Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 354. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 762 — 354. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Guðmundar Hallvarðssonar um olíuleit og rannsóknir á landgrunni Íslands.
Leitað var til Orkustofnunar og Íslenskra orkurannsókna um svör við fyrirspurninni og byggist eftirfarandi á upplýsingum frá þeim.
1. Hafa félög eða fyrirtæki sótt um leyfi til olíu- og gasleitar í íslenskri lögsögu sl. tvö ár?
2. Ef svo er, hvaða aðilar eru það og hver eru áform þeirra? Hafa íslenskum stjórnvöldum borist niðurstöður rannsókna eða áfangaskýrsla?
Á síðustu tveimur árum hefur ekki verið sótt um leyfi til olíu- og gasleitar í íslenskri lögsögu. Síðasta slíkt leyfi var veitt fyrirtækinu TGS-NOPEC árið 2002 til leitar á sk. Drekasvæði, suður af Jan Mayen-hrygg.
Rétt er að taka fram að fyrirtæki þau sem fengu leyfi til leitar fyrr á árum hafa skilað gögnum úr leiðöngrum sínum og kynnt niðurstöðurnar í skýrslum.
3. Hafa erlendir aðilar leitað upplýsinga til ráðuneytisins án þess að sækja formlega um leyfi til leitar?
Nokkur erlend fyrirtæki, sem ekki hafa sótt formlega um leyfi á síðustu tveimur árum, hafa sýnt áhuga á olíuleit við Ísland og leitað upplýsinga hjá ráðuneytinu og hjá Orkustofnun. Jafnframt hafa erlendar sendinefndir í tengslum við heimsóknir ráðamanna, svo sem frá Indlandi, Kína og Angóla, sýnt áhuga á möguleikum til olíuleitar og -vinnslu í íslenskri lögsögu. Ráðuneytið og Orkustofnun svara þeim fyrirspurnum um málefnið sem til þeirra er beint, auk þess sem á vef Orkustofnunar eru birtar á ensku helstu upplýsingar um stöðu olíuleitarmála hérlendis ásamt gildandi lögum og reglum um olíuleit.
4. Hvað líður rannsóknum á landgrunni Norðurlands þ.e. frá Öxarfirði yfir í Eyjafjarðarál? Hvaða vísbendingar hafa rannsóknir gefið um möguleika á olíu eða gasi og hverjar eru líkurnar á að olía eða gas finnist?
Frá árinu 2005 hefur verið hlé á beinum athugunum á sk. Gammssvæði á landgrunni Norðurlands með tilliti til möguleika á olíu eða gasi. Á síðustu tveimur árum hafa birst greinar í vísindatímaritum og verið fjallað um málefnið á vísindaráðstefnum og fundum á grundvelli fyrri athugana. Lögð hafa verið drög að yfirlitsskýrslu um rannsóknirnar, en lúkning hennar er í biðstöðu. Helstu niðurstöður rannsóknanna til þessa eru sem hér segir:
a. Jarðgas hefur fundist með vissu í Öxarfirði og virðist hafa þónokkra útbreiðslu. Samsetning og samsætugreiningar benda til að móðurberg sé að mestu lífrænt efni af landi (kol eða surtarbrandur). Sýnt hefur verið fram á að surtarbrandurinn á Tjörnesi sé ágætt móðurberg fyrir gas og hugsanlega olíu og yfirgnæfandi líkur eru, samkvæmt samsætugreiningum, að sambærilegt efni sé móðurberg fyrir gasið í Öxarfirði
b. Fundin eru víðáttumikil svæði norður af landinu með þykkum setlögum er hugsanlega innihalda lífræn efni.
c. Fundist hafa grópir á botni Skjálfanda, sem líklega eru tengdar uppstreymi gass og/eða vökva í gegnum misgengi. Vísbendingar samkvæmt ljósmyndum og hljóðendurvarpsmælingum eru um virkt gasuppstreymi í Skjálfanda meðfram Húsavíkur–Flateyjar misgenginu og hugsanlega í grópum í norðanverðum Skjálfanda.
d. Jarðgas hefur fundist í botnseti á nokkrum stöðum í Skjálfanda, en mest rétt utan Húsavíkur. Niðurstöður rannsókna á kjarnasýnum benda aðallega til lífræns myndaðs metangass (mýrargass), en þróaðri kolvetnissambönd finnast einnig.
