Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 509. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 769  —  509. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um stöðu blindra og daufblindra.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hver er fjöldi blindra og daufblindra í þjóðfélaginu, annars vegar barna og hins vegar fullorðinna?
     2.      Telur ráðherra að þjónusta við blinda og daufblinda hér á landi standi langt að baki slíkri þjónustu annars staðar á Norðurlöndum?
     3.      Njóta blindir annars vegar og daufblindir hins vegar þeirrar þjónustu og réttar sem lög og reglugerðir um málefni fatlaðra kveða á um? Óskað er eftir sundurliðun þeirrar þjónustu sem þeim stendur til boða.
     4.      Þurfa blindir og daufblindir að bíða eftir þjónustu, og þá hverri og hve lengi?
     5.      Hefur ráðherra tillögur um hvernig bæta megi stöðu blindra og daufblindra í þjóðfélaginu?
     6.      Hvenær má vænta þess að sett verði á fót þekkingarmiðstöð sem yrði þjónustumiðstöð fyrir þessa hópa og aðstandendur þeirra líkt og nú eru starfandi annars staðar á Norðurlöndum?


Skriflegt svar óskast.