Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 625. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 931  —  625. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um happdrætti, nr. 38/2005.

Flm.: Ellert B. Schram, Guðmundur Hallvarðsson, Hjálmar Árnason,
Valdimar L. Friðriksson, Ögmundur Jónasson.


1. gr.

    11. gr. laganna orðast svo:
    Það varðar sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum, ef maður eða fyrirsvarsmaður lögaðila, af ásetningi eða stórfelldu gáleysi, auglýsir, kynnir eða miðlar hvers konar upplýsingum, kynningum eða tilkynningum um happdrætti og/eða aðila sem rekur happdrætti sem ekki hefur verið veitt leyfi fyrir samkvæmt lögum þessum eða uppfyllir ekki skilyrði laganna. Á þetta jafnt við um hvers konar miðla sem birta auglýsingar, kynningar eða tilkynningar um slíka starfsemi og miðlun sem vísar til heimasíðna slíkra aðila og/eða starfsemi þeirra.
    Sé auglýsandi ekki nafngreindur skal viðkomandi miðill eða ritstjóri hans, hafi honum verið kunnugt um að miðlunin væri brot á ákvæðum laga þessara, talinn bera ábyrgð á henni og/eða efni hennar. Skulu slík brot varða sektum.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Tilgangur með lagabreytingu þessari er að koma í veg fyrir að aðilar, innlendir sem erlendir, sem ekki hafa leyfi íslenskra stjórnvalda geti rekið happdrætti (e. betting, gambling and gaming) frá Íslandi og í því sambandi auglýst starfsemi sína í íslenskum fjölmiðlum í þeim tilgangi að ná til íslenskra neytenda.
    Á Íslandi hafa gilt takmarkanir á rekstri happdrætta og er slíkur rekstur háður leyfi ráðherra. Eru leyfisskyldum félögum settar fyrir fram ákveðnar reglur um starfsemina og eftirlit með henni skilgreint. Er með því verið að sporna við hvers konar misnotkun og þeim afleiðingum sem kunna að vera því samfara.
    Með lagabreytingunni er jafnframt lögð frekari ábyrgð á fjölmiðla þannig að þeir verði meðvitaðri um þá starfsemi sem auglýsendur þeirra hafa undir höndum og þeim áhrifum sem aðgengi þeirra að almenningi kann að hafa.
    Öllum þeim sem með þessum málum fylgjast er kunnugt að auglýsingar um veðmálastarfsemi, sem ekki er heimil hér á landi, hafa birst í fjölmiðlum sem og á netinu. Margsinnis hefur athygli yfirvalda lögreglu og dómsmála verið vakin á þessum auglýsingum og athugasemdum komið á framfæri. Löggæslan sem og ákæruvaldið hafa ekki treyst sér til aðgerða með skírskotun til þess að lög séu ekki nógu skýr til að taka á þessum málum. Frumvarp þetta er lagt fram í því skyni að lög taki allan vafa af um að sú starfsemi sem fram fer lögum og reglum samkvæmt njóti verndar gagnvart utanaðkomandi og óheimilli veðmálastarfsemi.