Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 392. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 751  —  392. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Baldursdóttur um aldurstakmark á skipulagðar útihátíðir.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hefur ráðherra íhugað, eða áformar hann, að setja 18 ára aldurstakmark á skipulagðar útihátíðir, eða sjá til þess að börn undir 18 ára aldri fái einungis aðgang að slíkum hátíðum séu þau í fylgd með fullorðnum sem staðfestir að hann taki ábyrgð á þeim?


    Ráðuneytið fer með málefni barna og unglinga, fjölskyldumál og forvarnir og meðferð fyrir börn og ungmenni innan 18 ára aldurs en að mati ráðherra hefur skort almenna stefnumótun í forvarnamálum.
    Málið var tekið upp á fundi ríkisstjórnarinnar og samþykkti hún að fela ráðuneytinu að hafa forystu í samstarfi þeirra sem starfa að forvörnum og móta heildstæða forvarnastefnu er byggist á samræmdum leiðum í þágu forvarna og markvissri nýtingu þeirra fjármuna sem þegar er veitt í verkefni á þessu sviði. Skipaður var fimm manna stýrihópur til þess að leiða verkefnið undir forystu Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Hópurinn hefur þegar haldið fundi með fjölmörgum aðilum sem þekkja fíkniefnavandann og forvarnastarf af eigin raun, einkaaðilum, félagasamtökum og opinberum aðilum. Stýrihópurinn hefur skilað ráðherra drögum að heildstæðri forvarnastefnu sem send var fjölmörgum aðilum til umsagnar og hafa umsagnir verið að berast ráðuneytinu nú í janúar.
    Ein af meginástæðum þess að mál þetta var sett í forgang er að ráðherra hefur áhyggjur af því hvernig unglingar undir 18 ára aldri safnast saman á misskipulögðum hátíðum víða um land, ekki einungis um verslunarmannahelgina, heldur einnig um aðrar helgar sumarsins. Hann kallaði í sumar saman fulltrúa ráðuneyta, opinberra stofnana, félagasamtaka og fyrirtækja og fann mikinn samhug og eindreginn vilja til þess að samhæfa kraftana betur en gert hefur verið. Í framhaldi af því var hrint af stað auglýsingaherferð fyrir síðastliðna verslunarmannahelgi þar sem foreldrar voru hvattir til að sýna aukna ábyrgð í þessum efnum. Mjög margir hafa unnið og eru að vinna gott starf á þessu sviði og eiga heiður skilinn fyrir það.
    Miklir hagsmunir eru í húfi ef eitt barn eða einn unglingur er í hættu því ekkert er dýrmætara en börnin. Til mikillar fyrirmyndar eru þær áfengislausu útihátíðir sem Ungmennafélag Íslands, Bindindishreyfingin og SÁÁ halda ár hvert. Þær hafa verið mjög vel heppnaðar og veitt foreldrum, börnum og unglingum dýrmætt tækifæri til þess að eyða tímanum saman. Samfélagið allt þarf að vera virkur þátttakandi í forvörnum og halda vöku sinni. Málefni sem varða börn og unglinga eiga ávallt að vera forgangsmál.
    Í fyrirspurninni er sérstaklega spurt um aldurstakmark á „skipulögðum útihátíðum“. Flestar slíkar skipulagðar útihátíðir eru haldnar um verslunarmannahelgina fyrstu helgina í ágúst. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur árlega gefið út sérstakt umburðarbréf til lögreglustjóra um reglur og skilyrði vegna „skipulagðra útihátíða“, ásamt kynningu á reglugerð um löggæslukostnað við slíkar útihátíðir. Ráðherra hefur mikinn áhuga á að skoða aldurstakmörk á þessum hátíðum í samráði við dóms- og kirkjumálaráðuneytið og aðra þá aðila er kæmu að slíkri ákvörðun.