Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 484. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 932 — 484. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Sæunnar Stefánsdóttur um fjölda háskólanema á árunum 1995–2006.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur verið fjöldi háskólanema á Íslandi á árunum 1995–2006, sundurliðað eftir árum, háskólum og námsgráðum, þ.e. BA/BS-námi, meistaranámi og doktorsnámi?
Tafla hér að aftan sýnir fjölda háskólanema á Íslandi, sundurliðað eftir árum, háskólum og námsgráðum. Ekki liggja fyrir upplýsingar fyrir árið 2006. Upplýsingarnar eru unnar af Hagstofu Íslands. Tölurnar sýna fjölda nemenda eftir námsstigi óháð því hvort þeir eru í fullu námi eða hlutanámi. Taldir eru allir nemendur í námi til: 1) fyrstu háskólagráðu, 2) í viðbótarnámi eftir fyrstu háskólagráðu, 3) í námi til meistaragráðu og 4) doktorsgráðu.
Nemendum í háskólum í námi sem ekki leiðir til háskólagráðu er sleppt, en þar er t.a.m. um að ræða stutt hagnýtt nám í Háskóla Íslands, rekstrarfræði og kerfisfræði við Háskólann á Bifröst og við Háskólann í Reykjavík.
Sá fyrirvari er gerður að árið 1997 var ekki gerður greinarmunur á nemendum til meistaragráðu og í viðbótarnámi við Kennaraháskóla Íslands (KHÍ) og eru þeir allir skráðir í námi til meistaragráðu. Nemendur í viðbótarnámi í KHÍ geta bætt við viðbótarnámið með áframhaldandi námi og lokið meistaragráðu. Nemendur í meistaranámi í Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands eru taldir frá árinu 2002. Frá árinu 1997 voru skólar beðnir um upplýsingar um alla nemendur en fyrir þann tíma eiga upplýsingarnar aðeins við um nemendur í fullu námi og í dagskóla.
Í eftirfarandi töflu, sem sýnir samandregnar upplýsingar um fjölda nemenda eftir árum og námsgráðum, kemur fram:
1. Nemendum í námi til 1. háskólagráðu hefur fjölgað úr 5.840 árið 1995 í 11.907 árið 2005, um 104%.
2. Nemendum í viðbótarnámi eftir 1. háskólagráðu hefur fjölgað úr 185 árið 1995 í 870 árið 2005, um 370%.
3. Nemendum í námi til meistaragráðu hefur fjölgað úr 183 árið 1995 í 2.080, um 1.037%.
4. Nemendum í námi til doktorsgráðu hefur fjölgað úr 8 árið 1995 í 155 árið 2005, um 1.837%.
Graphic file haskolar.bmp with height 88 p and width 653 p Left aligned
Athugasemdir: Nemendur á fyrstu tveimur árunum í rekstrarfræði í Samvinnuháskólanum/Viðskiptaháskólanum á Bifröst og í kerfisfræði við TVÍ/Viðskiptaháskólann í Reykjavík teljast ekki vera í námi til fyrstu háskólagráðu. Heldur ekki nemar í stuttu hagnýtu námi við HÍ. Árið 1997 var ekki gerður greinarmunur á nemendum til meistaragráðu og í viðbótarnámi við KHÍ og eru þeir allir skráðir í námi til meistaragráðu. Nemendur í viðbótarnámi í KHÍ geta bætt við viðbótarnámið með áframhaldandi námi og lokið meistaragráðu. Nemendur í meistaranámi í Endurmenntunarstofnun HÍ eru taldir frá árinu 2002. Frá árinu 1997 voru skólar beðnir um upplýsingar um alla nemendur en fyrir þann tíma eiga upplýsingarnar aðeins við um nemendur í fullu námi og í dagskóla.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 932 — 484. mál.
