kirkjunnar 10,0
Barnaheill 7,0
Matvælaaðstoð á vegum Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna 18,0
Jarðsprengjuleit á vegum Íslensku friðargæslunnar 9,0
2004 Matvælagjöf í skólum á vegum Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna 9,0
Samtals 100,0
Uppbyggingarstarf

2004

Fjölþjóðlegur endurreisnarsjóður á vegum Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna 36,1
Fjölþjóðlegur endurreisnarsjóður á vegum Alþjóðabankans 71,6
2005 Stoðtækjaverkefni í samstarfi við Össur hf. 69,0
Stoðtækjaverkefni í samstarfi við Össur hf.1 23,0
Samtals 199,7
Auk ofangreinds stuðnings hefur eftirfarandi aðstoð verið veitt til Írak:
Önnur verkefni
2005 Söfnunarsjóður NATO vegna þjálfunar íraskra öryggissveita 11,8
Fjölmiðlafulltrúi á vegum Íslensku friðargæslunnar 8,3
2006 Söfnunarsjóður NATO vegna þjálfunar íraskra öryggissveita 12,9
Flutningar hergagna vegna stuðningsaðgerða NATO 44,0
Fjölmiðlafulltrúi á vegum Íslensku friðargæslunnar2 12,0
Samtals 89,0

1    Stoðtækjaverkefni unnið samkvæmt samningi við Össur hf. að upphæð 92 millj. kr. Lokagreiðsla að upphæð 23 millj. kr. ógreidd þar sem enn er unnið að verkefninu.
2    Áætlaður kostnaður.