Í heild er niðurstaðan því sú á þessu stigi málsins að þótt ekki hafi fundist nýtanleg auðlind hefur þó að líkindum verið sýnt fram á að gas- og jafnvel olíumyndandi ferli geta átt sér stað í Tjörnestroginu.
5. Er fyrirhugað eða talin þörf á að bora rannsóknarholur í Flatey á Skjálfanda eða í Grímsey til frekari rannsóknar setlaga?
Árið 1982 var boruð 554 m djúp rannsóknarhola í Flatey á Skjálfanda. Í Grímsey hafa verið boraðar 17 hitastigulsholur fram til ársins 2003, og eru þær frá nokkrum tugum og allt að 120 m djúpar. Engin merki um olíu eða gas hafa fundist í þessum borholum.
Næstu skref í rannsóknum á landgrunni Norðurlands á skilyrðum til myndunar og uppsöfnunar á olíu og gasi í jarðlögum eru að ljúka við fyrsta tækifæri yfirlitsskýrslu um rannsóknirnar fram að þessu, gera frekari jarðeðlisfræðilegar mælingar og safna og greina sýni af gasi sem finnst í setlögum eða streymir upp á botni sjávar.
6. Að hvaða málum er nú unnið að af hálfu samráðsnefndar um landgrunns- og olíuleitarmál?
Samráðsnefnd um landgrunns- og olíuleitarmál hefur gætt íslenskra hagsmuna á sviði olíu- og landgrunnsmála frá því að hún var skipuð af ráðherra í febrúar 1999.
Í byrjun árs 2005 lagði samráðsnefndin fram minnisblað með tillögum til ríkisstjórnarinnar um undirbúning fyrir veitingu sérleyfa til rannsóknar og vinnslu olíu og annarra kolvetna á Jan Mayen-hryggnum. Á grundvelli þeirri tillagna samþykkti ríkisstjórnin í apríl 2005 að hefja undirbúning að hugsanlegri veitingu sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu olíu á Jan Mayen-hryggnum og leggja fram sérstaka fjármuni í því skyni. Í framhaldi af því lagði samráðsnefnd um landgrunns- og olíuleitarmál fram tillögur til ráðuneytisins um verklag og næstu skref, ásamt drögum að verklýsingum. Ljóst var í kjölfar þeirrar vinnu að þörf væri fyrir víðtækt samstarf og samvinnu margra ráðuneyta til að tryggja framgang verksins og því samþykkti ríkisstjórnin í mars 2006 að skipa sérstaka nefnd átta ráðuneytisstjóra sem vettvang fyrir þá vinnu, en Orkumálastjóri starfar einnig með nefndinni. Þrír vinnuhópar sem í sitja sérfræðingar frá ráðuneytunum átta og undirstofnunum þeirra starfa á vegum ráðuneytisstjóranefndarinnar og er hlutverk þeirra m.a. að fara yfir lagaumhverfið varðandi olíuleit hérlendis. Einnig er á vettvangi vinnuhópanna unnið að heildarskýrslu um málið þar sem m.a. verður að finna samantekt fagstofnana á stöðu náttúrufarsrannsókna og umhverfismála á Drekasvæðinu á Jan Mayen-hryggnum. Stefnt er að því að birta skýrsluna og ljúka umfjöllun um hana á fyrstu mánuðum ársins 2007, þannig að taka megi ákvörðun vorið 2007 um hvort hefja eigi leyfisveitingarferli fyrir útgáfu sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu olíu á Drekasvæðinu á Jan Mayen-hryggnum.
Meðan þetta undirbúningsferli er í gangi á vegum nefndar átta ráðuneytisstjóra, eins og að framan er lýst, mun samráðsnefnd um landgrunns- og olíuleitarmál halda sig til hlés. Í framhaldi af ákvörðunum um framhaldið gefst færi á að athuga hvort endurskoða þurfi verkefni samráðsnefndarinnar. Á þessu stigi er það metið svo að henni verði auðið lengri lífdaga við þörf verk, a.m.k. á sviði landgrunnsmála.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 762 — 354. mál.
Svar