Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 520. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 923  —  520. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Katrínar Fjeldsted um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hyggst ráðherra beita sér fyrir því fyrir lok kjörtímabilsins að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað?

    Hinn 22. nóvember sl. skipaði ráðherra starfshóp til þess að gera tillögur um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum. Í honum sitja Árni Bragason, formaður, Egill Sigurðsson, tilnefndur af Ásahreppi, Þorgils Torfi Jónsson, tilnefndur af Rangárþingi ytra, og Gunnar Örn Marteinsson, tilnefndur af Skeiða-og Gnúpverjahreppi. Jafnframt er starfshópnum ætlað að hafa samráð við sérfræðinga og hagsmunaaðila á svæðinu og gera tillögur um stækkun friðlandsins svo og hugsanlegar breytingar aðrar á mörkum friðlandsins og einstökum atriðum friðlýsingarinnar.
    Í skipunarbréfi starfshópsins var reiknað með að hann skilaði tillögum sínum til ráðherra fyrir 1. febrúar sl. en nú liggur fyrir að starfshópurinn muni skila tillögum sínum um næstkomandi mánaðamót.
    Á grundvelli tillagna starfshópsins er það ætlun ráðherra að stækka friðlandið í Þjórsárverum.