Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 480. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 924  —  480. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um verðmyndun á landbúnaðarvörum.

     1.      Hvernig skiptist verðmyndun á helstu tegundum landbúnaðarvara á árunum 2005 og 2006, annars vegar innlendra og hins vegar innfluttra, sundurliðað milli eftirfarandi þátta, bæði hlutfallslega og í krónum:
                  a.      framleiðenda,
                  b.      heildsöluálagningar,
                  c.      smásöluálagningar,
                  d.      opinberra gjalda?

    Ekki liggja fyrir upplýsingar um þau atriði sem spurt er um hvað innlendar landbúnaðarvörur varðar, enda er verðmyndun þessara vara frjáls og óháð opinberum verðafskiptum. Þetta á þó ekki við um tilteknar mjólkurvörur, þ.e. nýmjólk, rjóma, undanrennu, skyr (ópakkað), smjör (allir flokkar), ost (17% og 26%) nýmjólkurduft og undanrennuduft, en á grundvelli 1. mgr. 13. gr. búvörulaga ákveður verðlagsnefnd búvara heildsöluverð þessara vara, þ.e. sömu vara og verðlagðar eru skv. 8. gr. búvörulaga að teknu tilliti til afurðaverðs til framleiðenda. Sjá auglýsingu um heildsöluverð þessara vara í Lögbirtingablaðinu dags. 21. desember 2005 og auglýsingu um lágmarksverð á mjólk til framleiðenda í Lögbirtingablaðinu dags. 28. desember 2005. Umbeðnar upplýsingar varðandi innfluttar landbúnaðarvörur liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu, en einhver hluti þeirra kann að fást hjá Hagstofu Íslands og Samkeppniseftirlitinu.

     2.      Ef framangreindar upplýsingar liggja ekki fyrir, telur ráðherra rétt að slíkar upplýsingar liggi fyrir, séu aðgengilegar og uppfærðar reglulega og er hann tilbúinn að beita sér sérstaklega fyrir því?
    Að mati ráðherra er mikilvægt að fyrir liggi sem ítarlegastar upplýsingar um hagtölur í landbúnaði, landbúnaðarframleiðslu og verðmyndun landbúnaðarvara, m.a. í þeim tilgangi að auka sem mest gagnsæi og auðvelda ákvarðanatöku. Sama gildir um innfluttar landbúnaðarvörur og verðmyndun þeirra. Þær stofnanir sem sinna þessum málum einkum eru: Hagþjónusta landbúnaðarins, Hagstofa Íslands og Samkeppniseftirlitið. Hjá Hagþjónustu landbúnaðarins hefur á síðustu árum verið gert átak í að bæta upplýsingar um afkomu og stöðu bænda og eru þær upplýsingar í aðgengilegu formi á heimasíðu Hagþjónustunnar. Ráðherra er einnig kunnugt um nokkra bót á söfnun upplýsinga, hagtalna er heyra undir Hagstofu Íslands og varða áburðarnotkun, búfé og uppskeru, framleiðslu og kjötneyslu og veiðitalna, en það er mat ráðherra að þar þurfi að bæta um betur. Á heimasíðu Bændasamtaka Íslands er einnig að finna hagnýtar upplýsingar í þessu sambandi.

     3.      Hafa Bændasamtökin óskað eftir því að í það verði ráðist að fá fram sundurgreindar upplýsingar um verðmyndun á landbúnaðarvörum?
    Eftir því sem best er vitað hefur slík ósk ekki komið fram.

     4.      Telur ráðherra rétt að lögfest verði að hlutur bóndans í verði landbúnaðarvara verði sérstaklega skráður á þær vörur í verslunum?
    Í þjóðfélögum þar sem meginreglan er frjáls verðmyndun eins og hér tíðkast telur ráðherra ekki rétt að lögfest verði hver hlutur bóndans er í verði landbúnaðarvara og það sérstaklega skráð á vörur í verslunum. Það yrði afar kostnaðarsamt bæði fyrir framleiðendur og neytendur og erfitt að hafa eftirlit með slíkri framkvæmd. Ráðherra telur á hinn bóginn mikilvægara að efla almennt verðlagseftirlit og miðlun upplýsinga til neytenda og framleiðenda, m.a. með verðkönnunum, birtingu upplýsinga um smásöluálagningu, heildsöluálagningu þar sem það á við, vinnslu- og dreifingarkostnað og hvað bóndinn fær fyrir framleiðsluvörur sínar.