Svar

Fjöldi háskólanema 1995–2005.
| Skóli | Flokkun prófgráðu | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 |
| Endurmenntun Háskóla Íslands |
Meistaragráða | – | – | – | – | – | – | – | 46 | 45 | 45 | 116 |
| Háskóli Íslands | 1. háskólagráða | 4.854 | 5.154 | 5.078 | 4.888 | 5.502 | 5.478 | 5.941 | 6.676 | 7.231 | 6.972 | 6.963 |
| Háskóli Íslands | Viðbótarnám eftir 1. háskólagráðu |
185 | 212 | 189 | 337 | 304 | 283 | 264 | 241 | 358 | 323 | 419 |
| Háskóli Íslands | Meistaragráða | 145 | 166 | 268 | 316 | 434 | 471 | 525 | 763 | 944 | 1.176 | 1.370 |
| Háskóli Íslands | Doktorsgráða | 8 | 10 | 14 | 20 | 18 | 50 | 35 | 41 | 45 | 127 | 148 |
| Háskólinn á Akureyri | 1. háskólagráða | 283 | 328 | 371 | 434 | 469 | 600 | 805 | 910 | 1.189 | 1.279 | 1.280 |
| Háskólinn á Akureyri | Viðbótarnám eftir 1. háskólagráðu |
– | – | – | 34 | 30 | 3 | 9 | – | 50 | 71 | 27 |
| Háskólinn á Akureyri | Meistaragráða | – | – | – | – | – | 15 | 35 | 60 | 92 | 79 | 123 |
| Viðskiptaháskólinn í Rvk/ Háskólinn í Reykjavík |
1. háskólagráða | – | – | – | 111 | 183 | 643 | 738 | 809 | 900 | 965 | 1.541 |
| Háskólinn í Reykjavík | Viðbótarnám eftir 1. háskólagráðu |
– | – | – | – | – | – | – | – | – | – | 1 |
| Háskólinn í Reykjavík | Meistaragráða | – | – | – | – | – | – | 9 | 58 | 81 | 137 | 312 |
| Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal | 1. háskólagráða | – | – | – | – | – | – | – | – | – | – | 14 |
| Kennaraháskóli Íslands | 1. háskólagráða | 513 | 481 | 512 | 966 | 867 | 849 | 1.020 | 1.252 | 1.418 | 1.622 | 1.391 |
| Kennaraháskóli Íslands | Viðbótarnám eftir 1. háskólagráðu |
– | – | – | 106 | 160 | 224 | 304 | 432 | 361 | 372 | 390 |
| Kennaraháskóli Íslands | Meistaragráða | 38 | 63 | 114 | 85 | 71 | 58 | 72 | 74 | 79 | 91 | 25 |
| Kennaraháskóli Íslands | Doktorsgráða | – | – | – | – | – | – | 3 | 4 | 6 | 7 | 7 |
| Bændaskólinn á Hvanneyri/ Landbúnaðarháskólinn |
1. háskólagráða | 9 | 25 | 15 | 31 | 16 | 31 | 35 | 49 | 76 | 94 | 104 |
| Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri |
Viðbótarnám eftir 1. háskólagráðu |
– | – | – | – | – | – | – | – | 7 | – | – |
| Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri |
Meistaragráða | – | – | – | – | – | – | – | – | 4 | 4 | 12 |
| Listaháskóli Íslands | 1. háskólagráða | – | – | – | – | 67 | 233 | 227 | 280 | 317 | 326 | 340 |
| Listaháskóli Íslands | Viðbótarnám eftir 1. háskólagráðu |
– | – | – | – | – | – | 10 | 29 | 33 | 38 | 33 |
| Myndlista- og handíðaskóli Íslands |
Meistaragráða | – | – | 2 | – | – | – | – | – | – | – | – |
| Tækniskóli Íslands/ Tækniháskóli Íslands |
1. háskólagráða | 165 | 163 | 188 | 195 | 221 | 262 | 304 | 335 | 420 | 445 | – |
| Samvinnuháskólinn/ Viðskiptaháskólinn á Bifröst |
1. háskólagráða | 16 | 24 | 31 | 26 | 40 | 46 | 74 | 182 | 215 | 211 | 274 |
| Viðskiptaháskólinn á Bifröst | Meistaragráða | – | – | – | – | – | – | – | – | 24 | 84 | 122 |